Morgunblaðið - 21.02.2018, Blaðsíða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018
Reykjavík Erlendir ferðamenn fögnuðu töfrandi logndrífunni sem féll á Lækjartorgi í gær. Það var sannarlega lognið á undan storminum sem skella átti á landinu í nótt og í morgun.
Eggert
Í upphafi eru eftir-
farandi fullyrðingar:
Báknið virðist
uppteknara af því að
koma böndum á fram-
taksmanninn en
tryggja aukna sam-
keppni og stuðla að
frjóum jarðvegi fyrir
nýjungar og nýsköpun.
Ríki og sveitar-
félög leggja steina í
götur einkaframtaksins.
Með skipulegum hætti hafa
ríkisfyrirtæki sótt að einkarekstri og
grafið undan sjálfstæða atvinnurek-
andanum.
Erlendir auðmenn og Holly-
wood-stjörnur njóta meiri velvildar
stjórnvalda en íslenski framtaks-
maðurinn.
Öflug millistétt og sjálfstæðir at-
vinnurekendur eru burðarásar allra
velferðarsamfélaga. Fáir stjórn-
málamenn gerðu sér betur grein fyr-
ir þessu en Eyjólfur Konráð Jónsson
(1928-1997), þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins. Eykon hafði skýra sýn á
stefnu og hlutverk Sjálfstæðis-
flokksins. Á fundi Varðar árið 1977
lagði hann áherslu á að hlutverk
Sjálfstæðisflokksins í atvinnumálum
væri að „innleiða meira frjálsræði,
minni ríkisafskipti, öflugra einka-
framtak, minni ríkisumsvif“. Að
skapa svigrúm til athafna og frelsi
fyrir framtaksmennina voru og eru
skyldur sem sjálfstæðismenn hafi
axlað:
„Hlutverk flokka og stjórnmála-
manna er ekki að fyrirskipa hvað
eina og skipuleggja allt. Það er hlut-
verk þeirra, sem beina aðild eiga að
atvinnurekstri. Þeim ber að sjá um
samkeppnina og arðsemina.“
Litla Ísland – jarðvegur
nýrrar hugsunar
Hagstofan tók saman, að beiðni
Samtaka atvinnulífsins, fróðlegar
upplýsingar um íslenskt atvinnulíf,
fjölda fyrirtækja, fjölda starfsmanna
og launagreiðslur á árunum 2010-
2016. Upplýsingarnar voru kynntar
á Smáþingi Litla Ís-
lands fyrr í þessum
mánuði og ná yfir alla
launagreiðendur að
undanskildum stofn-
unum ríkis og sveitar-
félaga, lífeyrissjóðum
og félagasamtökum.
Hafi einhver haft efa-
semdir um mikilvægi
lítilla og meðalstórra
fyrirtækja fyrir ís-
lenskt atvinnu- og efna-
hagslíf, ættu þær efa-
semdir að heyra
sögunni til.
99,7% fyrirtækja á Íslandi eru
lítil (49 eða færri starfsmenn) og
meðalstór fyrirtæki (50-249 starfs-
menn).
Lítil og meðalstór fyrirtæki
höfðu 71% starfsmanna í atvinnulíf-
inu í vinnu árið 2016.
Lítil og meðalstór fyrirtæki
greiddu 66% heildarlauna í atvinnu-
lífinu árið 2016.
Starfsmönnum í atvinnulífinu
fjölgaði um 27 þúsund frá 2010 til
2016, þar af fjölgaði starfsmönnum
lítilla og meðalstórra fyrirtækja um
20.700. Liðlega 45% fjölgunarinnar
eða 12.200 voru hjá örfyrirtækjum
(færri en 10 starfsmenn) og litlum
fyrirtækjum.
Af þessum tölum má sjá að drif-
kraftar efnahagslífsins – góðærisins
sem við Íslendingar höfum notið –
hafa verið lítil og meðalstór fyrir-
tæki. Enda eru það gömul sannindi
og ný að framtaksmaðurinn er afl-
vaki framfara og bættra lífskjara.
Hann kemur auga á tækifærin, býð-
ur nýja vöru og þjónustu og skapar
ný störf. Með nýrri hugsun og oft
byltingarkenndum aðferðum ógnar
framtaksmaðurinn hinum stóru.
Sanngirni sett til hliðar
Ég hef áður bent á hvernig stór-
fyrirtækin sóttu að sjálfstæða at-
vinnurekandanum, litlu og meðal-
stóru fyrirtækjunum á árunum fyrir
fall fjármálakerfisins. Í krafti stærð-
ar en þó fyrst og fremst greiðs að-
gangs að láns- og áhættufjármagni
náðu fyrirtækjasamsteypur ótrúleg-
um ítökum í íslensku atvinnulífi.
Þrengt var að litlum sjálfstæðum
keppinautum og þeir oft kæfðir og
hraktir úr af markaði. Eftir hrun var
skuldsettum stórfyrirtækjum bjarg-
að eins og ég benti meðal annars á í
grein hér í Morgunblaðinu í júní
2011:
„Hver viðskiptasamsteypan á fæt-
ur annarri hefur fengið nýtt líf.
Skuldir hafa verið afskrifaðar, skuld-
um breytt í hlutafé og það sem stóð
eftir verið skuldbreytt. Hinir hóf-
sömu keppinautar standa eftir og
skilja ekki af hverju þeim er refsað
fyrir að hafa farið gætilega og gætt
skynsemi í rekstri.“
Jafnræði og sanngirni voru sett til
hliðar á fyrstu árunum eftir fjár-
málakreppuna. En framtaksmað-
urinn er lífseigur eins og fyrrnefndar
tölur Hagstofunnar sýna. Við getum
aðeins látið okkur dreyma um
hversu öflugra og fjölbreyttara ís-
lenskt atvinnulíf væri ef sjálfstæði
atvinnurekandinn hefði setið við
sama borð og stórfyrirtækin á síð-
ustu árum.
Sterkt bakbein
Þrengt hefur verið að litlum og
meðalstórum fyrirtækjum með ýms-
um öðrum hætti. Ríkisfyrirtæki
herða sóknina og löggjafinn hefur
hannað umgjörð ríkisrekstrar með
ohf-væðingu, þannig að þau telja sér
rétt og skylt að sækja inn á sam-
keppnismarkaði. Opinber hlutafélög
eru líkari lokuðum einkafyrirtækjum
en hefðbundnum ríkisfyrirtækjum.
Fyrirtæki í eigu ríkisins eru komin í
samkeppni við sendibílastöðvar og
einyrkja, hafa haslað sér völl í vöru-
flutningum og vöruhýsingu, sinna
prentþjónustu, reka verslun með
snyrtivörur, undirföt og leikföng, svo
dæmi séu nefnd. Á síðustu árum hafa
flestar takmarkanir á rekstri ríkis-
fyrirtækja verið afnumdar og þau
fært sig í auknum mæli inn á verk-
svið einkafyrirtækja.
Til að bæta gráu ofan á svart léttir
eftirlitsiðnaðurinn ekki undir með
litlum og meðalstórum fyrirtækjum.
Á stundum er engu líkara en að
báknið hafi það fremur að leiðarljósi
að koma böndum á framtaksmann-
inn en að stuðla að heilbrigðu við-
skiptalífi og efla samkeppni. Sífellt
flóknari reglur og fjölbreytileg gjöld
íþyngja fyrst og síðast minni fyrir-
tækjum og geta komið í veg fyrir að
framtaksmenn nái að hasla sér völl á
mörkuðum þar sem stórir aðilar sitja
fyrir á fleti. Þannig er búin til vernd
fyrir þá stóru og dregið er úr sam-
keppni á kostnað neytenda.
Á sama tíma og sjálfstæðir at-
vinnurekendur horfa upp á skattfríð-
indi Hollywood-stjarna standa þeir í
ströngu við að komast yfir hindranir
sem ríki og sveitarfélög hafa búið til,
allt frá sorphirðu til heilbrigðisþjón-
ustu, frá fjölmiðlun til ferðaþjónustu,
frá verslun til menntunar.
Með allt þetta í huga vinna sjálf-
stæðir atvinnurekendur afrek á
hverjum degi. Og það er magnað –
þrátt fyrir allt – að til séu þúsundir
einstaklinga sem stofna fyrirtæki og
leggja allt sitt undir til að skapa
verðmæti og störf. Sjálfstæði at-
vinnurekandinn er lífseigur. Þess
vegna er bakbein íslensk atvinnulífs
sterkt og þess vegna höfum við Ís-
lendingar náð að byggja hér upp öfl-
ugt velferðarsamfélag.
Eftir Óla Björn
Kárason » Það er magnað –
þrátt fyrir allt – að
til séu þúsundir ein-
staklinga sem stofna
fyrirtæki og leggja allt
sitt undir til að skapa
verðmæti og störf.
Óli Björn Kárason
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæði atvinnurekandinn er lífseigur
Skipting m.v. launagreiðendur Skipting m.v. fjölda starfsmanna
Fjöldi
launafólks
Undir 50
50-250
Yfir 250
51,17%
23,25%97,94%
1,69% 0,37%
25,58%
Lítil og meðalstór fyrirtæki: Bakbein íslensks
efnahagslífs – hlutfallsleg skipting eftir stærð
Launagreiðendur, launþegar og launagreiðslur
Hlutfallsleg skipting eftir stærð fyrirtækja 2016
Heimild: Hagstofan / Samtök atvinnulífsins
Fjöldi
launafólks
Launagreiðendur Starfsmenn / launafólk Heildarlaun m.kr.
Fjöldi % Fjöldi % Fjöldi %
1-9 17.410 89,6% 37.362 26,1% 143.456 19,3%
10-49 1.789 8,5% 35.791 23,7% 189.057 23,1%
50-249 332 1,6% 33.245 21,4% 201.778 23,7%
250> 72 0,4% 36.573 28,8% 226.914 33,9%
Samtals 19.603 100,0% 142.971 100,0% 761.205 100,0%
þar af <250 19.531 99,7% 106.398 71,2% 534.291 66,1%