Morgunblaðið - 21.02.2018, Síða 23

Morgunblaðið - 21.02.2018, Síða 23
vinnustað seinni árin. Sumir segja að við séum „all in“ í því sem við tökum okkur fyrir hend- ur. Það á allavega vel við með fuglagildrurnar þínar, algjört lágmark að smíða sex stykki af hvoru og allar heimsins tegundir, skipti engu hvað það tók langan tíma eða hve mikið pláss þetta tæki. Svipað og þegar þú fórst með Margeiri í það að smíða felli- vagninn. Dýrustu kerru Íslands erum við að tala um – um það bil 20 ára gömul en er eins og ný enn þann dag í dag. Vinátta og traust hefur ávallt verið á milli okkar og sýndir þú mér mikið traust þegar þú fékkst mig til að taka við rekstri Véla- verkstæðisins síðustu árin. Renni ég hratt yfir þessar minn- ingar hér á blaði en heildarmynd- in mun lifa hjá mér alla mína ævi. Takk fyrir allt, elsku afi og nafni minn. Þinn Jón Gunnar (Jónki). Dagarnir bjóða ekki upp á förðun af neinu tagi, tárin fá að renna frjálst og furðulegustu hlutir sem verða á vegi mínum eru tilefni til nýrra flóða með til- heyrandi ekkasogum. Í gær var það beiskur brjóstsykur sem varð á vegi mínum sem varð að minningarunum sem engan enda ætluðu að taka, í dag voru það fuglarnir. En þá er um að gera að leyfa sér að syrgja og gráta því tárin eru plástur á sálina. Stundum er lífið svo örlátt, við tökum á móti gjöfunum sem hver dagur sendir okkur og oft án þess að taka eftir öllu litrófinu, gleym- um að staldra við og þakka auð- mjúk fyrir og muna að dagurinn í dag er einstakur og enginn veit hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Mikið sakna ég þín, elsku afi, og mikið er ég þakklát fyrir tím- ann okkar saman og allt sem þú kenndir mér. Í dag fór ég til ömmu á Svalbarðið og fannst eins og þú værir að koma og taka á móti mér með þínu einstaka faðmlagi sem var alltaf eins, „nei, ertu komin, elsku stelpan hans afa síns?“ Engu breytti þó ég sé orðin 43 ára. Ég fer til baka í huganum og minningarnar eru svo margar. Ég lítil í eldhúsinu á Svalbarðinu og þú að setja lýsi og tómatsósu út á fiskinn þinn á meðan dán- artilkynningar og jarðarfarir glumdu í útvarpstækinu, þetta þóttu mér notalegar stundir þó fiskurinn væri pest. Eftir matinn lagðir þú þig og stundum fékk ég að kúra hjá þér. Á kvöldin þegar þú komst heim úr vinnunni fórstu alltaf í bað og rakaðir þig og eftir raksturinn kallaðir þú „hver vill fá skeggkossinn?“ Ég fékk að deila kossinum með ömmu og angaði ég þá af Old spice það sem eftir lifði kvölds. Elsku afi, mig langar að þakka þér, þakka þér fyrir ástina og hlýjuna sem þú sýndir mér og börnunum mínum, þakka þér fyrir að hlýja alltaf skóna mína á ofninum þegar ég kom í heim- sókn, þakka þér fyrir að vera allt- af til staðar þegar ég þurfti á að- stoð að halda, þakka þér fyrir að heimili ykkar ömmu stóð mér alltaf opið, þakka þér fyrir ör- yggið og þakka þér fyrir að kenna mér mátt bænarinnar. Gulli og perlum að safna sér sumir endalaust reyna. Vita ekki að vináttan er verðmætust eðalsteina. Gull á ég ekki að gefa þér og gimsteina ekki neina. En viltu muna að vináttan er verðmætust eðalsteina. (Hjálmar Freysteinsson) Hvíldu í friði, elskan mín. Þín Hulda Lind. Það var sárt að heyra að Gunni frændi væri dáinn. Að vísu var andlátsfréttin í sjálfu sér ekki óvænt, en samt svo óendanlega sár. Og það var eins og eitthvað væri ógert og ósagt. Í hraða nú- tímans er það oft svo að samveru- stundir og símtöl sitja á hakan- um. Og nú blasir sú kalda staðreynd við að það verða ekki fleiri innlit eða símtöl. Það er erf- itt að kyngja því. Það voru skemmtilegar, en alltof fáar, stundir þegar Gunni kíkti við á Bakka. Þá sagði hann gjarnan sögur frá liðinni tíð og frásagn- argleði hans var slík að unun var á að hlýða. Jón Gunnar var alveg einstak- ur öðlingur, mannvinur og ljúf- menni. Hann var afar hjálpsamur og greiðvikinn og var alltaf tilbú- inn að aðstoða og greiða veg fólks og bjarga málunum, eins og hann átti kyn til. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Ég kveð kæran frænda með innilegu þakklæti fyrir allt. Unni, dætrunum og fjölskyld- um þeirra og öðrum ástvinum sendi ég mínar innilegustu sam- úðarkveðjur. Birna Jóhannesdóttir. Vini okkar ljósið lýsi á leið sem enginn sér, góða drenginn Guð nú hýsi, gekk hans veginn hér. Jón Gunnar var alltaf kallaður Gunni vinur á okkar heimili fyrir einlæga velvild í okkar garð og áhuga á öllu okkar, fyrir það þökkum við nú. Á þessum tímamótum koma upp í hugann óteljandi fuglaferðir þar sem Gunni vinur gaf ríkulega af sér við þá iðju að merkja fugla, smíðaði tæki og verkfæri óum- beðinn og mun sú vinna nýtast vel um langa framtíð. Ferðir okkar á Vatnsleysuströnd voru hans aðal enda lágu rætur hans þar og oft varð fuglaskoðun að bíða meðan hann yfirheyrði heimamenn sem urðu á vegi okkar: frá hvaða bæ ertu og hverra manna? Já, við eigum margar sögur en látum þetta nægja. Unnur, Kristjana, Linda, Hrafnhildur og fjölskyldur, við biðjum ykkur Guðs blessunar. Kæri vinur, farðu í Guðs friði og megi hið eilífa ljós vísa þér veginn. Helena Högnadóttir Ólafur Torfason. Með söknuði kveðjum við vin okkar Jón Gunnar Jóhannsson, hönnuð fuglabúranna. Jón Gunn- ar var lykilmaður í íslenska liðinu hjá Brent goose-fuglarannsókna- hópnum, og við allir eyddum mörgum tímum í að tala um fuglaveiðar og hvernig best væri að veiða þá. Þegar við heimsóttum Ísland tók hann alltaf á móti okkur með hlýju, gestrisni, gjafmildi og stóru brosi. Alltaf tilbúinn að gera allt sem hann gat til að hópnum gengi vel. Hann rak vélaverkstæði og var allra manna bestur í að leysa úr vandamálum. Við notum ennþá tækin sem hann hannaði við veiði og vinnslu. Honum fannst mjög gaman að fá okkur til að drekka brennivín og borða hákarl sem sumum okk- ar tókst að snæða. Engin áskorun var óyfirstígan- leg fyrir Gunna. Okkar árlega heimsókn til Íslands verður ekki eins án hans. Hans verður sárt saknað af okkur öllum. Fyrir hönd The Irish Brent Goose Research Group, Stuart Bearhop. MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018 ✝ Ásgeir Leifs-son fæddist 9. júlí 1941 á Laugum í S-Þingeyjarsýslu. Hann lést 7. febr- úar 2018 á Grund í Reykjavík. Foreldrar Ás- geirs voru Hrefna Kolbeinsdóttir hús- móðir, f. 7. maí 1907, d. 12. júní 1996, dóttir hjón- anna Kristínar Vigfúsdóttur og Kolbeins Þorsteinssonar skip- stjóra, og Leifur Ásgeirsson prófessor, f. 25. maí 1903, d. 19. ágúst 1990, sonur hjónanna Ing- unnar Daníelsdóttur og Ásgeirs Sigurðssonar bónda á Efstabæ í Skorradal. Systir Ásgeirs var Kristín, kennari og blaðamaður, f. 11. maí 1935, d. 3. mars 2001. Mað- ur hennar var Indriði Helgi Ein- arsson verkfræðingur, f. 8. ágúst 1932, d. 17. janúar 1975. Börn þeirra eru Einar tölvunar- fræðingur, f. 13. nóvember 1967, og Hrefna sjúkraþjálfari, f. 7. október 1969. lífmassafélagið og gegndi fram- kvæmdastjórastöðu þar um nokkurra ára skeið. Árið 2011 stofnaði Ásgeir fyrirtækið Hannibal ehf. ásamt Halldóri Ármannssyni, Valdimar K. Jóns- syni og Gesti Ólafssyni, en það fyrirtæki vann að framleiðslu á fljótandi eldsneyti með vistvæn- um orkugjöfum og fékk einka- leyfi á framleiðsluaðferð sinni hér á landi, í Mexíkó og Ník- aragva. Ásgeir kvæntist hinn 9. októ- ber 1965 Helgu Ólafsdóttur líf- eindafræðingi, f. 3. desember 1940 á Ísafirði. Foreldrar henn- ar voru Sigríður Jóna Þorbergs- dóttir húsmóðir, f. 2. desember 1899, d. 20. mars 1983, og Ólaf- ur Helgi Hjálmarsson vélvirki frá Látrum í Aðalvík, f. 14. nóv- ember 1895, d. 17. júní 1974. Börn þeirra eru Leifur Hrafn pípulagningamaður, f. 17. mars 1975, og Ylfa Sigríður verk- fræðingur, f. 23. apríl 1976. Sambýlismaður Ylfu er Daniele Quaglia verkfræðingur, f. 30. júní 1983, barn þeirra er Davíð Helgi Daníelsson Quaglia, f. 18. október 2015. Útför Ásgeirs fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 21. febr- úar 2018, kl. 13. Ásgeir varð stúdent árið 1961 frá stærðfræðideild Menntaskólans í Reykjavík. Hann lauk fyrrihluta- prófi í verkfræði frá verkfræðideild Háskóla Íslands ár- ið1964, var auk þess eitt ár í viðskiptadeild HÍ til 1965. Hann tók svo lokapróf í hagverkfræði (Dipl.Ing., Technische Betri- ebswirtschaft) frá Universität Karlsruhe árið 1970. Ásgeir var framkvæmdastjóri Fiskrétta hf. á árunum 1970-73, eftir það verkfræðingur og deildarverkfræðingur við Iðn- tæknistofnun Íslands 1973-84. Aðjúnkt og stundakennari við HÍ 1978-82, rak eigin ráðgjaf- arstofu í nýstofnun fyrirtækja 1984-87. Iðnráðgjafi hjá Iðnþró- unarfélagi Þingeyinga frá 1988- 92, sjálfstætt starfandi frá 1992, stofnaði og rak leirböð í Laug- ardal 1994-97. Stofnaði ásamt Baldri Líndal árið 1997 Íslenska Faðir minn ólst upp á Hverf- isgötunni og átti þar hamingju- sama æsku með fjölmennum frændgarði og góðum félögum. Hann fluttist ásamt foreldrum sínum til Bandaríkjanna um tíma á unglingsaldri, meðan faðir hans kenndi við New York University og Berkeley og var hann eftir það hrifinn af köggum, djassi, the Rat Pack og gospeli, vestrum og fleiru amerísku. Hann ætlaði alltaf að fá sér 18 gallona kúrekahatt að hætti Jóns væna. Pabbi gekk þar í skóla og eftir veturinn var hann kvadd- ur með virktum af skólafélögum og færð forláta veiðistöng að gjöf. Svo breyttust áætlanir fjölskyld- unnar og hann mætti aftur til náms haustið eftir það, öllum að óvörum, og minntist hann þess ekki að hafa verið kvaddur með sömu viðhöfn í seinna skiptið. Pabbi var alltaf áhugasamur um myndavélar, hann átti kvik- myndatökuvél á þessum árum, og eru til myndskeið frá dvöl hans ytra, sem og frá öðrum skeiðum lífs hans, sem einstaklega gaman er að. Hann var hár og myndarlegur með sérlega fallegt rautt hár, og hafði tekið út fullan vöxt um ferm- ingaraldur. Amma mín, Hrefna, mun hafa óttast að hann yrði risi, en það var sagt þegar móðurfólk hans fluttist að Grund í Skorradal forðum daga að það væri höfði hærra en þeir sem bjuggu fyrir í sveitinni. Hann hafði gott skopskyn og gat hlegið innilega að því sem hon- um þótti fyndið, og eins var hann skemmtilegur viðræðu og gat ver- ið háðskur. Hann var greindur, víðsýnn og fordómalaus, og gat iðulega bent á aðra sýn á menn og aðstæður en aðrir sáu. Hann var fróður, vel lesinn og áhugasamur um flest mannlegt, og fylgdist vel með atburðum líðandi stundar. Pabbi stundaði nám í Þýska- landi í fimm ár, og hljómaði jafnan þýsk jólatónlist hjá okkur fjöl- skyldunni hver jól. Hann hafði gaman af eldamennsku, var frum- legur í matargerð og var annálað- ur sósugerðarmaður. Hann hafði á barnsaldri verið í sveit hjá föðurfólki sínum á Reykjum í Lundarreykjadal, og hafði gaman af dýrum. Hann var mikill kattavinur, og gekk undir fyrsta kettinum okkar, honum Högna, þó að sækja þyrfti ýsuna í soðið yfir þveran bæinn í öllum veðrum. Pabbi naut þess að ferðast og fórum við fjölskyldan saman í mörg minnisstæð og oft flókin ferðalög af því að hann vildi sjaldnast fara beinustu leiðina. Hann tók vel á móti ítölskum sambýlismanni mínum, Daniele, og ræddi oft við hann um sín helstu áhugamál, sem voru m.a. á sviði endurnýjanlegrar orku. Barnbarn hans, Davíð Helgi, var honum gleðigjafi og fór vel á með þeim. Þeir félagarnir kubb- uðu saman fínustu skýjaborgir. Síðustu árin voru pabba erfið, en hann mátti berjast við heilsu- brest. Hann hafði þó mikið jafn- aðargeð og var jafnan æðrulaus, og hélt andlegu þreki sínu þrátt fyrir veikindin. Ég kveð pabba með söknuði með ljóðabroti úr „Kveðju“, sem var í uppáhaldi hjá honum, og er eftir föðurbróður hans Magnús Ásgeirsson: En minning þín er mjúk og hlý og mun oss standa nærri. Með hverju vori hún vex á ný og verður ávallt kærri. En lífsins gáta á lausnir til, þær ljóma á bak við dauðans þil. Og því er gröfin þeim í vil, sem þráðu útsýn stærri. Ylfa Sigríður Ásgeirsdóttir. Ásgeir Leifsson var sérstakur maður. Ég kynntist honum fyrst vel í landsprófsdeildinni og ennþá man ég eftir málfundi þar sem honum fannst skólastjórinn okkar ekki fara með rétt mál. Ég bauðst til að skokka með honum upp á Hverfisgötu, þar sem hann átti heima, til að ná í bókina Blekking og þekking, svo hann gæti leiðrétt skólastjórann, sem hann hikaði ekki við. Ekki hefðu margir af mínum kunningjum á þessum ár- um lagt svona mikið á sig í þjón- ustu sannleika og réttlætis. Í minningunni er ennþá líka næturferð nokkurra skólabræðra upp í Hvalstöðina í Hvalfirði til að heilsa upp á Halldór Blöndal sem þá vann þar myrkranna á milli við að skera hval. Faðir Ásgeirs átti firnastóran Nash-fólksbíl sem hann hafði flutt hingað frá Banda- ríkjunum og það dæmdist á mig, þar sem ég var mest edrú, að aka þessu ferlíki, en foreldrar Ásgeirs voru erlendis. Aksturinn á malar- vegum Hvalfjarðar og eimskýin sem stigu upp frá hvalskurðinum þessa nótt eru ennþá í fersku minni, en allt bjargaðist þetta ein- hvern veginn. Leiðir skildi þegar við fórum báðir utan til náms, en mörgum árum seinna fórum við sí svona að ræða um að lítill mannsbragur væri á því að tala bara um loft- mengun frá alls konar umferð en gera lítið í málinu. Þjóðverjum hefði tekist í síðasta stríði að búa til fljótandi eldsneyti úr sykurróf- um og kartöflum og við ættum líka að geta búið til vistvænt elds- neyti úr ódýru kolefni og allri þeirri vistvænu orku sem hér væri til staðar. Ásamt félögum okkar stofnuðum við fyrirtækið Hanni- bal sem eignaðist einkaleyfi á ákveðinni framleiðsluaðferð á fljótandi eldsneyti bæði á Íslandi, Mexíkó og Níkaragúa. En kálið var ekki sopið þótt það væri komið í ausuna. Í fámennu landi þar sem meira er lagt uppúr skyndigróða en framsæknu vísindastarfi er erfitt að brydda upp á nýmælum. Með lágu bensínverði frestuðust líka framkvæmdir, en Ásgeir hélt áfram til síðasta dags að fylgjast með tækniframförum á þessu sviði. Hann benti okkur félögun- um m.a. nýlega á að meira en 90% af öllu kolefni á jörðinni væri í sjónum og nú væri að verða til tækni til þess að vinna þetta kol- efni sem skapaði okkur alveg nýja möguleika. Enginn veit hvað framtíðin ber í skauti, en ég er viss um að það myndi gleðja Ásgeir mikið ef okk- ur tækist einhvern tíma að koma þessari framleiðslu af stað. Innilegar samúðarkveðjur. Gestur Ólafsson. Þegar mér bárust fréttir af andláti Ásgeirs brá mér verulega og rifjuðust upp ýmsar minningar um þau tæp 70 ár sem eru liðin frá því við Ásgeir hittumst fyrst og það eru engin undur að maður sakni vinar við fráfall eftir allan þennan tíma. Ég kynntist tveimur góðum vinum mínum, Eggerti Jónssyni og Ásgeiri, þegar ég kom átta ára gamall í E-bekkinn í Miðbæjar- skólanum. Síðan þá höfum við þrír verið vinir eða í tæp 70 ár. Nú eru þeir báðir fallnir frá með árs milli- bili. Á æsku- og unglingsárum okkar vorum við Ásgeir óaðskilj- anlegir og ég var heimagangur á æskuheimili hans á Hverfisgötu 53. Við brölluðum ýmislegt saman á unglingsárum okkar og vorum ekki alltaf sammála, en þrátt fyrir ágreining í ýmsum málum tókst okkur alltaf að ná saman að lok- um. Eftir að við stofnuðum fjöl- skyldu héldum við áfram okkar góða sambandi. Við Hanna sendum Helgu, Ylfu og Leifi okkar innilegustu samúð- arkveðjur. Jón H. Magnússon. Ásgeir Leifsson var sonur pró- fessors Leifs Ásgeirssonar stærð- fræðings og Hrefnu Kolbeinsdótt- ur. Leifur kenndi stærðfræði við verkfræðideild Háskóla Íslands frá upphafi og var einn af mátt- arstólpum deildarinnar frá stofn- un. Það þarf ekki að koma á óvart að Ásgeir hafi lært verkfræði. Faðir hans var þekktur fyrir mikla vinnusemi svo að ef til vill valdi Ásgeir verkfræðina til að geta verið honum nærri. Líkt og faðir sinn hlaut Ásgeir framhalds- menntun í Þýskalandi en heimur- inn tók stakkaskiptum á þeim tíma sem leið þar á milli. Kynni okkar af Ásgeiri voru í gegnum Ylfu dóttur hans og bestu vinkonu okkar. Ásgeir var litríkur og skemmtilegur. Það var gaman að ræða við hann. Hann lá ekki á skoðunum sínum en hlustaði líka. Ef maður vissi ekki alveg hvar maður hafði hann mátti sjá bros- vikin færast örlítið upp á við og þá vissi maður að hann gat verið létt að stríða. Við höfðum ekki mikil kynni af Ásgeiri. Það er ekki síst vegna þess að fyrir þónokkrum árum veiktist hann sem dró verulega úr honum máttinn. Hann hélt þó ávallt áfram að vinna að hugðar- efnum sínum sem meðal annars snérust um notkun lífmassa til umhverfisvænnar orkufram- leiðslu þar sem hann hafði nýstár- legar og stórhuga hugmyndir. Elsku Ylfa og fjölskylda, Leifur og Helga. Hugur okkar eru hjá ykkur. Ykkar vinir. Tamara Lísa Roesel og Þorgils Völundarson. Ásgeir Leifsson Bróðir okkar og mágur, JÓN SIGURJÓNSSON, Efri-Holtum, Vestur-Eyjafjöllum, lést á heimili sínu sunnudaginn 11. febrúar. Útförin fer fram frá Ásólfsskálakirkju laugardaginn 24. febrúar klukkan 14. Unnur Jóna Sigurjónsdóttir Oddur Sæmundsson Kristbjörg Sigurjónsdóttir Sigríður Einarsdóttir (Silla)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.