Morgunblaðið - 21.02.2018, Page 26

Morgunblaðið - 21.02.2018, Page 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2018 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Bára Agnes Ketils-dóttir, hjúkr-unarfræðingur í Blóðbankanum og MA í mannauðsstjórnun, á 50 ára afmæli í dag. Hún hefur starfað á Landspít- alanum í 24 ár og hefur umsjón með blóðflögu- gjöfum og heimasíðu Blóðbankans. „Blóð- flögugjafar vinna mjög merkilegt sjálfboðaliða- starf, þeir koma á fimm vikna fresti og gefa flög- ur allt upp í tvo klukku- tíma í senn, sem er magn- að, ég er einlægur aðdáandi þeirra. Það eru aðeins um 200 manns sem sjá um að gefa blóð- flögur á öllu landinu, þeir þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði og gefa áttfaldan skammt á við venjulegan blóðgjafa.“ Bára er mikil útivistarmanneskja og stofnaði ásamt manni sínum fjallgönguklúbbinn Toppfara árið 2007. „Það eru um 80 manns í hon- um og við göngum á fjöll einu sinni til tvisvar í viku allt árið um kring í öllum veðrum. Mjög metnaðarfullur og glaður hópur sem eru for- réttindi að ganga með. Við bjóðum líka upp á óbyggðahlaup og í tilefni afmælisins ætla ég að hlaupa á 50 ólík fjöll á árinu. Ég er búin að ná að smita um 30 manns með mér í þetta.“ Bára var einmitt að koma af Mosfelli þegar blaðamaður ræddi við hana í gær og var það fjall númer átta á árinu. „Ég er í vinnufríi því ég ætlaði að hlaupa upp á fjall í sveitinni minni sem er okkar paradís á jörð, en verð að sleppa því vegna veðurs. Ég ætla samt að reyna að fara á fjall á afmælisdaginn þótt það verði brjálað veður, fer bara ein með hundinn. Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri.“ Bára fagnaði einnig tímamótunum með því að fara í fjöl- skylduferð til Taílands núna í janúar. Eiginmaður Báru er Örn Gunnarsson, sem rekur eigið bókhalds- fyrirtæki, Arnarsetur ehf. Sonur þeirra er Hilmir, 13 ára, Íslands- meistari Fjölnis í körfubolta. Fyrir átti Örn soninn Gunnar Mána, 25 ára verslunarstjóra í Macland, og Bára soninn Arnar Jónsson, sem er 28 ára. „Hann útskrifast með meistarapróf í hagfræði næstu helgi og gefur mér það í afmælisgjöf. Svo gefa þau Sigrún Alda tengdadóttir mér aðra afmælisgjöf síðar á árinu, en þá verð ég amma í fyrsta sinn og það er besta hugsanlega gjöfin í lífinu.“ Áfram Fjölnir! Bára og Örn ásamt Hilmi. Hleypur á fimmtíu fjöll á árinu Bára Agnes Ketilsdóttir er fimmtug í dag S igrún fæddist í Hafnarfirði 21.2. 1948 en flutti fjög- urra ára til Reykjavíkur. Hún var í sveit að Öldu- hrygg í Svarfaðardal öll æskuárin en á unglingsárunum starf- aði Sigrún á sumarhóteli sem móðir hennar starfrækti í Grundarfirði. Sigrún gekk í Melaskóla og Haga- skóla og lauk stúdentsprófi frá VÍ 1968. Hún stundaði nám við Leiklist- arskóla Þjóðleikhússins og útskrif- aðist þaðan leikari 1970. Sigrún var ritari á rannsóknar- stofnun fyrir hálfleiðaratækni við Tækniháskólann í Aachen í Þýska- landi, las leikhús-, kvikmynda- og sjónvarpsfræði við Kölnarháskóla og flutti síðan aftur heim til Íslands 1978. Hún hefur síðan sinnt menning- armálum við fjölmargar menningar- stofnanir, einkum sem leikstjóri meira en 50 leiksýninga, með at- vinnu- og áhugafólki, hér á landi og í Færeyjum. Hún hefur auk þess sinnt þýðingum og samið leikverk. „Ég hef lengst af kosið að vinna í lausamennsku en meðfram leikstjórn og formennsku í ýmsum samtökum leikhúsfólks var ég þó fastráðin hér og þar. Ég var framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra leikfélaga í sex ár, leikhússtjóri Alþýðuleikhússins í nokkur ár og deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneytinu í tvö ár, framkvæmdastjóri erlendra verkefna þegar Reykjavík var Menningarborg Evrópu árið 2000 og næstu fjögur ár- in var ég kynningarstjóri í Borgar- leikhúsinu.“ Sigrún var forseti Leiklistar- sambands Íslands og formaður Leik- listarsambands Norðurlanda, for- maður Norrænu leiklistar- og dansnefndarinnar og var fulltrúi Norðurlandanna í Alþjóða áhugaleik- húsráðinu í átta ár. Loks hefur Sig- rún kennt við ýmsa leiklistarskóla áhugaleikara, á Íslandi, í Færeyjum og í Svíþjóð. Sigrún hefur verið leiðsögumaður þýskra hópa í rúm 20 ar, einkum í óbyggðum. Hún stundaði nám við Leiðsöguskólann í Kópavogi fyrir 12 árum og hefur verið aðalkennari verðandi gönguleiðsögumanna við Sigrún Valbergsdóttir, leikstjóri og leiðsögumaður – 70 ára Fjölskyldan samankomin Sigrún og Gísli Már, ásamt móður Sigrúnar, börnum, tengdabörnum og barnabörnunum. Leikstjórn og leiðsögn um hálendi Íslands Frumsýning Sigrún og leikkon- urnar í Glæpir og góðverk sem var frumsýnt á Selfossi sl. föstudag. Guðlaugur Heiðar Sigurgeirsson er 70 ára í dag. Hann fagnar í góðra vina hópi um þarnæstu helgi. Árnað heilla 70 ára Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.