Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 11

Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 Skoðið laxdal.is/yfirhafnir Skipholti 29b • S. 551 4422 VOR- FATNAÐUR FYRIR ALLAR VORVEISLURNAR Sama verð og á hinum norðurlöndunum Útsöluvörur (buxur, pils, jakkar) kr. 3.900/4.900 TILBOÐS- DAGAR 20% AFSLÁTTUR Miðvikudag til laugardags Við erum á facebook Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Síðar skyrtur Kr. 10.900 Str. 38-56 Fleiri litir Skeifan 8 | 108 Reykjavík | sími 517 6460 | www.belladonna.is Alltaf eitthvað nýtt og spennandi Str. 38-58 Nýjar vörur streyma inn Holtasmári 1 201 Kópavogur sími 571 5464 Str. 38-52 Við erum á Facebook Laugavegi 82 | 101 Reykjavík Sími 551 4473 Útsala Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Gjaldtaka á stæði fyrir hópferða- bifreiðar við Flugstöð Leifs Eiríks- sonar hefst í dag. Samtök ferða- þjónustunnar (SAF) funduðu um gjaldtökuna í gær og skoruðu á Isavia að fresta gildistöku hennar að lágmarki á meðan Samkeppn- iseftirlitið hefði gjaldtökuna til skoðunar. Samtök ferðaþjónust- unnar telja þar að auki gjaldið allt of hátt miðað við sambærilega gjaldtöku annarra flugstöðva í Evr- ópu og fyrirvarann of stuttan, en tilkynnt var um gjaldtökuna í lok síðasta árs. Þá hafa SAF einnig gagnrýnt samráðsleysi við ákvörð- un gjaldsins. Gjald verður rukkað fyrir stæði hópferðabifreiða sem aka farþeg- um frá Keflavíkurflugvelli. Gjaldið fyrir bifreiðar sem taka allt að 19 farþega verður 3.200 kr. fyrir hvert skipti, 8.900 kr. skiptið fyrir 20-45 farþega rútur og 12.900 kr. fyrir rútur stærri en 46 farþega. Verðskráin mun hækka 1. sept- ember næstkomandi. Á félagsfundi hópbíla-, ferða- skrifstofu- og afþreyingarfyr- irtækja innan SAF var samþykkt að senda erindið til Isavia og segir þar að mikilvægt sé að eyða allri óvissu um lögmæti umræddra gjalda, þ.m.t. álitamálum um gagnsæi og forsendur gjaldanna, áður en gjald- taka komi til framkvæmda. as- h@mbl.is Gjaldtaka hefst á rútustæðunum í dag Morgunblaðið/Kristinn Gjaldheimta Frá og með deginum í dag verður innheimt gjald á rútur sem sækja farþega á Keflavíkurflugvöll. Upphæðin fer eftir stærð rútunnar. Guðmundur Helgi Þórarinsson vél- fræðingur býður sig fram gegn Guð- mundi Ragnarssyni, núverandi for- manni, í formannskjöri í VM – Félagi vélstjóra og málmtækni- manna, sem fram fer í mars og apríl. Kosið verður til formanns fyrir tímabilið 2018 til 2022 og til stjórnar fyrir tímabilið 2018 til 2020. Guðmundur gefur kost á sér til áframhaldandi formennsku en hann hefur verið formaður félagsins frá 2008. Hann segir m.a. í pistli á vef- síðu VM að þrátt fyrir mikla ólgu í samfélaginu hafi frá því að hann tók við sem formaður m.a. verið unnið markvisst að uppbyggingu félagsins og að því auka réttindi félagsmanna. Guðmundur Helgi sem hefur verið fulltrúi í aðalstjórn VM og þar áður um árabil í stjórn Vélstjórafélags Ís- lands segir m.a. í kynningu á fram- boði sínu að fara þurfi aðrar leiðir til að ná betri árangri í kjaramálum. ,,Hvað fiskiskipin varðar þá er ljóst að ef menn ætla að halda haus verða menn að fara að snúa bökum saman og koma fram sem ein heild.“ Kosningin verður rafræn og fer fram 21. mars til 22. apríl. Guðmundur fær mótfram- boð í VM  Rafræn kosning um formann og stjórn Styrkur svifryks (PM10) fór mjög hækkandi í Reykjavík í gær, sam- kvæmt mælingum í mælistöðvum við Grensásveg, Hringbraut og Eiríks- götu. Þannig var t.a.m. klukkan 11 hálftímagildi svifryks við Grens- ásveg 118 míkrógrömm á rúmmetra. Í mælistöð við Hringbraut var hálf- tímagildið á sama tíma 154 míkró- grömm á rúmmetra og við Eiríks- götu 74 míkrógrömm á rúmmetra. Þá fór mengunin yfir borginni ekki framhjá þeim sem voru á ferð- inni í gær, en greina mátti gula og mikla mengunarslikju yfir öllu höfuðborgarsvæðinu um tíma. Hægt er að fylgjast með loft- mengun á heimasíðu Reykjavíkur- borgar auk þess sem þar er einnig kort yfir mælistaði í borginni. Mikil meng- un í borginni Fasteignir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.