Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 39

Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 39
FRÉTTIR 39Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Guðmundur Jóelsson, löggiltur end- urskoðandi, kveðst afar ósáttur við skriflegt svar Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hér í Morgun- blaðinu fyrir réttri viku, þar sem ráð- herrann var spurð hvernig hún hygð- ist bregðast við tillögu endurskoðendaráðs í þriðja sinn, um að Guðmundur yrði sviptur stjórnar- skrárvörðum starfsréttindum sínum, en forveri hennar í starfi, Ragnheið- ur Elín Árnadóttir, hafði áður í tví- gang hafnað tillögu ráðsins. Gengið út frá ósannindum Guðmundur telur að hið skriflega svar ráðherrans sé hreinlega eins og það sé samið af endurskoðendaráði. „Meira að segja er gengið út frá ósannindunum sem ráðið hefur aftur og aftur borið fram, þ.e. að ég hafi neitað að gangast undir gæðaeftirlit. Það eru hrein ósannindi – ég hef þvert á móti oft lýst mig fúsan til slíks á grund- velli gildandi góðrar endur- skoðunarvenju. Svar mitt hefur ráðið ítrekað skráð sem neitun um eftirlit,“ segir Guðmundur. Þetta segir Guðmundur að ráðið hafi aftur og aftur staðhæft án þess að geta að nokkru, hvers vegna eft- irlitið fór ekki fram, sem valdi síðan algjörri rangtúlkun á staðhæfing- unni. Guðmundur sagði jafnframt: „Það er því ansi dapurt að lesa það, haft eftir ráðherranum í setningunni „Ég fæ ekki séð að hægt sé að víkja sér undan lögbundnu eftirliti …,“ o.s.frv. að þar sé gefið sé í skyn að ég sé að reyna að víkja mér undan eftirliti. Það hef ég aldrei gert. Það eru ein- mitt þessi tvö orð – lögbundið eftirlit – sem ágreiningurinn er um, hvernig skuli túlka,“ sagði Guðmundur. Ráðið fallið á prófinu í þrígang „Eins og margoft hefur komið fram, þá er endurskoðendaráð í þrí- gang búið að falla á prófinu um með- allhófsregluna og enn hefur áminn- ing á mig vegna eftirlits ekki litið dagsins ljós,“ sagði Guðmundur Jó- elsson, löggiltur endurskoðandi, að lokum. Segist aldrei hafa vikið sér undan eftirliti  Guðmundur Jóelsson, löggiltur endurskoðandi, ósáttur við svar iðnaðar- og nýsköpunarráðherra Guðmundur Jóelsson Nánari upplýsingar og streymi frá fundinum má finna á reykjavik.is/lodauthlutanir Uppbygging í Reykjavík Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson, býður til opins fundar um lóðaúthlutanir, uppbyggingu íbúða og atvinnustarfsemi. Fundurinn sem er öllum opinn verður haldinn föstudaginn 2. mars kl. 9.00-11.00 í Ráðhúsi Reykjavíkur. Á fundinum verða kynntar nýjar lóðir sem eru tilbúnar til úthlutunar. Þá kynnir borgarstjóri næstu þróunarsvæði og fer yfir hugmyndir að því hvernig auka megi samstarf við þróunar- og uppbyggingaraðila. Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur hjá Íbúðalánasjóði, flytur erindi um stöðu mála á húsnæðismarkaði. Lóðaúthlutanir og ný byggingarsvæði POTTAR & PÖNNUR 20-50% afsláttur Talent Pro 30% Gerið góð kaup! 8304 20cm steikarpanna djúp f. span 8308 24 cm Ferköntuð steikarpanna f. span 50% 50% Lágmúla 8 • sími 530 2800 Minnum á að Samsung-setrið er nú flutt í Lágmúlann og er því með sama opnunartíma, virka daga kl. 10-18 og laugardaga 11-15. Gerið góð kaup! kr. 7.990,- JAMIE OLIVER panna 30 cm - Á TILBOÐI Áður kr. 12.900,- Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Tvær flóttamannafjölskyldur frá Írak flugu vestur á firði í gær til að setjast að á heimilum sínum, en Morgunblaðið fjallaði um móttöku kvótaflóttamanna til Íslands í gær. Fjölskyldurnar lentu á flugvell- inum á Ísafirði um kl. 10.30 í ágætu veðri, en starfsmenn og sjálf- boðaliðar Rauða krossins tóku á móti þeim og færðu til mótttöku í húsnæði Rauða krossins á Ísafirði. Kona með tvö eldri börn mun setj- ast að á Ísafirði og önnur með fimm yngri börn sest að á Súðavík. Tekið var á móti þeim í húsnæði Rauða krossins á Ísafirði þaðan sem þau fóru síðan heim til sín. Buðu upp á te og með því Að sögn Bryndísar Friðgeirs- dóttur, svæðisfulltrúa Rauða kross- ins á Ísafirði, gekk ferðin vel og fjöl- skyldurnar ánægðar með mótttökurnar og húsnæðið sitt. „Eftir mótttökuna var okkur og nokkrum Ísfirðingum boðið beint í tesopa, ávexti og brauð heim til þeirra. Þau eru merkilega afslöppuð eftir allt þetta ferðalag. Fram undan er svo fræðsla hjá félagsþjónustunni og verkefnisstjóra móttöku flótta- manna. Rauði krossinn er svo með stuðningsliða fyrir þau, en ofboðs- lega margir gáfu sig fram í það. Mjög margir eru spenntir og vilja hjálpa til hérna fyrir vestan.“ Bryndís segir að eftir viku komi síðan þrjár fjölskyldur frá Sýrlandi til Flateyrar. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Komin Fjölskyldurnar sem flugu heim til sín á Ísafirði og Súðavík í gær. Tvær íraskar fjöl- skyldur komnar heim  Setjast að á Súðavík og á Ísafirði Móttaka Kynningarefni til lestrar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.