Morgunblaðið - 01.03.2018, Qupperneq 74
74 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
Lettneska fiðlustjarnan Baiba Skride
er einleikari á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar Íslands í Hörpu í kvöld, í
fiðlukonserti Roberts Schumanns í
D-moll. Verður þetta í fyrsta skipti
sem konsertinn hljómar á tónleikum
hér á landi. Þetta verður í annað sinn
sem Skride kemur fram með hljóm-
sveitinni en margir minnast glæsilegs
flutnings hennar á fiðlukonserti eftir
Beethoven árið 2015. Rýnir Morgun-
blaðsins lofaði frammistöðuna þá,
meðal annars kadensurnar sem voru
„forkunnarvel leiknar, ýmist lauf-
liðugar sem iðandi straumfiskar í olíu
eða undurþýðar úr greinilega úrvals-
hljóðfæri“. Þess má geta að Skride
leikur á fiðlu smíðaða af Stradiv-
ariusi.
Stjórnandi á tónleikunum nú, eins
og síðast þegar Skride kom hér fram,
er hinn norski Eivind Aadland. Önn-
ur verk á efnisskránni eru Sinfóníetta
II eftir Jónas Tómasson, sem hljómar
nú í fyrsta sinn og hefur undirheitið
„Laxárdalur - Til Siggu“, og sjálf Sin-
fónía nr. 5 eftir Ludwig van Beetho-
ven, Örlagasinfónían. Eitt dáðasta og
kunnasta tónverk allra tíma.
Þarf orku og einlæga ást
Saga þessa eina fiðlukonserts
Schumanns, sem Skride leikur, er
merkileg en hann var ein af hans síð-
ustu mikilfenglegu tónsmíðum. Tón-
skáldið samdi konsertinn árið 1853,
skömmu fyrir andlátið, en í 80 ár var
hann þó aðeins kunnur í þröngum
hópi fólks og ekki fluttur opinberlega
fyrr en árið 1937, af Georg Kulen-
kampff með Fílhamóníuhljómsveit
Berlínar. Yehudi Menuhin flutti hann
síðan tæpum tveimur vikum síðar í
New York, í útgáfu fyrir fiðlu og pí-
anó.
Baiba Skride er nú einn eftirsótt-
asti ungi fiðluleikarinn í Evrópu og
þeytist landa á milli allan veturinn,
með tónleika á hinum ýmsu stöðum
nær vikulega. Þá hefur hún hljóðritað
Tónlistin er djúp
og gullfalleg;
heillandi tónsmíð
Hin lettneska Baiba Skride leikur
fiðlukonsert Schumanns með SÍ í kvöld
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Kvikmyndahátíðin Stockfish verður
sett í Bíó Paradís í kvöld með sýn-
ingu á kvikmyndinni An Ordinary
Man með Heru Hilmarsdóttur og
Ben Kingsley í aðalhlutverkum og
verða Hera og leikstjóri myndar-
innar, Brad Silberling, viðstödd sýn-
inguna. Hera er líklega orðin þekkt-
asti kvikmyndaleikari Íslands og
mun næst sjást í einu af aðalhlut-
verkum Mortal Engines, kvik-
myndar sem fellur í flokk vísinda-
skáldskapar og er af dýrustu gerð
enda framleidd af leikstjóranum
Peter Jackson, þeim sama og gerði
kvikmyndirnar upp úr Hringa-
dróttinssögu og Hobbitanum.
Í leit að skilningi
Þrátt fyrir miklar annir gaf Hera
sér tíma til að svara spurningum
blaðamanns í byrjun viku og var hún
fyrst beðin um að segja frekar frá
söguþræði An Ordinary Man, þar
sem litlar upplýsingar um hann væri
að finna á netinu. Það eina sem stæði
þar væri á þá leið að hún léki hús-
hjálp eftirlýsts stríðsglæpamanns,
sem Kingsley leikur, og að samband
þeirra yrði nánara eftir því sem leit-
in yrði ákafari að honum. Stríðs-
glæpamaðurinn, kallaður hershöfð-
inginn, áttaði sig smáma saman á því
að hún væri eina manneskjan sem
hann gæti treyst.
–Hvað geturðu sagt mér meira um
efni myndarinnar og hversu mikið
máttu segja?
„Myndin fjallar í grófum dráttum
um þekktan stríðsglæpamann í fel-
um og unga konu sem birtist einn
daginn á felustað hans. Eftir sitja
nokkrir dagar í lífi þeirra saman.
Myndin gerist í samtíma okkar en
vísar til þeirra atburða sem gerðust í
Júgóslavíustríðinu og var öll tekin
upp í Serbíu,“ segir Hera. Á fáeinum
dögum sé fylgst með fulltrúa ungu
kynslóðarinnar, konunni, krefjast
svara af fulltrúa eldri kynslóðar-
innar, karlsins, hvað varðar gjörðir
hans gegn fólkinu þeirra. Skyggnst
sé inn í þann lúmska karllæga heim
margra kvenna, bæði í einkalífi og
starfi, sem ógerlegt sé fyrir þær að
komast út úr og hvernig þær þurfi að
taka því með reisn hvern einasta dag
til að halda styrk sínum eða hrein-
lega lífi sínu. Myndin sé undir-
liggjandi heldur pólitísk en í grunn-
inn saga tveggja manneskja í leit að
skilningi á hegðun hvor annarrar.
Ekki ástarsaga
–Af stiklunni að dæma fer kvik-
myndin að miklu leyti fram í íbúð
hershöfðingjans. Er þetta stofu-
drama?
„Að hluta til, að öðru leyti alls
ekki,“ segir Hera.
–Lýsingin bendir til þess að sið-
ferðislegum spurningum sé varpað
fram í myndinni og spurningum um
sekt og sakleysi. Hver er kjarni sög-
unnar og hvaða spurningum er verið
að leita svara við?
„Hvað getum við réttlætt fyrir
okkur sjálfum sem nauðsynlega
hegðun fyrir málstað sem við trúum
á? Hvar liggja mörkin? Er mann-
eskja sem framkvæmir hroðaverk
skrímsli eða er hún útgáfa af okkur
sjálfum? Getum við séð mun á
„vondu“ fólki og „góðu“? Jafnvel
þótt við viljum það? Getum við
gleymt hryðjuverkum manneskju
þegar við kynnumst henni, séð
manneskjuna í nýju ljósi og jafnvel
gleymt því sem hún hefur gert? Eða
kannski einungis komist nær því að
skilja hvað leiðir fólk áfram og
ákvarðar hegðun þess?“ svarar
Hera. „Þegar ég las handritið að
myndinni fangaði það mig einmitt
hversu mikið hún lifir á gráa svæð-
inu, hversu mikið hún lifir í augna-
blikinu milli þessara tveggja mann-
eskja, þó svo fortíðin setji skugga á
stað og stund hverju sinni.“
–Þú leikur húshjálpina, er hún í
raun fangi hershöfðingjans?
„Það kemur í ljós í myndinni,“
svarar Hera og vill, eðlilega, ekki
segja of mikið um söguþráðinn.
En fella þau hugi saman, er þetta
ástarsaga um leið? „Nei, þetta er
ekki ástarsaga eldri karlmanns og
ungrar stúlku, eins og svo oft, ég
held að það sé ágætt að taka það
fram. En samband þeirra er raf-
magnað, samt sem áður.“
Titillinn varpar fram
spurningum
–Þessi maður er allt annað en
venjulegur, ekki satt? En vill vænt-
anlega láta líta út fyrir að svo sé?
„Ég myndi segja að titill myndar-
innar kasti fram spurningum um
hvað sé venjulegt fyrir okkur hvað
varðar karakter, gjörðir, útlit, lifn-
Rafmagnað samband
Hera Hilmarsdóttir leikur á móti Ben Kingsley í opnunarmynd kvikmyndahátíðarinnar Stockfish,
An Ordinary Man „Nánd í sögu og samstarfi,“ segir Hera um samvinnu þeirra Kingsley
Gott samstarf Hera Hilmarsdóttir og Ben Kingsley í einu atriða An Ordinary Man. Hera segir samstarf þeirra hafa verið afar gott og náið.