Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 34

Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is Sími: 535 9000 | bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð Vottaðir hágæða VARAHLUTIR í flestar gerðir bifreiða Siðan 1962 Bílanaust er einnig í Kópavogi – Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Stóra breytingin á hrygning- argöngu loðnunnar er að umtalsvert magn hrygndi fyrir norðan í fyrra- vetur,“ segir Þorsteinn Sigurðsson, sviðsstjóri uppsjávarlífríkis á Haf- rannsóknastofnun. Hann segir að hluti stofnsins hafi í fyrravetur verið fyrir norðan í stað þess að ganga réttsælis með landinu til hrygningar í Faxaflóa og Breiðafirði. Vísbend- ingar séu um sömu þróun í vetur og miðað við hvernig loðnan hagi sér þessa dagana bendi það til að hún hrygni þar. Síðdegis í gær sendi Hafrann- sóknastofnun frá sér fréttatilkynn- ingu þar sem segir að loðnumæl- ingar í febrúar breyti ekki fyrri ráðgjöf. Óvanalegt í sögulegu samhengi „Ef miðað er við árið í fyrra hefur þetta ekki verið ósvipað í vetur,“ segir Þorsteinn. „Hins vegar er þetta óvanalegt miðað við það sem við þekkjum í sögulegu samhengi. Ýmsar vangaveltur hafa verið um breyttar göngur loðnunnar, en síð- ustu tvö ár sýna svart á hvítu að breytingar hafa átt sér stað.“ Hann segir að loðnan komi nú inn norðaustan við Grímsey á lengri tíma en áður og hluti hennar skili sér ekki réttsælis með landinu. Hún gangi upp á grunnið fyrir norðan og snúist síðan fram og til baka fyrir Norðurlandi. Í þessari viku og þeirri síðustu fékk grænlenska skipið Pol- ar Amaroq fullfermi fyrir Norður- landi og í átta daga túr var m.a. kastað í Skagafirði og á Skjálfanda. Haft var eftir Geir Zoëga, skip- stjóra, á heimasíðu Síldarvinnslunn- ar, að loðna væri fyrir öllu Norður- landi. Þorsteinn segir að á sama tíma sé loðna víða fyrir Suðurlandi og vest- ur fyrir Reykjanes. Nýjar göngur virðist hins vegar ekki vera á ferð- inni og frekari loðnumælingar séu ekki fyrirhugaðar á næstunni. Það væri þá helst ef upplýsingar bærust um hreina og sterka vestangöngu, en ekki séu upplýsingar sem hægt sé að túlka á þann hátt. Áhersla á lirfurannsóknir Spurður um afdrif loðnunnar sem hrygnir fyrir norðan segir Þorsteinn að botngerðin geti hentað loðnunni. Hins vegar sé spurning um afdrif loðnulirfanna og síðan seiðanna. Það verði rannsakað í sérstöku verkefni sem fór af stað í fyrra, en aukin áhersla verði lögð á í ár. Í fréttatilkynningu Hafrann- sóknastofnunar segir í upphafi að undanfarin ár hafi orðið breytingar í göngumynstri loðnunnar. Síðan seg- ir: „Í febrúar 2017 fannst töluvert magn loðnu út af Norðurlandi sem leiddi til aukningar í aflamarki á þeirri vertíð. Sú loðna virtist hafa komið seint inn á hefðbundna gönguslóð og því hafa verið utan mælingasvæðis leiðangurs sem far- inn var í janúar 2017. Því var ákveð- ið að halda að nýju til mælinga nú í febrúar. Meginmarkmið leiðangursins sem lauk síðastliðinn föstudag var að fylgjast með göngum loðnunnar og að kanna hvort nýjar loðnugöngur hefðu komið inn á svæðið fyrir norð- an land eftir að mælingum í janúar lauk. Rannsóknaskipið Árni Frið- riksson fór frá Reykjavík þann 12. febrúar og r/s. Bjarni Sæmundsson tók einnig þátt í mælingunni en hann var í árlegum leiðangri við mælingar á ástandi sjávar umhverf- is landið. Ekki ákveðnar vísbendingar um nýjar loðnugöngur Umtalsvert magn af loðnu fannst yfir grunnum út af Norðurlandi, m.a. á svæðum í kringum Grímsey, við Skjálfandadjúp og Öxarfjarð- ardjúp. Talsverður fjöldi norskra veiðiskipa var að loðnuveiðum á svæðinu, fyrst við Þistilfjarðardjúp og síðar í Öxarfirði og Skjálfanda og gáfu þau upplýsingar um dreifingu og göngur á svæðinu. Alls mældust rúm 200 þúsund tonn vestan línu sem dregin er norður úr Fonti á Langanesi, en í janúar sl. höfðu mælst rúm 300 þúsund tonn á því svæði. Magn og dreifing loðnunnar fyrir Norðurlandi ásamt aldurs- og stærðarsamsetningu hennar gefa ekki ákveðnar vísbendingar um að nýjar loðnugöngur hafi bæst við það sem áður var mælt. Byggt á niðurstöðum þessara at- hugana eru því ekki fyrir hendi for- sendur til að leggja til breytingar á fyrri ráðgjöf um heildaraflamark vertíðarinnar 2017/2018,“ segir í frétt Hafrannsóknastofnunar. Stór hluti hrygndi nyrðra  Nýjar loðnumælingar breyta ekki fyrri ráðgjöf Hafró  Breyttar göngur Ljósmynd/ Hilmar Kárason Við Reykjanes Venus NS á loðnuveiðum út af Sandvík á Reykjanesi á ver- tíðinni fyrir tveimur árum. Skipið var á svipuðum slóðum í gærdag. Loðnuskipin voru í gær að veiðum á svæði frá Vestmannaeyjum og vestur fyrir Reykjanes. Reyndar voru sum þeirra á landleið eftir góða veiði í kjölfar brælunnar. Hrognafylling loðnunnar var mis- jöfn eða allt frá um 19% og upp í 24%. Venus og Víkingur, skip HB Granda, reyndu fyrir sér vestast á svæðinu með hrognatöku í huga. Skipin voru komin með 2-300 tonn um miðjan dag í gær og reiknað var með að annað þeirra landaði á Akranesi í nótt. Skera átti loðnuna og skilja og frysta hrognin ef fyll- ing og þroski leyfðu. Hópur reynslufólks, að mestu úr Döl- unum, var mættur á staðinn til að annast frystinguna hjá HB Granda á Akranesi eins og mörg und- anfarin ár. Ágæt köst við Eyjar Í gær var verið að landa tæp- lega 1.000 tonnum úr Bjarna Ólafssyni AK í fiskiðjuver Síld- arvinnslunnar. í Neskaupstað. Á heimasíðu fyrirtækisins er haft eftir Gísla Runólfssyni skipstjóra, að nokkuð hafi verið af loðnu við Vest- mannaeyjar og skipin verið að fá ágæt köst. Frysta átti loðnuna fyr- ir Japansmarkað. Hrogna- frysting að byrja Morgunblaðið/Ómar Óskarsson Loðna Hrognin eru verðmæt afurð og hafa verið eftirsótt í Japan.  „Dalagengið“ mætt á Akranes Í vor lýkur fjögurra ára gildistíma svokallaðs Smugusamnings Íslend- inga, Norðmanna og Rússa. Jens Garðar Helgason, formaður Sam- taka fyrirtækja i sjávarútvegi, seg- ist ekki eiga von á öðru en að samningar verði framlengdir til næstu fjögurra ára. Fari svo að einn aðili segi samningum upp þarf að taka samninginn upp í heild sinni. Nýlokið er árlegum viðræðum Íslendinga og Rússa og var meðal annars samið um að Rússar fái í ár að veiða 1.500 tonn af makríl í út- hafinu af kvóta Íslands. Fyrir tveimur árum fengu þeir heimild til að veiða 1.500 tonn af kol- munnakvóta Íslendinga. Jens Garðar segir að síðustu ár hafi Rússar ekki eingöngu horft til til- gangs upphaflegs samnings heldur vilji þeir fá meira fyrir sinn snúð en áður og séu farnir að verð- leggja samninginn. Tæplega 20 ára samningur Upphaflega voru Smugusamn- ingarnir gerðir 1999 eftir áralang- ar deilur vegna veiða íslenskra skipa í Smugunni í Barentshafi. Þá var samið um ákveðna hlutdeild Íslendinga af þorskafla í Barents- hafi. Í ár koma 4.409 tonn af þorski í lögsögu Rússlands í hlut Íslendinga auk meðafla samkvæmt nánari skilgreiningu. Jafnframt hafa Íslendingar haft möguleika á að kaupa kvóta í rúss- neskri lögsögu í Barentshafi og er hann í ár ákveðinn 2.646 tonn af þorski. Samningar um þennan lið eru ekki frágengnir, en Rússar þurfa að senda verðhugmyndir fyrir 1. apríl og Íslendingar að svara fyrir 15. apríl. Síðustu tvö ár hafa ekki náðst samningar um verð á þessum kvóta. aij@mbl.is Viðræður Frá fundi í Moskvu, Jóhann Guðmundsson til hægri. Rússar verðleggja Smugusamninginn  Fjögurra ára gildistíma að ljúka

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.