Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 47

Morgunblaðið - 01.03.2018, Side 47
UMRÆÐAN 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018 Völd geta spillt heil- brigðri hugsun. Sér- staklega á það við hjá valdhöfum sem um- kringja sig með klapp- liði og kaupa aðeins þá ráðgjöf sem styður þeirra málstað. Lítið aðhald verður þá eftir til að halda aftur af því að vitleysur fari á flug. Gott dæmi um slíkt sást nýlega þegar borgarstjóri lýsti því yfir í Kastljósi RÚV að hundruð milljarðar dygðu ekki einu sinni til að laga vegakerfi borgarinnar, það mundi alltaf enda í klessu. Þetta virð- ist borgarstjóri hafa úr nýlegri um- ferðarspáskýrslu VSÓ sem komst einmitt að því að 100 milljarða fjár- festing í umferðarmannvirkjum kæmi ekki í veg fyrir verulegar um- ferðartafir árið 2030. Rusl inn = Rusl út Þetta er afar einkennileg nið- urstaða sem þarfnast frekari skoð- unar. Sérstaklega er mikilvægt að gefa spá um íbúaþróun gaum, því slíkar spár eru ávallt undir sterkum pólitískum áhrifum vegna væntinga stjórnmálamanna og trúar á eigin framtíðarsýn. Skýrsluhöfundar taka einmitt undir það með því að segja að stór óvissa geti fylgt þessum skipu- lagstölum. Til að leggja mat á gæði íbúaspárinnar þá er hún á meðfylgj- andi mynd borin saman við raun- fjölgun íbúa síðustu ár. Þar blasir við hreint ótrúleg sviðs- mynd. Íbúaspáforsenda skýrslunnar er að íbúafjölgun í Reykjavík muni þrefaldast á kostnað nágrannasveit- arfélaganna þar sem hlutur Reykja- víkur í íbúafjölgun mun fara úr 30% í 78% á einu bretti, og nær öll upp- byggingin verði á dýru þétting- arsvæðunum. Þarna er búið að lauma inn í umferðarlíkanið útópíu borg- arstjóra, um hamingjusama bíllausa miðborgarbúann sem er hjólandi eða í strætó alla daga. Ekkert bendir samt til að þetta líferni hugnist þorra fólks. Bílum er að fjölga (líka túrista- bílaleigubílum) og margmilljarða nið- urgreiðsla á strætó hefur skilað 0% árangri á 6 árum samkvæmt nýjustu ferðavenjukönnunum. Það hafa held- ur ekki allir efni á að búa í fínu dýru hverfunum hans Dags. Farið er að hægja á fasteignamarkaðinum og sumir hafa jafnvel flúið út úr bænum til að forðast fasteignaokrið. Augljóst er, að svo lengi sem fólk með frjálsan vilja er ekki bara peð ráðríkra vald- hafa, þá munu útreikningar sem eru byggðir á slíkri óraunhæfri ósk- hyggju aldrei standast. Rangar umferðarframkvæmdir En hvernig skyldi nú standa á því að 100 milljarðar dugi svona skammt og lagi svo lítið? Við nánari skoðun sést að ekki er allt sem sýnist, því framkvæmdirnar sem valdar voru, miðast flestar ekki sérlega markvisst að því að leysa umferðarvandann. Hvaða vit er t.d. í því að fjárfesta í 30 milljarða Sundabraut alla leið út á Kjalarnes, ef ekki má byggja upp út- hverfin sem vegurinn á að þjóna? Stytting hringvegarins er jú alltaf góðra gjalda verð, en sem lausn á umferðarhnútum í Reykjavík er gild- ið takmarkað. Þetta hafa skýrsluhöf- undar meira að segja tekið undir síð- ar og því enn meiri ráðgáta af hverju þessi framkvæmd var valin. Ný Hvalfjarðargöng hefðu allt eins mátt heima þarna. Eins verður yfir 20 milljarða stokkahugmyndin á Miklubraut að teljast með verstu meðferð á vegafé sem fyrirfinnst. Tveggja kílómetra langur vegkafli með þaki svo að hjólafólk og strætó geti verið þar eitt í friði innan um skorsteinana sem verða væntanlega út um allt nema að til standi að púa allri menguninni út um gangamunnana og þar með talið yfir fína nýja landspítalann og alla sjúk- lingana sem þar dvelja. Gríðarlegar umferðartafir munu síðan skapast í mörg ár á meðan á þessum rándýru flóknu framkvæmdum stendur. Er nokkur furða að útkoman verði gagnslítil ef markmiðið er bara að sóa vegafénu en ekki nota það. Bestu lausnirnar útilokaðar Það er samt verulegt áhyggjuefni að sjá hvernig spáð er að allt sé að fara í hnút á Kringlumýrarbrautinni við Kringluna. Hin rándýra stokka- lausn Miklubrautar er engan veginn að ráða við umferðina frá Kópavogi. Fyrir áratug stóð hins vegar til að fara í afkastameiri þriggja hæða lausn sem tók líka vel við umferðinni frá Kringlumýrarbraut. Þessari lausn var hins vegar hent út af borð- inu án þess að sambærilega góð eða betri lausn væri fundin. Umferð- arlíkan VSÓ sýnir nú skýrt að þetta var kolröng ákvörðun. Umferð- arlíkön eru einmitt gerð til að draga fram og fyrirbyggja slík mistök í um- ferðarskipulagi, en af einhverjum ástæðum hefur sérfræðingunum yf- irsést að benda á hið augljósa. En, hví ætti að hætta á að styggja hönd- ina sem fæðir þig þegar hægt er að klappa eins og allir hinir? Hættum að klappa Þegar enginn þorir að stíga fram og benda á mistök þá er alltaf hætt við að kúrsinn verði aldrei leiðréttur og vitleysan verði óafturkræf. Nú þegar er byrjað að skipuleggja há- hýsi ofan í gatnamótunum við Kringl- una og fyrirhugaðar íbúðablokkir munu eyðileggja hagkvæmustu Sundabrautarútfærsluna og búa til 10 milljarða bakreikning fyrir dýrari og jafnvel verri lausn. Skilvirkar stofnbrautir eru æða- kerfi borga og er lykillinn að því að þær dafni. Ef það á að elta vanhugs- aða útópíu með þvingaðri stofn- brautalausri þéttingu byggðar þá munu allir á endanum tapa. Reykja- vík er lítil borg og það er engin ástæða til að búa til slíkt kaos að óþörfu. Er ekki kominni tími til að hætta að klappa? Eftir Jóhannes Loftsson » Það stefnir í meiri- háttar skipulags- klúður í Reykjavík þar sem skipulagsáætlanir eru byggðar á draum- órum borgarstjóra. Jóhannes Loftsson Höfundur er verkfræðingur og frumkvöðull. Skipulögð kransæðastífla í Reykjavík Íbúaspáin gengur þvert á íbúaþróun undanfarinna ára. /Hagstofan og VSÓ: Hbsv. 2040. Umf.spá f. 2030 v. svæðisskbr. Fors. og niðurst. Sept. 2017 Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.