Morgunblaðið - 01.03.2018, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. MARS 2018
og hann fer sífellt vaxandi. Að und-
anskildum Gyðingum frá Bandaríkj-
unum sem sækja borgina heim eru
Þjóðverjar duglegastir við að koma
en þá sjáum við einnig mikinn
áhuga frá Bretlandi.“
Mikil áskorun að byggja upp
ferðaþjónustu í Jerúsalem
Hún segir að uppbygging ferða-
þjónustu í borginni hafi ekki reynst
sjálfgefin enda hafi lengi loðað við
svæðið að það væri ekki öruggt. Það
hafi ekki komið til að ástæðulausu
og að borgin hafi um aldamótin síð-
ustu verið þjökuð af árásum á sak-
lausa borgara.
„Ástandið er gjörbreytt núna og
árásir mun fátíðari en þá. En á
sama tíma sjáum við það gerast að
hryðjuverkaárásir eru framdar í
Evrópu. Á síðustu fimm árum hafa
borgir á borð við London, Brussel
og París orðið fyrir alvarlegum
árásum sem sett hafa allt úr skorð-
um. Ekki síst ferðaþjónustuna.“
Ilanit bendir á að ferðaþjónustan
sem atvinnugrein finni mjög fyrir
því þegar fólk telur öryggi sínu ógn-
að og að mjög geti dregið úr aðsókn
á staði sem verði fyrir árásum, ef
ekki sé brugðist rétt við.
„Nú um stundir er staðreyndin sú
að árásir af þessu tagi geta orðið
hvar sem er. Það er veruleiki sem
við í Ísrael höfum lengi búið við en
það er nýr veruleiki fyrir Evr-
ópubúum. En það er engin ástæða
til að örvænta. Það skiptir mestu að
búa sig undir það sem getur gerst.
Það á bæði við um öryggisþáttinn
og viðbrögðin þegar árásir dynja yf-
ir.“
Ilanit þekkir vel til beggja þátta.
Herþjónustan góð reynsla
Líkt og önnur ungmenni í Ísrael
gegndi hún herþjónustu í þrjú ár,
m.a. á Gaza-svæðinu. Að lokinni
herþjónustu hélt hún til frekara
náms og veitti m.a. fjölþjóðlegum
fyrirtækjum ráðgjöf á sviði krísu-
stjórnunar.
„Þegar ég hóf störf á vettvangi
ferðaþjónustunnar nýttist herþjón-
ustan og krísustjórnunin mér vel.
Þá áttaði ég mig á að við þurfum að
bregðast öðruvísi við þegar áföllin
dynja yfir enda skiptir upplýs-
ingagjöf öllu máli í ferðaþjónustu.
Það er gríðarlega mikilvægt að upp-
lýsa ferðamenn hratt og vel og að
sannfæra fólk um að allt sé gert til
að tryggja öryggi þess.“
Þannig hefur Ilanit, ásamt sam-
starfsfólki sínu, þróað aðferðir til að
bregðast við öryggisógnum. Sá ár-
angur sem þau hafa náð hefur vald-
ið því að hún hefur á síðustu árum
verið kölluð til ráðgjafar við ferða-
þjónustuaðila og hið opinbera í
löndum þar sem alvarleg atvik hafa
átt sér stað. Á það m.a. við um
borgir á borð við Istanbúl, Brussel,
Dallas, Stokkhólm og París.
„Eitt af því sem ég legg áherslu á
í ráðgjöf minni er að greina á milli
þeirra upplýsinga sem beint er að
heimamönnum og ferðamönnum. Í
Ísrael er fólk vant alvarlegum atvik-
um af þessu tagi en stærstur hluti
ferðamannanna alls ekki. Þá verður
að haga upplýsingagjöfinni með
misjöfnum hætti. Rauður þráður
verður hins vegar að vera sá að ör-
yggið sé tryggt.“
Fumlaus viðbrögð skipta öllu
Hún minnist í því sambandi á at-
vik sem kom upp þegar Jerúsalem
maraþonið stóð fyrir dyrum í borg-
inni fyrir nokkrum árum. Kvöldið
fyrir hlaupið var sprengjuárás gerð
á rútu rétt hjá skráningarmiðstöð
hlaupsins. Allt stefndi í upplausn á
staðnum þar sem yfir 1.500 alþjóð-
legir keppendur voru mættir til
leiks og fjöldi fjölmiðla víða að. Þá
var upplýsingum komið fljótt á
framfæri og m.a. því lýst yfir að
borgarstjórinn í Jerúsalem myndi
hlaupa morguninn eftir. Vel leystist
úr stöðunni að sögn Ilanit vegna
upplýsingagjafarinnar.
„Annað sem við vitum er að við
getum ekki keppt við CNN eða aðra
stóra miðla sem einblína á hrylling-
inn sem fylgir árásum. En við höf-
um nýtt samfélagsmiðla með áhrifa-
ríkum hætti. M.a. sem tilraunir hafa
verið gerðar með er að í kjölfar
árása höfum við farið strax út í
borgina með upptökuvél og rætt
þar við ferðamenn, spurt þá hvernig
þeim líði og hvort þeir finni sig
örugga. Þessum viðtölum er komið
á framfæri og róa fólk. Það áttar sig
á að árásir eru staðbundnar og hafa
aðeins áhrif á takmörkuðu svæði.“
Hún segir að einhverjir kunni að
hrökkva við þegar rætt er af mikilli
yfirvegun um atburði af þessu tagi
en ekki verði hjá því komist í ljósi
þess veruleika sem við búum við í
dag.
„Við getum valið á milli þess að
láta óttann ráða för eða horfst í
augu við hlutina eins og þeir eru.
Öryggisgæsla er mikil í Ísrael en
við reynum að hafa hana eins lítið
sýnilega og hægt er. Ég furða mig
hins vegar oft á því hversu lítil ör-
yggisgæslan er í ýmsum borgum
Evrópu þegar ég kem þangað. Ör-
yggisgæsla á ekki að fylla okkur
óhug, hún á að auka hjá okkur ör-
yggistilfinningu.“
Jerúsalem á mikið inni
Ilanit segir að hin forna menning-
arborg eigi mikið inni og að sífellt
sé verið að styrkja innviði hennar til
að geta tekið við fleiri ferðamönn-
um.
„Í fyrra bættust við um 1.000
gistinætur og í ár gerum við ráð
fyrir að þeim fjölgi um 4.000. Þann-
ig ætlum við að halda áfram að
byggja upp. Á næstu áratugum telj-
um við að borgin eigi að geta tekið á
móti 10 milljónum ferðamanna á ári
en til þess þarf að halda rétt á spil-
unum.“
Hún segir að ferðamálayfirvöld í
Jerúsalem geri sér grein fyrir að
öryggismál séu grundvallarþáttur í
uppbyggingunni. Flestir geri sér
hins vegar grein fyrir því að þau
mál séu í mjög föstum skorðum í
borginni og landinu í heild.
Horfast verður í augu við ógnina
Hryðjuverkaógn í Evrópu er komin til að vera Ferðaþjónustan verður að búa sig undir hið óvænta
Mikilvægt að haga upplýsingagjöf þannig að ferðamenn fái rétta mynd af stöðu mála hverju sinni
Morgunblaðið/RAX
Ferðaþjónusta Ilanit segir ferðaþjónustu í Evrópu standa frammi fyrir áskorunum sem Ísrael hafi tekist á við.
VIÐTAL
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Æ fleiri Íslendingar leggja leið sína
til Ísraels eftir að Wow air hóf beint
flug á Ben Gurion-flugvöll í Tel Aviv
undir lok síðasta árs. Bætast þeir í
hóp þeirra 3,7 milljóna ferðamanna
sem sóttu landið heim á síðasta ári.
Mörgum þykir landið framandi og
þar af leiðandi óárennilegt. Gjarnan
heyrist fólk einnig spyrja hvort
öruggt sé að ferðast þangað í ljósi
tíðra frétta af átökum milli Ísraela
og Palestínumanna. Þá er ljóst að
Ísrael á landamæri að löndum þar
sem alvarleg átök hafa geisað á síð-
ustu árum. Nægir þar að nefna Sýr-
land í norðaustri og Egyptaland í
suðri.
Þrátt fyrir þessar fréttir lifir
ferðaþjónusta í Ísrael mikið blóma-
skeið um þessar mundir og þar er
sögufrægasta borg landsins, Jerú-
salem, engin undantekning.
Á dögunum var Ilanit Melchior,
framkvæmdastjóri ferðamála hjá
Ráðstefnu- og ferðamannaskrifstofu
Jerúsalemborgar, stödd hér á landi
og settist blaðamaður niður með
henni. Hún segist þakklát fyrir við-
tökurnar sem Íslendingar hafi sýnt
Ísrael en hún segir að enn sé mikið
verk óunnið við að kynna kosti
landsins og ekki síst Jerúsal-
emborgar sem spennandi áfanga-
staður hér á landi.
„Við höfum á síðustu fimm árum
fundið gríðarlegan áhuga á borginni
SKÓDAGAR
FJALLGÖNGUSKÓR
LÉTTIR GÖNGUSKÓR
HVERSDAGSSKÓR
BARNASKÓR
Drifter GV
Kr. 29.990.-
Nú kr. 22.493.-
Dömu
Herra
Falcon GV
Kr. 27.490.-
Nú kr. 20.618.-
Dömu
Falcon GV
Kr. 27.490.-
Nú kr. 20.618.-
Shiver GV
Kr. 19.990.-
Nú kr. 14.993.-
Dömu, margir litir til
Blade GV
.990.-
14.993.-Nú kr.
Herra
Herra
Bajura NBKGV
Kr. 34.990.-
Nú kr. 26.243.-
Lagazuoi GV
Kr. 31.990.-
93.-Nú kr. 23.9
Herra, margir litir til
Shiver GV
Kr. 19.990.-
Nú kr. 14.993.-
Enforce GV BARNASKÓR
Kr. 11.990.-
Nú kr. 8.992.-
Barnaskór
Blade GV
Kr. 19.990.-
Nú kr. 14.993.-
Herra
Myth GV
Kr. 19.990.-
Nú kr. 14.993.-
Dömu
Myth GV
Kr. 19.990.-
Nú kr. 14.993.-
VERIÐ VELKOMIN Á SKÓDAGA ICEWEAR MAGASÍN
Á LAUGAVEGI 91 OG GERIÐ GÓÐ KAUP LAUGAVEGI 91 - 2. HÆÐ
TPS 520GV
Kr. 29.990.-
Nú kr. 22.492.-
Herra/Dömu
Herra/Dömu
1.-12. mars
AF ÖLLUM SKÓM