Morgunblaðið - 01.03.2018, Blaðsíða 31
Framtíðhöfuðborgarsvæðisins
Skipulag, innviðir og fjármögnun
Ráðstefna í Laugardalshöll, föstudaginn 9. mars kl. 13–16
Ráðstefnan er haldin í tengslum við sýninguna Verk og vit 2018 í samstarfi
við Landsbankann og Samtök iðnaðarins. Markmið ráðstefnunnar er að
varpa ljósi á framtíð höfuðborgarsvæðisins þegar horft er til skipulags,
innviða og fjármögnunar. Farið verður yfir helstu tækifæri og áskoranir
sem höfuðborgarsvæðið stendur frammi fyrir næstu ár.
Ráðstefnan er öllum opin en þátttökugjald er kr. 6.900.
Innifalinn er aðgöngumiði á sýninguna Verk og vit 2018.
Skráning á verkogvit.is/radstefna, fyrir 7. mars nk.
Athugið að sætafjöldi er takmarkaður. www.verkogvit.is
DAGSKRÁ
13:00 Setning ráðstefnu
Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans
13:10 Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins til framtíðar litið
Ármann Kr. Ólafsson, formaður Samtaka sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu og bæjarstjóri í Kópavogi
13:30 Heildarsýn og staða verkefna, borgarlína og önnur
samgöngumál
Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur
13:50 Innviðir – ástand og framtíðarhorfur
Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins
14:10 Kaffihlé
14:30 Róast markaðurinn án brotlendingar?
Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Landsbankanum
14:50 Uppsöfnuð þörf og áhrif á velferð þjóðar
Una Jónsdóttir, hagfræðingur og deildarstjóri
leigumarkaðsmála hjá Íbúðalánasjóði
15:10 Skipulagsmál og þarfir íbúðarkaupandans
Örn Tryggvi Johnsen, rekstrarstjóri ÞG verktaka
15:30 Frá bæjardyrum fasteignasalans
Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali hjá Híbýli
fasteignasölu og fyrrverandi formaður Félags fasteignasala
15:50 Umræður
16:00 Léttar veitingar á sýningarsvæði Landsbankans
Fundarstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson, fjölmiðlamaður