Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2 3. M A R S 2 0 1 8 Stofnað 1913  70. tölublað  106. árgangur  ARKITEKT AF SKAG- ANUM SAFNAR REYNSLU ALLT FER ÚRSKEIÐIS FJÖLBREYTT UMFJÖLLUN UM PÁSKAHALD SÝNINGIN SEM KLIKKAR 38 SÉRBLAÐ 40 SÍÐURSTEINUNN EIK 12-13 Hjólastígar samræmdir  Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðin búa í haginn fyrir aukna umferð reiðhjóla á næstu árum  Hjólreiðafólk gagnrýnir ný umferðarlög og þjónustu á þeim með vaxandi umferð reiðhjóla, að sögn Páls Guð- jónssonar, framkvæmdastjóra Sam- taka sveitarfélaga á höfuðborgar- svæðinu (SSH). Til viðbótar við aukna umferð hefðbundinna reið- hjóla er búist við mikilli aukningu með fjölgun rafmagnsreiðhjóla á næstu árum. Starfshópur sem SSH og Vegagerðin settu á fót hefur nú skilað tillögum að úrbótum. Liður í aðgerðunum er að bæta hjólreiðamenninguna. Ekki síst að reyna að draga úr hraða og aðskilja gangandi og hjólandi umferð. Í þeim tilgangi liggja hjá samgönguráðu- neytinu drög að nýjum umferðar- lögum. Hjólreiðamenn gagnrýna þau harðlega, að því er fram kemur í athugasemdum. Meðal annars er gagnrýnt hversu lítið er gert til að auka öryggi hjólreiðafólks. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Unnið er að samræmingu á hönnun hjólastíga í öllum sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu og endurbót- um á stígakerfinu. Einnig á vetr- arþjónusta að vera sú sama hvar sem hjólað er. Þá er áhugi á að draga úr hraða og bæta hjólamenn- inguna. Þörf er á samræmingu hjólastíga Undirbúningur » Sveitarfélögin eru að setja upp hjólateljara á höfuðborg- arsvæðinu, 20 teljara sem einnig mæla hraða hjólanna. » Til skoðunar er að bjóða út í einu lagi vetrarþjónustu á hjólastígum. MHjólastígar og þjónusta … »14 Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Hjólað og skokkað Veðurblíðan í höfuðborginni í gær gaf mönnum kærkomið tækifæri til útivistar. Sumir drógu fram hlaupaskóna, aðrir reiðhjólið. Tveir dómkvaddir matsmenn hafa í tæp fjögur ár unnið að greiningu á gögnum sem varða kröfusafn sem Íslandsbanki keypti af Gamla Byr og ríkissjóði Íslands árið 2011. Telur bankinn að hann hafi verið svikinn í viðskiptunum og krefst bóta sem nema hærri fjárhæð en kaupverðinu á sínum tíma. Enn sér ekki fyrir endann á vinnu matsmannanna en í svari Íslands- banka við fyrirspurn Morgunblaðs- ins kemur fram að gert sé ráð fyrir verklokum á síðari hluta ársins. Kostnaður vegna matsins er nú orð- inn nærri 100 milljónir en allt stefnir í að hann verði mun hærri. Milljón á mánuði í 4 ár Dómkvöddu matsmennirnir tveir hafa nú kallað eftir frekari gögnum frá Reiknistofu bankanna sem þeir vinna nú að því að greina. Til þessa hafa greiðslur til þeirra hvors um sig numið um milljón krónum á mánuði í fjögur ár. Gestur Jónsson, lögmaður Gamla Byrs, segist aldrei hafa heyrt af viðlíka kostnaði við matsgerð fyrir íslenskum dómstólum. »16 Matsgerð kostar yfir 100 milljónir  Íslandsbanki krefst milljarða króna bóta Morgunblaðið/Eggert Dómsmál Hart er tekist á um virði krafna sem áður voru í eigu Byrs. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Leifar flutningaskipsins Víkartinds eru nú sjáanlegar í Háfsfjöru við Þjórsárósa þar sem skipið strand- aði fyrir tuttugu árum. Botn skips- ins, kjölur og skrúfa eru nú komin upp úr sandinum sem hefur falið járnið í tuttugu ár. „Það hefur stundum sést örlítið í hæstu járnin í gegnum árin en það hefur sést svona vel í tvo mánuði eða svo,“ segir Karl Rúnar Ólafs- son, einn af eigendum Háfsfjöru. Nokkrir Sunnlendingar fengu þessi tíðindi úr Háfsfjöru og fóru þangað í skoðunarferð í fyrradag. Fannst þeim áhugavert að sjá það sem eftir er af þessu sögufræga flaki. Myndir sem þeir tóku sýna að töluvert járn úr botni skipsins og kili hefur orðið eftir þegar skipið var rifið og fjarlægt. Einnig skips- skrúfan því eitt blað hennar stend- ur upp úr sjónum á fjöru. Flutningaskipið Víkartindur strandaði 5. mars 1997. Skipið var hlutað niður og fjarlægt ásamt öllu rusli úr því sem þakti fjöruna. Talið er að alls hafi um 4.600 tonn af brotajárni verið flutt úr fjörunni og yfir 1.000 tonn af annars konar úr- gangi. »4 Ljósmynd/Kristinn Bergsson Háfsfjara Breyttur straumur hefur skolað sandinum ofan af kili og botnbit- um Víkartinds. Eitt blað skrúfunnar stendur upp úr sjónum, ljósbrúnt að lit. Flak skipsins kemur upp úr sandi  Kjölur og skrúfa Víkartinds nú sjáanleg í Háfsfjöru við Þjórsárósa  Landsmenn hafa tekið upp nýjan heilsu- samlegan og umhverfisvænan sið sem á rætur sínar að rekja til Svíþjóðar. Að plokka snýst um að tína upp rusl á förnum vegi á meðan gengið er eða skokkað. Einar Bárðarson stofnaði nýverið Facebook-síðuna Plokk á Íslandi. „Það er stórkost- legt að sameina áhuga á útiveru og umhverfismeðvitund, ánægjan af því að fara út og hreyfa sig verður margfalt meiri með því að gera það með þessum hætti.“ »10 Íslendingar byrjaðir að fara út að plokka Einar Bárðarson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.