Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 2
Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson
Eyjar Íris Róbertsdóttir kemur til fundar
óánægðra sjálfstæðismanna í gærkvöldi.
Vilja breytingar í samfélaginu
Óánægðir sjálfstæðismenn í Eyjum á lokuðum stjórnmálafundi í gærkvöldi
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
Hópur sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum,
sem óánægður er með framboðsmál flokksins
vegna sveitarstjórnarkosninganna í vor, kom
saman til lokaðs fundar í gærkvöldi. Meðal
þeirra sem sóttu fundinn voru Íris Róbertsdóttir
og Elís Jónsson sem hvað oftast hafa verið nefnd
í tengslum við mögulegt sérframboð. Morgun-
blaðið náði tali af Elís eftir fundinn. „Það var
bara verið að ræða breytingar sem fólk myndi
vilja sjá í samfélaginu hérna.“
Aðspurður hvort fundurinn hefði snúist um
mögulegt framboð við sveitarstjórnarkosning-
arnar sagði hann umræður ekki vera komnar á
þann stað á þessum tímapunkti. „Hvað sem
verður í framtíðinni er svo sem ekki alveg
ljóst.“
Hann sagði góðar umræður hafa skapast á
fundinum og að líklega yrði haldinn annar fund-
ur í framhaldinu. Fundargesti sagði hann hafa
verið um fjörutíu og að um þverskurð af sam-
félaginu hefði verið að ræða. Þarna hefði verið
fólk í allskyns stöðum og með allskyns bak-
grunn.
Í frétt Eyjafrétta af framboðsmálum í Vest-
mannaeyjum í gær er haft eftir Írisi Róberts-
dóttur að henni hafi boðist 3. sæti á lista Sjálf-
stæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar.
Hafi hún hafnað sætinu eftir sólarhrings umhugs-
unarfrest. „Ég kýs að tjá mig ekkert frekar um
það núna en mun gera það innan tíðar,“ sagði
hún við blaðamann Eyjafrétta.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
„Fjölskyldan er komin upp á lag með að ferðast og
njóta lífsins á fjarlægum slóðum. Þessi vinningur er
því kærkominn,“ segir Hilmar Dagbjartur Ólafsson í
Reykjavík. Nafn hans var annað tveggja sem dregið
var úr pottinum í áskrifendaleik Ávakurs sem nú er
að ljúka. Hinn vinningshafinn er Loftur Guðmunds-
son og fá hann og Hilmar báðir gjafabréf fyrir tvo
sem farmiða til eins af þeim tíu áfangastöðum WOW
air sem hafa verið í boði í leiknum. Staðirnir eru
Stokkhólmur í Svíþjóð, Tel Aviv í Ísrael, Bercelona
á Spáni, Dublin á Írlandi og bandarísku borgirnar
Cleveland, Dallas, Cincinnati, San Francisco, St. Lo-
uis og Detroit.
„Næst er að velja skemmtilegan áfangastað en
óneitanlega er Ameríka mjög freistandi. Eftir lang-
an og strangan vetur er frábært að komast í frí,“
segir Hilmar sem er verktaki og sinnir meðal ann-
ars snjómokstri víða á höfuðborgarsvæðinu.
„Ég held tryggð við Morgunblaðið. Krakkarnir
mínir byrjuðu ungir að sinna blaðburði og vinna sér
inn vasapeninga. Blaðið kom því alltaf inn á heim-
ilið og varð ómissandi; enda er efni þess fjölbreytt
og spannar flest sem gerist í samfélaginu.“
sbs@mbl.is
Ferðavinningur er kærkominn
Tveir á leiðinni utan með WOW-
air í áskrifendaleik Árvakurs
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ferðalangur Hilmar Dagbjartur datt í lukkupottinn.
Verkið Glitur hafsins eftir listakon-
una Söru Riel bar sigur úr býtum í
samkeppni um nýtt útilistaverk á
austurgafli Sjávarútvegshússins.
Alls bárust 25 tillögur en niðurstaða
dómnefndarinnar, sem skipuð var
þeim Guðmundi Oddi Magnússyni
formanni, Gunnari Lárusi Hjálm-
arssyni, Veru Líndal Guðnadóttur,
Elínu Hansdóttur og Unndóri Agli
Jónssyni, var samhljóða. Í umsögn
dómnefndar segir m.a. að verkið hafi
þann eiginleika að vaxa við nánari
kynni og dansi á milli raunveruleika
og ímyndunarafls.
Málað var yfir sjómanninn sem
áður prýddi húsið í júlí á síðasta ári.
Nokkurrar óánægju gætti vegna
þessa og deilt var um ástæður þess
og hver bæri ábyrgð.
Arftaki
sjómanns-
ins valinn
Arftaki Listaverkið Glitur hafsins
eftir Söru Riel mun prýða húsið.
Glitur hafsins eftir
Söru Riel sigraði
Neslistinn, sem Bæjarmálafélag Sel-
tjarnarness hefur boðið fram frá
árinu 1990, og Viðreisn hafa ákveðið
að bjóða fram sameiginlegan lista í
bæjarstjórnarkosningunum í vor
undir nafninu Nýtt Nes. Neslistinn
var stofnaður árið 1990 sem sam-
einað afl vinstriflokka. Í síðustu
kosningum fékk hann einn bæjar-
fulltrúa kjörinn, en þá buðu Sam-
fylkingin og Framsóknarflokkur
fram eigin lista og fékk Samfylk-
ingin tvo menn kjörna.
Nýtt Nes hefur í vikunni auglýst
eftir frambjóðendum og mun upp-
stillingarnefnd velja fólk á hinn sam-
eiginlega lista sem kynntur verður í
apríl.
Viðreisn með
Neslistanum
Fjölmenni var í Egilshöll í Reykjavík í gærkvöldi þegar kvikmyndin Víti í
Vestmannaeyjum var frumsýnd. „Hér hefur verið gerð stórmynd úr lítilli
sögu og leikstjórinn hefur að því leyti í rauninni unnið kraftaverk,“ segir
Gunnar Helgason en myndin byggist á sögu hans sem kom út á bók fyrir
nokkrum árum. Myndin, sem Bragi Þór Hinriksson leikstýrir, fjallar um
drengi í fótboltaliðinu Fálkum sem fara á mót í Vestmannaeyjum og lenda
þar í ýmsu óvæntu. Leikararnir, sem eru margir ungir að árum flykktust á
frumsýninguna í Egilshöll þar sem söguhöfundurinn smellti af þeim mynd
á símann sinn. „Það er alltaf þörf á kvikmyndum sem sýna veruleika og
daglegt líf íslenskra barna,“ segir Gunnar Helgason. sbs@mbl.is »40
Víti í Vestmannaeyjum frumsýnt í Egilshöll
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Í svari umhverfis- og auðlindaráð-
herra, Guðmundar Inga Guðbrands-
sonar, við fyrirspurn Birgis Þórar-
inssonar um hreinlætisaðstöðu í
Dyrhólaey á Alþingi 19. mars síðast-
liðinn kom fram að Umhverfisstofn-
un gerir ekki ráð fyrir því að þjón-
ustugjald, að upphæð 200 kr., geti
skilað stofnkostnaði til baka. Þó tel-
ur stofnunin að gjaldið muni að
mestu standa undir rekstrarkostn-
aði.
Áætlun hönnuða um kostnað við
bygginguna var 27 milljónir króna,
en raunkostnaður reyndist 49,5
milljónir. Salernið var sett upp í
mars á síðasta ári en var þó ekki tek-
ið í notkun fyrr en í september sama
ár, m.a. vegna illviðra og stöðvunar
framkvæmda á varptíma, að því er
fram kom í svari ráðherra.
Í andsvari sínu gerði Birgir at-
hugasemd við að kostnaður hefði far-
ið 100% fram úr áætlun, auk þess
sem hann kvaðst hafa upplýsingar
um það að heimamenn hefðu gert at-
hugasemdir við staðarval. Mörgum
fyndist mannvirkið vera lýti í um-
hverfinu.
Ráðherra svaraði því til að væri
það álit heimamanna að staðsetning-
in væri umhverfisslys, hvetti hann
þá til að taka málið upp við Umhverf-
isstofnun og reyna að leita lausna
með stofnuninni.
thorgerdur@mbl.is
Tekjur skila ekki
stofnkostnaðinum
Óánægja með salerni í Dyrhólaey