Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf
Tilkynnt var í gær að ríflega 2,8
milljörðum króna yrði varið á næstu
árum til uppbyggingar innviða og
annarra verkefna á fjölsóttum stöð-
um og öðrum ferðamannastöðum
hér á landi. Guðmundur Ingi Guð-
brandsson, umhverfis- og auðlind-
aráðherra, og Þórdís Kolbrún Reyk-
fjörð Gylfadóttir, ferðamála-,
iðnaðar- og nýsköpunarráðherra,
greindu frá þessu á blaðamanna-
fundi.
Annars vegar er um að ræða tæp-
lega 2,1 milljarðs króna úthlutun
vegna þriggja ára verkefnaáætlunar
landsáætlunar um uppbyggingu inn-
viða sem gildir fyrir árin 2018-2020
og hins vegar 722 milljóna króna út-
hlutun úr Framkvæmdasjóði ferða-
mannastaða fyrir árið 2018.
Blásið til sóknar í uppbyggingu
innviða á friðlýstum svæðum
„Verkefnaáætlunin tekur m.a. til
friðlýstra svæða og fjölsóttra staða í
eigu íslenska ríkisins, valinna svæða
sveitarfélaga auk landvörslu,“ segir í
tilkynningu ráðuneytanna. Fjármagn
er veitt á 71 stað og eina gönguleið
til fjölbreyttra verkefna, með sér-
staka áherslu á vernd náttúru,
minjavernd, bætt öryggi og bætta
aðstöðu fyrir gesti staðanna.
Úthlutunin úr Framkvæmdasjóðn-
um nær nú í fyrsta sinn til ferða-
mannastaða sem eru ekki í eigu rík-
isins og er það í samræmi við
breytta löggjöf um sjóðinn. Gert er
ráð fyrir að Framkvæmdasjóðurinn
úthluti alls 2,2 milljörðum á árunum
2018 til 2020, en úthlutað er árlega.
Alls hljóta 56 staðir styrk úr
sjóðnum að þessu sinni og í tilkynn-
ingu segir að sérstök áhersla sé lögð
á að fjölga viðkomustöðum ferða-
manna til að stuðla að því minnka
álag á fjölsótta staði. Lýtur 21 verk-
efni að þessu markmiði. Þá segir enn
fremur að með úthlutuninni sé „blás-
ið til sóknar í uppbyggingu innviða á
friðlýstum svæðum og öðrum ferða-
mannastöðum í náttúru Íslands.“
Tæpir þrír milljarðar fara
til innviða ferðamannastaða
Morgunblaðið/RAX
Áhersla lögð á vernd náttúru, minjavernd og bætt öryggi
Hæstu styrkþegarnir
Borgarfjarðarhreppur.
76,8 milljónir til upp-
byggingar aðstöðuhúss við
Hafnarhólma þar sem boð-
ið verður upp á þjónustu
við ferðamenn.
Þingeyjarsveit. 74 millj-
ónir til að bæta aðgengi og
auka öryggi ferðamanna
við Goðafoss.
Grundarfjarðarbær.
61,96 milljónir til að gera
nýtt bílastæði, gönguleiðir
og áningarstað við Kirkju-
fellsfoss.
Húnavatnshreppur. 57
milljónir til að bæta öryggi
við Þrístapa, auka aðgengi
og útbúa bílastæði, göngu-
stíg og upplýsingaskilti.
Dalvíkurbyggð. 45,39
milljónir til áframhaldandi
uppbyggingar í friðlandi
Svarfdæla og gerð
áningarstaðar við
Hrísatjörn.
Blönduós-
bær. 32
milljónir
til að gera
gömlu
Blöndu-
brúna að
göngubrú
út í Hrútey.
Grýtubakka-
hreppur. 27
milljónir í gerð
áningarstaðar
á Grenivík.
Norðurþing. 22,5 milljónir
til að byggja göngubrú á
Raufarhöfn.
Félagsheim-
ilið Herðu-
breið.
22,4
millj-
ónir í
almenn-
ings-
salerni, bætt
aðgengi og
bílastæði.
Óbyggðasetr-
ið. 21,8 millj-
ónir til að setja
upp stjörnu-
skoðunarhús
og heita laug.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Útboðsgögn vegna fyrirhugaðra
framkvæmda á vegum Bandaríkja-
hers á öryggissvæðinu á Keflavík-
urflugvelli voru birt í gær, 22.
mars. Um er að ræða tvö verkefni,
annars vegar hönnun og verkfram-
kvæmd vegna breytinga á flugskýli
831 og hins vegar hönnun og bygg-
ing sjálfvirkrar þvottastöðvar fyrir
flugvélar. NATO fjármagnar verk-
efnin að fullu, en áætlaður kostn-
aður við þau er liðlega 1,7 millj-
arðar króna, eða um 17 milljónir
Bandaríkjadala.
Ríkiskaup fyrir hönd utanríkis-
ráðuneytisins og Landhelgisgæslu
Íslands vöktu athygli á birtingu út-
boðsgagnanna á útboðsvef sínum í
vikunni.
Bandaríkjaher borgar allt
Þar kemur fram að bandarísk
yfirvöld fjármagna og bjóða út
þessa hönnun/framkvæmd og
munu eingöngu semja við íslensk
og/eða bandarísk fyrirtæki um
verkefnið. Þar sem framkvæmd
þessi sé alfarið fjármögnuð af
bandarískum yfirvöldum lúti hún
ekki íslenskum lögum og reglum
um opinber innkaup. Gert sé ráð
fyrir að verkefnin tvö verði unnin
samhliða. Fyrirtæki sem taki þátt í
verkefninu þurfi m.a. að uppfylla
öryggis- og trúnaðarkröfur. Aðeins
fyrirtæki sem hafi skráð sig í
gagnagrunn bandarískra yfirvalda
á https://www.sam.gov/portal/
SAM/#1#1 geti tekið þátt í út-
boðsferlinu.
Breytingarnar á flugskýli 831
munu felast í endurnýjun á hurð
flugskýlisins og rafkerfi sem flug-
vélar tengjast við. Kostnaðaráætl-
un nemur 12,8 milljónum Banda-
ríkjadölum, eða sem nemur 1,27
milljörðum króna.
Flugvélaþvottastöðin sem hanna
á og reisa verður sjálfvirk þvotta-
stöð og kostnaðaráætlun vegna
framkvæmdarinnar hljóðar upp á
4,33 milljónir dollara eða um 430
milljónir króna.
Fara eftir íslenskum reglum
Halldór Ó. Sigurðsson, forstjóri
Ríkiskaupa, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hlutverk
Ríkiskaupa hefði einvörðungu ver-
ið að koma ofangreindum upplýs-
ingum á framfæri á íslenskum
markaði. „Bandarískum stjórn-
völdum, sem fjármagna þessar
framkvæmdir, hefði í raun verið
heimilt að annast sjálf þessar
framkvæmdir, eða að láta banda-
ríska verktaka annast framkvæmd-
irnar. En þeim var mikið í mun að
framkvæmdin færi í einu og öllu að
íslenskum byggingarreglugerðum
og að íslenskir verktekar hefðu
tækifæri til þess að bjóða í verkið.
Þess vegna leituðu þeir aðstoðar
okkar og óskuðu eftir því að við hjá
Ríkiskaupum sæjum um þessi
formsatriði,“ sagði Halldór.
Framkvæmir fyrir 1,7 milljarða
Bandaríkjaher býður út verk á Keflavíkurflugvelli Flugskýli breytt og sjálfvirk þvottastöð
fyrir flugvélar verður reist Einungis íslenskir og bandarískir verktakar geta boðið í verkin
Ljósmynd/vf.is/Hilmar Bragi
Flugskýli 831 Stefnt er að því að framkvæmdir við endurbætur á flugskýlinu muni geta hafist í haust.
Framkvæmdir
» Ný hurð og rafkerfi fyrir
flugvélar Bandaríkjahers verða
sett upp í flugskýlinu.
» Reist verður sjálfvirk flug-
vélaþvottastöð sem mun ann-
ast þvott herflugvéla.
» Gert er ráð fyrir að verkefnin
tvö við flugskýlið og sjálfvirku
þvottastöðina verði unnin
samhliða og munu þau kosta
um 1,7 milljarða króna.
Níutíu prósentum þeirrar raforku
sem notuð er af gagnaverum á Ís-
landi er ráðstafað í vinnslu raf-
mynta, samkvæmt nýrri skýrslu
KPMG um íslenska gagnaversiðnað-
inn.
„Hátt hlutfall af raforku sem notuð
er til vinnslu rafmynta er gríðar-
mikil áhætta fyrir gagnaversiðnað-
inn á Íslandi vegna þess að hann er
þar af leiðandi berskjaldaður gagn-
vart markaðsþróun rafmynta
samanborið við gagnaversiðnað ann-
arra landa,“ segir í skýrslunni. Þar
kemur einnig fram að Ísland sé að
tapa samkeppnisforskoti í gagna-
versiðnaði. Engu að síður segir að ís-
lensk fyrirtæki í iðnaðinum búist við
allt að 300% vexti í greininni á árinu.
Í fréttatilkynningu frá Samtökum
iðnaðarins vegna skýrslunnar segir
að gagnaversiðnaður hafi vaxið tals-
vert á heimsvísu á undanförnum ár-
um. Gögn séu helsta hrávara fjórðu
iðnbyltingarinnar sem snýst að
miklu leyti um söfnun gagna og úr-
vinnslu.
„Það verður því vaxandi þörf fyrir
gagnaver og stjórnvöld í hinum
ýmsu ríkjum hafa keppst um að laða
til sín slíka starfsemi með mark-
vissri stefnumótun og ýmsum að-
gerðum henni tengdum. Hér á landi
skortir stjórnvöld framtíðarsýn um
gagnaversiðnaðinn og ef ekkert
verður að gert mun Ísland dragast
aftur úr í samkeppni ríkja og missa
af tækifærum á þessu sviði.“
Samtök iðnaðarins leggja jafnframt
til að stjórnvöld myndi sér stefnu og
að ráðist verði í margvíslegar að-
gerðir til að efla umhverfi gagna-
versiðnaðarins sem skapi mikil verð-
mæti, auki fjölbreytni í útflutningi
og styðji þannig við uppbyggingual-
þjóðageirans. thorgerdur@mbl.is
Mikil áhætta í
gagnaversiðnaði
Óvarinn fyrir markaðsþróun rafmynta