Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018
Sameinar það besta í rafsuðu
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Í fyrradag kvöddu tveir þingmennsér hljóðs og ræddu sjávarútvegs-
mál. Annar fastur í eigin kreddum og
fordómum, hinn í
ágætum tengslum við
raunveruleikann.
Oddný G. Harð-ardóttir, þing-
maður Samfylking-
arinnar, hefur eins
og flokksfélagar
hennar gjarnan horn
í síðu sjávarútvegs-
ins. Hún sér ofsjónum
yfir því að hér hafi
tekist að halda uppi
skynsamlegu stjórn-
kerfi fiskveiða, sem
meðal annars hefur
leitt af sér vaxandi
fiskistofna, og vill nýta þá staðreynd
til að varpa kerfinu fyrir róða.
Hún vill bjóða upp þá aukningu ífiskveiðiheimildum sem mögu-
leg er og kallar það að „jafna stöðu
þeirra sem þegar eru í útgerð og
þeirra sem hafa hug á að hefja út-
gerð“.
Oddný lætur það ekki trufla sig aðútgerðum hefur aldrei verið
bætt þegar kvótinn hefur verið skert-
ur eða að á síðustu árum hefur
kreppt að í sjávarútvegi.
Sem betur fer komast önnur sjón-armið að á þingi. Haraldur Bene-
diktsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, benti á gríðarlega hækkun
veiðigjalda þrátt fyrir versnandi
rekstrarumhverfi og að fjárhæð
veiðigjaldanna væri ekki í neinu sam-
ræmi við veruleikann í dag.
Það er með ólíkindum að við versn-andi ytri skilyrði og ofurskatta
skuli þingmanni Samfylkingarinnar
þykja boðlegt að mæla með að út-
gerðin verði að auki svipt aflaheim-
ildum.
Oddný G.
Harðardóttir
Ólíkt hafast
þingmenn að
STAKSTEINAR
Haraldur
Benediktsson
Veður víða um heim 22.3., kl. 18.00
Reykjavík 4 alskýjað
Bolungarvík 2 slydda
Akureyri 7 léttskýjað
Nuuk -9 snjókoma
Þórshöfn 7 súld
Ósló -1 þoka
Kaupmannahöfn 2 alskýjað
Stokkhólmur 5 skýjað
Helsinki 0 skúrir
Lúxemborg 2 skúrir
Brussel 6 súld
Dublin 7 rigning
Glasgow 8 alskýjað
London 9 skýjað
París 8 alskýjað
Amsterdam 6 þoka
Hamborg 5 súld
Berlín 3 súld
Vín 5 heiðskírt
Moskva -1 skýjað
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 16 heiðskírt
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 9 léttskýjað
Aþena 18 skýjað
Winnipeg 0 snjókoma
Montreal 1 skýjað
New York 4 heiðskírt
Chicago 4 heiðskírt
Orlando 15 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
23. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:18 19:52
ÍSAFJÖRÐUR 7:21 19:58
SIGLUFJÖRÐUR 7:04 19:41
DJÚPIVOGUR 6:47 19:22
Lilja Alfreðs-
dóttir, mennta- og
menningarmála-
ráðherra, segist
ekki vita til þess
að fólki hafi verið
vísað frá námi
vegna 25 ára regl-
unnar, sem setur
þá sem eru eldri
en 25 ára aftar í
röðina við innritun
í framhaldsskóla. Hún segir regluna
hins vegar hafa verið fælandi fyrir
marga og vill því afnema hana. „Meg-
intilgangur minn með þessu er að ein-
falda aðgengi að framhaldsskólastig-
inu og þetta er liður í því. Við heyrum
og vitum að fólk sem er eldra en 25
ára hefur veigrað sér við að fara á
framhaldsskólastigið vegna þess að
það hefur hreinlega haldið að þetta
stæði því síður til boða en öðrum,“
segir Lilja.
Hún segir að með þessu sé verið að
senda skýr skilaboð um að nám sé op-
ið fyrir þá sem vilja skrá sig.
„Þetta hefur áhrif á væntingar fólks
og hefur virkað sem ákveðin hindrun,
ef það er svo, þá gerum við þessa
reglugerðarbreytingu og ég held að
þetta muni koma vel út.“ mhj@mbl.is
Engum vísað
frá námi
vegna aldurs
25 ára reglan hins
vegar talin fælandi
Lilja
Alfreðsdóttir
Reykjavíkurborg kynnti aðgerða-
áætlun í leikskólamálum í borgarráði
í gær, þar sem kom í ljós að til þess
að brúa bilið milli fæðingarorlofs og
leikskóla þarf að fjölga leikskóla-
plássum um 750 til 800.
Áætlunin gerir ráð fyrir að sjö nýj-
um ungbarnadeildum verði komið
upp næsta haust auk þess sem fimm
til sex nýir leikskólar verði byggðir á
næstu árum. Stendur einnig til að
bæta aðstöðu á leikskólum og vinnu-
umhverfi leikskólakennara og annars
starfsfólks.
Tillögur um uppbyggingu leikskól-
anna byggjast á vinnu starfshóps um
verkefnið að brúa bilið milli fæðing-
arorlofs og leikskóla, sem borgar-
stjóri skipaði á vordögum 2016.
Opna deildir eftir eftirspurn
Lagt er til að opnaðar verði nýjar
leikskóladeildir við leikskóla í þeim
hverfum þar sem eftirspurn eftir
leikskólaplássum er mest. Gert er
ráð fyrir að þær leikskóladeildir
verði m.a. í Seljahverfi, Háaleiti,
Fossvogi, Laugardal og Grafarholti.
Þær aðgerðir munu fjölga leik-
skólaplássum um 110-126 á næstu sjö
mánuðum. Þá var einnig samþykkt í
borgarráði tillaga um að auglýst yrðu
60 sumarstörf á leikskólum fyrir
ungt fólk sem hefur áhuga á námi í
kennslu- og uppeldisfræðum.
mhj@mbl.is
Leikskólaplássum fjölgað í borginni
Þörf á 750 til 800 leikskólaplássum á næstu árum Fjölga sumarstörfum
Morgunblaðið/Eggert
Borgarstjóri Aðgerðaáætlun kynnt.