Morgunblaðið - 23.03.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 / www.bl.is
GE bílar
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
KOMDU OG
REYNSLUAKTU
NÝJUM NISSANMICRA
NISSANMICRA
VERÐ FRÁ: 2.190.000 KR.
HUGVITSSAMLEG
NEYÐARHEMLUN
ELDSNEYTISNOTKUN FRÁ:
DÍSIL 3,2 L/100 KM.*
BENSÍN 4,4 L/100 KM.*
AKGREINAVIÐVÖRUN
OG LEIÐRÉTTING
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
6
5
2
6
*M
ið
að
vi
ð
up
pg
ef
na
rt
öl
ur
fra
m
le
ið
an
da
um
el
ds
ne
yt
is
no
tk
un
íb
lö
nd
uð
um
ak
st
ri.
B
íll
á
m
yn
d
N
is
sa
n
M
ic
ra
Te
kn
a.
Ve
rð
2
.6
9
0
.0
0
0
kr
.
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Að plokka er það nýjasta í hreyfingu,
útivist og umhverfisvitund en það
snýst um að tína upp rusl á förnum
vegi á meðan gengið er eða skokkað.
Það mætti segja að hálfgert plokk og
skokk æði sé við það að grípa land-
ann en Einar Bárðarson vonar að
það verði varanlegur lífsstíll sem
flestra. Einar er samskiptastjóri
Hafnarfjarðarbæjar og setti nýverið
á laggirnar Facebook-síðuna Plokk á
Íslandi þar sem hægt er að deila
reynslusögum, spyrja út í plokkið og
krunka sig saman í plokkhópa. „Við
lítum á Plokk á Íslandi sem sameig-
inlegan vettvang þar sem allir geta
deilt og hvatt til hreyfingar og
hreinsunar,“ segir Einar og bendir
líka á síðurnar Plogging Iceland og
Plokk í Breiðholti.
Margfalt meiri ánægja
„Plast er orðið ófreskja í umhverfi
okkar. Ég hef alltaf haft aðdáun á
framtaki Sigurðar G. Guðjónssonar
lögmanns sem hefur það fyrir sið að
ganga um Elliðaárdalinn og safna
rusli sem hann setur myndir af á
Facebook-síðuna Rusl í Reykjavík. Í
fréttum í fyrrasumar var fjallað um
mann sem var að hlaupa úti og tína
upp rusl í vegköntum og svo sá ég
vídeó um plogg í Svíþjóð og hugsaði
þá með mér að starta þessu hér á
landi og sjá hvernig fer," segir Einar
um tilurð Plokk á Íslandi.
Sjálfur röltir hann reglulega um
Hafnarfjörð og tínir upp rusl. Inni á
síðunni má líka sjá myndir af konum
í Hafnarfirði sem kalla sig Tölt með
tilgang, þær eru í fæðingarorlofi og
ganga um með barnavagnana og tína
upp rusl.
„Það er stórkostlegt að sameina
áhuga á útiveru og umhverfismeðvit-
und, ánægjan af því að fara út og
hreyfa sig verður margfalt meiri
með því að gera það með þessum
hætti. Margt smátt gerir eitt stórt
og þetta vekur vonandi fólk líka til
vitundar um að henda ekki rusli út í
náttúrunni. En ég held að hluti af
ruslinu sé líka til kominn vegna þess
að það er ekki búið nógu vel um
ruslatunnurnar sem opnast í miklu
roki og það fýkur úr þeim. Þá plokka
fuglar rusl upp úr grænu ruslatunn-
unum sem eru á almannafæri í flest-
um sveitarfélögum svo það fer út um
allt.“
Plokk komið víða
Svíar byrjuðu á plokkinu fyrir al-
vöru 2016 og hafa nú myndast plokk-
hópar um alla Evrópu. Samkvæmt
grein í The Washington Post frá því í
lok febrúar er plokk líka að koma til
Bandaríkjanna. Í Svíþjóð er þessi at-
höfn kölluð plogging og er það sam-
sett úr orðunum jogging (skokka) og
plocka upp (taka upp). Á íslensku er
þetta kallað plokka sem merkir að
tína upp. „Ég fór inn á síðu þar sem
áhugamenn um íslenskt mál ræða
sín á milli og bað um aðstoð við að
finna besta nafnið á þetta. Það komu
allskonar útfærslur en að plokka er
íslensk sögn sem passar vel við
skokk svo það lá beinast við,“ segir
Einar.
Plokk er hreyfing og hreinsun
Plokkarar sameina áhuga á útiveru og umhverfismeðvitund með því að tína rusl
á göngu eða hlaupum Einar Bárðarson stofnaði hópinn Plokk á Íslandi
Ljósmynd/Árdís Ármannsdóttir
Mömmur í rusli Um leið og sólin fór að láta sjá sig fór þessi mömmuhópur í Hafnarfirði að tölta með tilgang og
hreinsa rusl. „Ruslið varð ansi áberandi um leið og snjórinn hvarf og leiðinlegt að horfa upp á það á gönguferð um
fallega fjörðinn okkar. Þá þýðir ekkert annað en að láta hendur standa fram úr ermum enda á hreinsun að vera
sameiginlegt verkefni okkar allra,“ segir Árdís Ármannsdóttir ein í hópnum sem í eru 15 mömmur í fæðingarorlofi.
„Þetta hefur eiginlega orðið til þess að við förum varla út fyrir hússins dyr án þess að taka poka með okkur.“
Facebook-
hópurinn Plokk í
Breiðholti var
stofnaður fyrir
fimm dögum og
eru meðlimir nú
þegar orðnir
hátt í tvö hundr-
uð. Þau eru búin
að tína upp rusl
einu sinni og
ætla aftur næsta sunnudag.
Margrét T. Friðriksdóttir, sem
stofnaði hópinn, segir plokk
sameina útiveru, umhverfisvernd
og hreyfingu. „Markmiðið er ekki
að vera með heilu sekkina utan á
sér eða að þurfa að leggja lykkju
á leið sína fyrir ruslið. Besti ár-
angurinn næst með því að fara
yfir stór svæði og tína upp það
sem stingur í augu, ekki vera að
tína upp hvern sígarettustubb þó
sumir geri það líka.“
Margrét segir það mjög gott
fyrir sálina að gera gagn og að
sjá hvernig umhverfið verður fal-
legra. „Um leið og fólk sér árang-
ur fær það kannski meiri áhuga á
umhverfisvernd og áttar sig á því
að það hefur mikið að segja um
hvernig umhverfið lítur út. Um-
hverfið líður fyrir hirðuleysi,
hvort heldur sem það er borgar-
innar eða okkar.“
Mjög gott
fyrir sálina
PLOKK Í BREIÐHOLTI
Margrét T.
Friðriksdóttir