Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018
Nýju togararnir Páll Pálsson ÍS og
Breki VE lögðu frá bryggju í borg-
inni Shidaho í Rongcheng-héraði í
Kína í gærmorgun að íslenskum
tíma en þá var klukkan 16 að stað-
artíma. Framundan var um 50 daga
og 11.300 mílna sigling heim til Ís-
lands. Vonast er til að skipin verði
komin til heimahafna ekki síðar en
um miðjan maí.
Að sögn Magnúsar Ríkarðssonar,
skipstjóra á Breka, var mikil umferð
á siglingaleiðinni fyrst í stað og mik-
ill fjöldi fiskibáta. „Við fórum rólega
af stað, en eftir að við komumst út úr
kraðakinu, eftir um klukkutíma, höf-
um við siglt á um 11,5 mílum,“ sagði
Magnús um hádegi í gær. „Það er
blíðuveður hérna, logn og sléttur
sjór, og ekkert óvænt komið upp á.“
Magnús sagði að í gær hefði verið
rúmlega sex gráðu hiti, en eftir um
tvo sólarhringa yrði hitinn eflaust
orðinn mun hærri. Vatnið í tönkum
skipanna er ónothæft til neyslu og
voru teknir 2.500 lítrar af vatni á
flöskum og brúsum til að nota í
fyrsta leggnum, sem áætlað er að
taki 17 daga. Í fyrsta áfanga verður
siglt suður fyrir Singapore og olía og
vistir síðan teknar í Colombo á Sri
Lanka.
Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum
og Hraðfrystihúsið-Gunnvör á
Hnífsdal eiga skipin og var samið um
smíði þeirra í byrjun júní 2014. Þá
var miðað við að þau gætu komið til
landsins á miðju ári 2016. aij@mbl.is
Systurskip Páll Pálsson ÍS og Breki VE hafa verið samferða frá því að smíði þeirra hófst í Shidaho í Kína.
Lagt af stað í 50
daga heimsiglingu
Sigldu á 11,5 mílum suður Gula hafið
„eftir að við komumst út úr kraðakinu“
Ljósmynd/Finnur Kristinsson
Á heimleið Magnús Ríkarðsson á
Breka dregur kínverska fánann niður.
Skipulagsnefnd Rangárþings eystra
hefur tekið jákvætt í fyrirspurn
Ferðafélags Íslands um lagningu raf-
strengs milli Húsadals og Langadals í
Þórsmörk. Að mati skipulagsnefndar-
innar er um framkvæmdaleyfisskylda
framkvæmd að ræða. Í fundargerð
segir að mikilvægt sé að gott samráð
verði haft við alla hagsmunaaðila á
svæðinu, þ. á m. Rarik, forsætisráðu-
neyti og Skógræktina á undirbún-
ingstíma framkvæmdarinnar.
Páll Guðmundsson, framkvæmda-
stjóri Ferðafélagsins, segir að um sé
að ræða 1,8 kílómetra rafstreng sem
lagður yrði í jörð. Þegar sé búið að
finna góða leið, sem sé eftir að ræða
við viðkomandi, en áhersla verði lögð
á að ummerki um framkvæmdirnar
verði ekki sýnileg eftir eitt ár eða svo.
Jákvætt sé að erindinu hafi verið vel
tekið og segist Páll vonast til að verk-
efnið geti gengið vel og hratt fyrir sig.
Ferðafélagið hefur verið með starf-
semi í Langadal í 60 ár og fyrir um tíu
árum keypti félagið skála í Húsadal af
Kynnisferðum. Páll segir að rafvæð-
ing skálanna sé bæði umhverfisvæn
og hagkvæm og gjörbreyti aðstöð-
unni. Áður hafi verið notast við ljósa-
vélar, kamínur og gas, en með því að
fá rafmagn í skálana þurfi ekki lengur
að flytja olíu með olíubílum í skálana.
aij@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þórsmörk Skagsfjörðsskáli og önnur mannvirki í Langadal á sumardegi.
Vilja leggja raf-
streng í Langadal
Bæði umhverfisvænt og hagkvæmt
Sigríður er lektor
við Landbúnaðar-
háskóla Íslands
Ranghermt var á síðu 14 í Morg-
unblaðinu miðvikudaginn 21. mars
að Sigríður Kristjánsdóttir, lektor í
skipulagsfræðum, starfaði við Land-
búnaðarháskólann á Hólum. Það
rétta er að Sigríður starfar við
Landbúnaðarháskóla Íslands og er
með starfsstöð í Reykjavík.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
LEIÐRÉTT
Galleri Ozone | Austurvegi 35 | 800 Selfoss | S. 534 8040 | Skoðaðu úrvalið á | Sendum frítt um land allt
Nýjar vörur
TOPPUR
9.990,-
ST: 36-44
Full búð af nýjum
vorvörum
Kringlunni 4c – Sími 568 4900
JAKKI
9.99O,-
ST: S-XXL
Fleiri litir til
KJÓLL
22.990,-
ST: 38-44
Fasteignir
Viðskipti