Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 14

Morgunblaðið - 23.03.2018, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Starfshópur á vegum sveitarfélag- anna á höfuðborgarsvæðinu og Vegagerðarinnar hefur samið til- lögur að samræmdum leiðbeining- um um hönnun hjólreiðastíga. Einnig er unnið að samræmingu vetrarþjónustu hjólastíga og að- gerðum til að koma betri reglu á hjólaumferðina. Stofnun starfshópsins var liður í samkomulagi sem Samtök sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) og Vegagerðin gerðu á árinu 2015 þegar vinnu við svæð- isskipulag höfuðborgarsvæðisins var að ljúka. Páll Guðjónsson, framkvæmdastjóri SSH, segir að þörf sé á samræmingu með vax- andi umferð reiðhjóla og bætir við að eftir því sem forsendur þessa ferðamáta verði betri aukist lík- urnar á að notkunin aukist. Í skýrslu starfshópsins kemur fram að spáð er mikilli aukningu í notk- un rafmagnsreiðhjóla á næstu ár- um. Samræmi á öllu svæðinu Starfshópurinn lét semja sam- ræmdar leiðbeiningar um hönnun fyrir hjólreiðar og leggur til að þær verði gefnar út á þessu ári og í byrjun þess næsta. Páll segir að við vinnu hópsins hafi komið fram að hjólastígakerfi svæðisins þarfn- ist endurbóta og jafnvel nýrra stíga. Einnig sé hugað að því hvar séu forsendur til að skilja að hjól- andi fólk og gangandi. Þjónusta á göngu- og hjólastíg- um sem skilgreindir eru sem stofnleiðir hjólaleiða milli sveitar- félaganna er mismunandi eftir sveitarfélögunum. Sá sem hjólar á milli sveitarfélaganna veit því ekki hvort og þá hvenær stígurinn er mokaður eða hálkuvarinn að vetri eða sópaður að sumri. Starfshópurinn telur mikilvægt að samræma þjónustuna til að koma til móts við þarfir hjólafólks sem kýs að nota hjólið sem sam- göngutæki yfir vetrartímann. Til að ná þessu markmiði er til skoð- unar að fara í sameiginlegt útboð á snjómokstri og hálkuvörnum stíg- anna. Því til undirbúnings er talin þörf á að fara í ítarlega úttekt á stígunum og þarfagreiningu þar sem notkun stíganna er kortlögð, sérstaklega að vetrarlagi. Reykjavíkurborg er með reið- hjólateljara á Suðurlandsbraut. Sveitarfélögin hafa ákveðið að vinna saman að því að setja upp hjólateljara á öllu höfuðborgar- svæðinu fyrir sumarið. Settir verða upp að minnsta kosti 20 telj- arar. Þeir telja bæði hjólandi veg- farendur og gangandi og mæla hraðann. Bæta þarf hjólamenninguna Páll Guðjónsson segir mikilvægt að bæta hjólreiðamenninguna sem hann segir að hafi verið að þróast til verri vegar. Hjólareiðahópurinn kom fram með nokkrar ábending- ar varðandi það, meðal annars um að breyta þurfi umferðarlögum og vegalögum og farið verði í sér- staka skoðun á umferðarmerkjum á stígum. Þegar drög að tillög- unum voru kynnt í stjórn SSH voru gerðar athugasemdir við að ekki væri nógu skýrt kveðið á um hvernig draga ætti úr óæskilegum hraða hjólreiðamanna á stígum og fá þá til að virða forgang gangandi fólks. Í framhaldi voru ráðgjafar fengnir til að taka saman hvernig staðið er að málum á hinum lönd- unum á Norðurlöndum. Þar eru yfirborðsmerkingar og skilti mest notuð. Skýrslan er nú til skoðunar hjá sveitarfélögunum. Páll á frekar von á því að starfshópur verði skipaður til að fylgja málinu eftir þegar sátt hefur náðst um það hvað skuli gera. Hjólastígar og þjónusta samræmd  Tillögur um sameiginlegt útboð á snjómokstri og hálkuvörnum á hjólastígum höfuðborgarsvæðis  Settir verða upp hjólateljarar með hraðamælingum  Hugað að aðgerðum til að draga úr hraða Morgunblaðið/Hari Hjólandi Páll Guðjónsson, framkvæmdastjóri SSH, segir að eftir því sem forsendur þessa ferðamáta verði betri aukist líkur á að notkun verði meiri. Mikilli aukningu er spáð í notkun rafmagnsreiðhjóla á næstu árum. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is „Í frumvarpinu er alltof lítið gert til að tryggja öryggi hjólreiðafólks, sem hefur fjölgað mjög mikið frá gildistöku núgildandi umferðarlaga,“ segir Birgir Fannar Birgisson í athugasemdum á samráðsgátt stjórnvalda við frumvarpsdrög að nýjum umferðarlögum, sem samgöngu- ráðuneytið kynnti til umsagnar. Er gagnrýni hjólreiðamanna áberandi meðal þeirra 47 um- sagna sem bárust en þeir telja hvergi nærri nógu langt gengið í að tryggja aðstöðu og ör- yggi hjólreiðafólks. Erlendur Smári Þorsteinsson segir að sér sem reyndum hjólreiðamanni „fallist hendur við að lesa breytingarnar um hjólreiðar“. Hann segir breytingar ekkert gera til að auka öryggi hjólreiðafólks en í staðinn séu gerðar ,,skrýtnar breytingar til að fást við meinta og óútskýrða hættu sem gangandi fólki virðist eiga að stafa af hjólreiðafólki en þær „hættur“ standast enga eðlisfræðirýni, á meðan ekkert er gert til að fylgja eftir ábyrgð bílstjóra gagnvart hjólreiða- fólki.“ Mælir hann með að teknar verði upp breskar reglur um að hjóla í tvöfaldri röð nema að sér- staklega þurfi að hjóla í einfaldri röð. Hér sé þessu snúið á haus með reglu um að hjólreiða- menn hjóli í einfaldri röð en megi í undantekn- ingartilvikum hjóla samhliða þar sem nægilegt rými er og það er unnt án hættu eða óþæginda. „[…]öryggi í umferðinni snýst ekki um að það verði að vernda þessi viðkvæmu blóm, sem bíl- stjórar greinilega eru, fyrir óþægindum og pirr- ingi. Hjólreiðamenn hjóla ekki hlið við hlið til að pirra aðra vegfarendur, þeir gera það til að auka sitt eigið öryggi.“ Mikil umfjöllun er um innleiðingu í drögunum á svonefndri ,,danskri beygju“ á ljósastýrðum gatnamótum og sýnist sitt hverjum. Verði sú regla sem á fyrirmynd í Danmörku lögfest þurfa hjólreiðamenn sem koma að ljósastýrðum gatnamótum og ætla að beygja til vinstri að fara beint áfram yfir gatnamótin og bíða þar eftir grænu ljósi áður en þeir beygja og halda áfram. Landssamtök hjólreiðamanna benda á að hing- að til hafi hjólandi haft frelsi til að beygja til vinstri með annarri umferð, óþarfi sé að skerða það frelsi með reglum sem við sum gatnamót sé bókstaflega ekki hægt að fylgja eða setji hjól- reiðamanninn í hættulegri aðstæður en ella. Tvískipt vinstri beygja hættuleg „Að mati reyndra hjólreiðamanna er mun hættulegra að taka tvískipta vinstri beygju á ljósastýrðum gatnamótum heldur en venjulega vinstri beygju. Nánast enginn tekur tvískipta vinstri beygju á akbraut á Íslandi. Einfaldlega vegna þess að vanir hjólreiðamenn álíta hana réttilega hættulega og þeir sem eru hræddir í umferð eru uppi á gangstétt eða stíg og taka í raun tvískipta vinstri beygju þar. Auk þess vantar mannvirkin hér á landi sem eru í Dan- mörku og gera dönskum hjólreiðamönnum kleift að taka þessa gerð vinstri beygju,“ segir í athugasemdum samtakanna. Jón Arnar Briem segir að svo virðist sem höf- undar frumvarpsdraganna hafi ekki mikla reynslu af hjólreiðum hér á landi og í mörgum tilfellum sé beinlínis verið að skylda hjólreiða- fólk til að haga sér með hætti sem dregur úr ör- yggi þess. Mikið er fjallað um öryggi og hættur þegar um framúrakstur er að ræða og telja Lands- samtök hjólreiðamanna nauðsynlegt að skil- greina lágmarksfjarlægð við a.m.k. 1,5 metra þegar tekið er fram úr hjólandi vegfaranda. Jafnvel mætti skilgreina meiri fjarlægð úti á þjóðvegum. Of lítið hugað að öryggi hjólreiðafólks  Margar umsagnir um frumvarp að umferðarlögum  „Hjólreiðamenn hjóla ekki hlið við hlið til að pirra aðra vegfarendur“  Lágmarksfjarlægð við framúrakstur verði að lágmarki 1,5 metrar Þvottadagar WW70vottavélKG. 1400 SN. co Bubble olalaus mótor. erð nú 59.900,- V70M urrkari A++ KG. barkarlaus urrkari. armadæla í stað ments. erð nú 76.900,- TM 59.90 0,- Væntanleg ur URRKARI 6DBM720G ekur 7 kg af þvotti. ður: 99.900,- Nú: ,- 16097949 15% ÞVottAVél L6FBE720I Tekur 7 kg af þvotti. 1200 snúningar. Öll hugsanleg þvottakerfi. Íslensk notendahandbók. Verð áður: 89.900,- 914913404 15% Lágmúla 8 - Sími 530 2800Umboðsmenn um allt land - Ormsson.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.