Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 19
19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018
Reykjavíkurtjörn Baráttan um brauðið er háð daglega við Tjörnina. Grágæs var heppin í gær þegar hún náði vænum brauðbita og tók strax til fótanna til að forða fengnum frá hinum gæsunum.
Eggert
Þegar ráðherrar
Sjálfstæðisflokksins
sátu fyrir svörum á 43.
landsfundi flokksins
laugardaginn 17. mars
spurði Gunnar Einars-
son, bæjarstjóri í
Garðabæ, utanríkis-
ráðherra hvort „útspil
Breta“ gagnvart Rúss-
um breytti einhverju
um þátttöku íslenskra
knattspyrnumanna í HM í Rúss-
landi.
Guðlaugur Þór Þórðarson gerði
réttilega athugasemd við orðalagið
„útspil Breta“ – breska ríkisstjórnin
hefði ekki átt neitt „útspil“ heldur
tækju ákvarðanir hennar mið af fá-
heyrðu athæfi Rússa, beitingu gjör-
eyðingarvopns í bæ á Suður-
Englandi. Við því yrði að bregðast
þótt það breytti engu um þátttöku
íslenska landsliðsins í HM.
Síðan þessi orðaskipti urðu hafa
samskipti Breta og Rússa enn
versnað. Framganga rússneskra
stjórnvalda gagnvart Rússum bú-
settum í Bretlandi vekur mikinn ótta
meðal margra þeirra. Þeir vita sem
er að skilin milli löglegra rússneskra
stjórnvalda og handlangara þeirra
utan laga og réttar eru horfin. Það
sé í raun til marks um nýja tegund
ógnarstjórnar að deilt sé um hvort
Vladimír Pútín forseti hafi tekið
ákvörðun um beitingu taugaeiturs-
ins gegn feðginunum í Salisbury eða
menn úr nánasta hringnum um-
hverfis hann hafi gert það án sam-
ráðs við hann.
Mikhail Khodorkovskíj var á sín-
um tíma auðugasti maður Rússlands
en Pútín lét handtaka
hann fyrir skattsvik ár-
ið 2003 og sat hann 10
ár í fangelsi áður en
hann var óvænt náð-
aður og slapp til Vest-
urlanda. Vegna for-
setakosninganna í
Rússlandi sunnudaginn
18. mars ræddi Kho-
dorkovskíj við vest-
ræna fjölmiðla og lagði
áherslu á að ef til vill
væri Pútín ekki lengur
sjálfs sín herra. Hann
yrði að fara að óskum fámenns hóps
sem starfaði innan og utan laga
landsins og vildi ekki annan í hans
stað af ótta við að missa spón úr aski
spillingarinnar.
Andstaða við ACER
Í ályktun atvinnuveganefndar 43.
landsfundar sjálfstæðismanna segir:
„Sjálfstæðisflokkurinn hafnar frek-
ara framsali á yfirráðum yfir ís-
lenskum orkumarkaði til stofnana
Evrópusambandsins.“ Þessi setning
vakti mikla athygli í Noregi. Strax
sama kvöldið og landsfundinum lauk
birtist frétt um hana á norsku vef-
síðunni ABC Nyheter undir fyr-
irsögninni: Islandsk bombe under
EUs energibyrå ACER – Íslensk
sprengja undir orkustofu ESB,
ACER.
Orkustofnun Íslands er aðili að
The Council of European Energy
Regulators (CEER) – Ráði evr-
ópskra eftirlitsaðila á orkumarkaði
sem var stofnað árið 2000 til að
stuðla að samstarfi sjálfstæðra eft-
irlitsaðila á þessu sviði. CEER starf-
ar með ACER, sem kom til sög-
unnar árið 2011 og hefur aðsetur í
Ljubljana í Slóveníu. ACER er hluti
af stofnanakerfi ESB með yfirþjóð-
legt vald en CEER er sjálfstæð sam-
tök ríkja skráð í Belgíu. Markmið
CEER og ACER eru svipuð, ACER
framfylgir því sem lögbundið er en
CEER sinnir öllu öðru sem varðar
eftirlit á orkumarkaði.
Aðild að ESB-stofnuninni ACER
(Agency for the Cooperation of
Energy Regulators, Samstarfs-
stofnun eftirlitsaðila á orkumarkaði)
var tekin upp í EES-samninginn 5.
maí 2017. Alþingi hefur ekki enn
fjallað um aðild Íslands að ACER en
hart hefur verið barist um málið í
Noregi. Innan ESB kalla menn
stefnu sambandsins og framkvæmd
hennar í orkumálum „orkusamband
Evrópu“ og innan þess ramma gegn-
ir ACER vaxandi hlutverki. Að
stefnan sé kennd við „orkusamband“
sýnir hvert er stefnt: ESB vill ná
tökum á orkuauðlindinni.
Það var misráðið undir lok 20. ald-
arinnar að láta undir höfuð leggjast
af Íslands hálfu að gera fyrirvara um
aðild að því sem nú er kallað „orku-
samband Evrópu“, fyrirvara sem
tæki mið af þeirri staðreynd að Ís-
land á vegna legu sinnar ekki aðild
að sameiginlegu orkudreifingarkerfi
ESB-landanna og Noregs. Hags-
munir Norðmanna eru allt aðrir en
Íslendinga í þessu efni vegna
margra tenginga norsks raforku-
markaðar við ESB-svæðið.
Verði Ísland aðili að ACER tekur
þessi ESB-stofnun að líkindum við
eftirlitshlutverki Orkustofnunar t. d.
með Landsneti og fær þar með loka-
orð um ákvörðun flutningsgjalds
raforku til almennings og stóriðju á
Íslandi.
Að andstæðingar yfirþjóðlegs
valds í orkumálum skuli hafa flutt
mál sitt með þeim árangri sem við
blasir á landsfundi sjálfstæðismanna
verður vonandi til þess að þingmenn
flokksins stigi ekkert skref í þessu
máli sem sviptir Íslendinga fullveld-
isréttinum yfir orkuauðlindunum.
Varðstaðan um
fullveldisréttinn
Varðstaða landsfundarfulltrúa um
fullveldisréttinn birtist ekki aðeins í
því sem að ofan segir. Fundurinn
áréttaði að hagsmunum Íslands væri
best borgið utan ESB. Þar var einn-
ig ályktað á þennan veg: „Sjálfstæð-
isflokkurinn gerir verulegar at-
hugasemdir við að tekin sé upp
löggjöf í EES-samninginn sem felur
í sér valdheimildir sem fellur utan
ramma tveggja stoða kerfis samn-
ingsins.“ Í orðunum felst andstaða
við að lúta yfirþjóðlegu valdi innan
EES-samstarfsins, til dæmis með
aðild að ACER.
Í ályktuninni segir einnig: „Nú
þegar aldarfjórðungur er liðinn frá
undirritun EES samningsins er
tímabært að gera úttekt á reynslu
Íslands af honum.“ Úttekt af þessu
tagi var gerð á árunum 2004 til 2007
og fyrir réttum 11 árum birtist ítar-
leg skýrsla um málið þar sem allir
þáverandi þingflokkar töldu að
EES-samstarfið hefði staðist tímans
tönn og mæltu með framhaldi þess.
Eigi að hefja svipað úttektarstarf
núna er skynsamlegt að hafa hlið-
sjón af því sem leiðir af útgöngu
Breta úr ESB (Brexit) því að hún
kann að geta af sér nýtt samstarfs-
líkan ESB við þriðju ríki.
Í byrjun vikunnar tilkynntu að-
alsamningamenn Breta og ESB,
David Davis og Michel Barnier, að
þeir hefðu náð samkomulagi um
tveggja ára umþóttunarsamning,
það er um stöðuna í samskiptum
Breta og ESB þar til varanlegur
samningur hefði verið gerður. Til að
ná þessum tímabundna samningi
urðu Bretar að slá af ýmsum kröfum
sínum, til dæmis um ráð yfir fisk-
veiðilögsögu sinni sem þeir fá ekki
fyrr en 2021. Veldur það Skotum
miklum vonbrigðum. Þá ýta samn-
ingamennirnir enn deilunni um
landamæri Írska lýðveldisins og
Norður-Írlands á undan sér.
Bretar fá að vísu heimild til að
nýta umþóttunartímann til að gera
viðskiptasamninga við önnur ríkin
án afskipta Brusselmanna. Þessa
heimild Breta verða íslensk stjórn-
völd að nýta sér og leggja grunn að
framtíðarsamstarfi við þá.
Í skýrslunni um EES-samninginn
frá 2007 er rík áhersla lögð á nauð-
syn þess að íslensk stjórnvöld fylgist
náið með öllu sem snertir hagsmuni
Íslands á vettvangi EES-samnings-
ins og nýti sér tækifæri sem hann
veitir til hagsmunagæslu og gerð
fyrirvara. Því miður var þessari her-
hvöt ekki verið fylgt sem skyldi. Við
tók tími undir forystu Samfylking-
arinnar sem vildi enga sérstöðu inn-
an EES heldur stefna á ESB-aðild.
Þeirri vegferð lauk með ósköpum.
Nú eru nýir tímar.
Eftir Björn
Bjarnason »Hagsmunir Norð-
manna eru allt
aðrir en Íslendinga
í þessu efni vegna
margra tenginga
norsks raforkumark-
aðar við ESB-svæðið.
Björn Bjarnason
Höfundur er fyrrv. ráðherra.
Sjálfstæðisflokkurinn krefst fullveldis í orkumálum