Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 28

Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 Kannski var það nafnið, eða óljósar hugmyndir um ætt- bogann, sem tengja fyrstu minn- ingu mína um Margréti við hug- myndina um heimskonu. Hún bar sig svo vel, fáguð í framkomu og yfir henni hvíldi mystík sem erfitt er að útskýra. En fyrst og fremst var hún góðhjörtuð og hlý manneskja með glettni í augna- ráðinu. Á heimili þeirra Sverris í Ljós- heimunum, og síðar á Sunnuveg- inum, var gott að koma. Sem barn í leit að leikfélaga, sem ung- lingur á leið á ball eða sem kona með fjölskyldu – alltaf hafði Mar- grét áhuga á því sem maður var að gera og hvernig öllum farn- aðist. Tíðarandinn var nefnilega þannig að það var ekki mikið ver- ið að spyrja mann skoðunar, eða hvað maður væri að gera, nema þá helst ef það gæti leitt til ein- hverra vandræða. Á fyrsta ári í menntaskóla var ég daglegur gestur í Ljósheim- unum. Fyrir utan það að hlusta á tónlist og dvelja í dagdraumum vörðum við Halla vinkona mín góðum tíma í eldhúsinu í mikilli sköpun. Fátt virtist getað raskað ró Margrétar og kom hún því vinalega á framfæri hvað betur mætti fara. Sjálf var hún lista- maður í eldhúsinu og að smakka franska lauksúpu í fyrsta skiptið fannst mér ævintýralegt. Ekki minna framandi varð lauksúpan þegar hún nefndi að í grunninn væri þetta ’Consommé’. Margrét var tungumálamann- eskja og gat fyrirhafnarlítið brugðið þeim fyrir sig, og var þá oft stutt í húmorinn. Eftir að hafa rýnt í menntasögu íslenskra kvenna sést að þegar Margrét lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík, árið 1949, var kvennahópurinn ekki stór sem lokið hafði prófi frá skólan- um. Á árinu 2015 lauk barnabarn Margrét Norland ✝ Margrét Þor-björg (Vil- hjálmsson) Norland fæddist 29. júlí 1929. Hún lést 8. mars 2018. Útför Margrétar fór fram 22. mars 2018. hennar, Margrét Halla, stúdentsprófi frá sama skóla. Ég reikna ekki með að það séu mörg dæmi hérlendis um þrjár kynslóðir kvenna í beinan ættlegg sem hafa sett upp hvíta kollinn. Heimskonuyfir- bragðið lýsti sér með ýmsu móti. Það fékk barnsfæturna til að límast við gólfið, kjálkann til að síga niður á bringu og sjáöldrin út úr höfðinu þegar ég fylgdist með því hvernig hægt var að halda fil- terslausum Camel á milli var- anna, tala og halda glóðinni. Þá hélt maður niðri í sér andanum því glóðin var alvega að fara að detta en það slapp – alltaf. Þjóðminjasafn Íslands setti upp sýninguna Silfur Íslands ár- ið 2013. Við systurnar nutum þess að skoða sýninguna og dvöldum við marga af mununum. Það var þó við lok sýningarinnar að ég tók andann á lofti þegar við blasti gyllt skautbúningsskart. Skart sem var tilkomumikið eins og um krúnudjásn væri að ræða. Um var að ræða höfðinglega gjöf Margrétar á skarti móðurömmu sinnar, og nöfnu, og er um ein- staka muni að ræða. Margrét var höfðingi á svo margvíslegan hátt. Ættarhöfð- ingi var hún, ræktaði tengsl og var þátttakandi í lífi afkomenda sinna. Hún átti náið samband við börnin sín og þau gættu hennar af einstakri alúð, umhyggju og elsku. Og kannski var það nafnið eftir allt sem átt sinn þátt í ljóm- anum því nafnið Margrét, með Þ sem upphafsstaf millinafns, bar jú konungborinn þjóðhöfðingi Dana. Elsku Halla, Nonni og Kristín, mínar dýpstu samúðarkveðjur. Jóhanna Harpa. Heilsteypt og umhyggjusöm eru orðin sem koma í hugann þegar ég hugsa til þeirrar góðu konu Margrétar Norland. Okk- ur, starfsfólk Smith & Norland, kallaði hún ævinlega Siemens- fjölskylduna sína og sinnti þeirri fjölskyldu af alúð. Sýndi í orði og verki að henni var umhugað um velferð okkar, ekki síst á stund- um gleði og sorgar. Heillaóskir og blóm til mín á stórafmælum. Símhringingar sem færðu mér gleði og yl. Hvar svo sem í veröldinni ég var staddur. Samúðarkveðjur til okkar hjóna við fráfall ástvina okkar. Orðin sem fylgdu hug- hreystandi og hvetjandi. Þannig var Margrét. Einlæg og áhugasöm um líf okkar, dætra okkar og dótturbarna. Vel lesin og víðsýn, glaðleg og íhugul. Í orðræðu fundvís á kjarna hvers máls. Stór kona á sinn hægláta hátt með stóran faðm og djúpan skilning á raunverulegum verð- mætum tilverunnar. Kynnin við hana og Sverri, þau samhentu sæmdarhjón, lærdómsrík og mannbætandi. Fyrir þau er nú þakkað. Elsku Kristín, Jón og Halla. Við Guðný sendum ykkur öllum, aðstandendum Margrétar Nor- land, okkar dýpstu samúðar- kveðjur. Minningin um yndislega móður, tengdamóður, ömmu og langömmu mun lifa um ókomna tíð. Megi góður Guð styrkja ykk- ur í sorginni og söknuðinum. Ólafur M. Kjartansson. Kveðja til einstakrar konu. „Einstakur“ er orð sem notað er þegar lýsa á því sem engu öðru er líkt, faðmlagi eða sólarlagi eða manni sem veitir ástúð með brosi eða vinsemd. „Einstakur“ lýsir fólki sem stjórnast af rödd síns hjarta og hefur í huga hjörtu annarra. „Einstakur“ á við þá sem eru dáðir og dýrmætir og hverra skarð verður aldrei fyllt. „Einstakur“ er orð sem best lýsir þér. (T.F.) Með þakklæti í huga fyrir gef- andi og elskurík kynni kveðjum við Margréti Norland og sendum öllum ástvinum hennar einlægar samúðarkveðjur. Margrét og Soffía. Ég banka þvottahúsmegin í Ljósheimum 7 og tvístíg úti. Dyrnar eru opnaðar og Margrét stendur í dyragættinni með upp- þvottahanska á annarri hendinni og kamelsígarettu í hinni, blæs frá sér svona á ská svo reykurinn fari ekki framan í mig, heilsar og brosir. „Er Halla heima?“ segi ég örugglega algjörlega að óþörfu því þetta hef ég sagt svona þús- und sinnum áður við hana. Það getur reyndar verið að ég sé að fá lánaðan bolla af sykri, eða stóra pottinn til að sjóða slátur í, svo það er öruggast að bera upp erindið skýrt og skorinort. „Jamm, komdu inn fyrir og bíddu augnablik“ segir Margrét, labbar inn í eldhús og kallar á Höllu „Helga dín er að spyrja eftir þér“! Ég skima í kringum mig í þvottahúsinu af gömlum vana, horfi á nýþvegnu hvítu skyrturnar hans Sverris og sný upp á dúskana á húfunni minni. Hlusta á hljóðin úr eldhúsinu þar sem Margrét er að stússast og heyri svo „hlaupandi á harðakani fótatak“ niður stigann og Halla birtist, vonandi klár að koma út að leika. Já, ég ólst upp í Ljós- heimum 5 við hliðina á henni Höllu bestu vinkonu minni og hennar fjölskyldu. Lífið var gott frá byrjun og ég var umvafin góðu fólki á alla kanta. Ég hef oft hugsað um hversu stór happ- drættisvinningur það hefur verið fyrir mig og gott veganesti út í lífið. Ég og Halla vorum heima- gangar hjá hvor annarri og svo margar góðar minningar sem tengjast þessum tíma. Margrét og Sverrir tóku mér alltaf opnum örmum en vissulega hitti ég Mar- gréti oftar en Sverri á þeim árum þegar vinnudagar voru langir hjá útivinnandi húsfeðrum og Mar- grét hélt hlutunum gangandi heima fyrir. Þarna voru byggð upp tengsl sem aldrei rofnuðu. Hún Margrét hafði létta lund, var brosmild og jákvæð. Hún var líka mjög hugulsöm og hlý. Hún sá mann og hrósaði á tímum sem fólk var kannski ekki að eyða svo miklum tíma í svoleiðis tal. Undir léttu fasinu var síðan firnasterk, fluggreind, vellesin kona sem hélt um taumana þar sem þörf var á. Þó að Margrét hafi verið orðin vel fullorðin þegar kallið kom finnst mér hún hafa verið tekin frá okkur allt of snemma. Það er stórt skarð komið sem erfitt er að fylla. Elsku Halla, Nonni, Diddý og fjölskyldur, ég og fjölskyldan Ljósheimum 5 vottum ykkur okkar innilegustu samúð. Við erum þakklát fyrir góðar minningar um góða konu. Helga Jóhannsdóttir ✝ Kristinn Sig-urður Gunn- arsson fæddist í Reykjavík 12. jan- úar 1955. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja 14. mars 2018. Foreldrar hans eru Gunnar H. Garðarsson, f. 24.3. 1932, og Ingibjörg Kristinsdóttir, f. 23.10. 1933, d. 15.6. 2010. Kristinn átti sjö systkini. Þau eru: Jóel E., f. 7.1. 1954, Guð- mundur Rafn, f. 28.1. 1952, Ásta, f. 6.6. 1957, Sigríður, f. 10.7. 1958, Gunnar Ingi, f. 19.10. 1961, Garðar Haukur, f. 18.4. 1963, og Kristján, f. 25.10. 1972. Kristinn kvæntist Sólveigu Jónsdóttur, f. 23. sept. 1958. Börn þeirra hjóna eru: 1) Ingi- björg Jóna, f. 18.10. 1978, í sambúð með Þórarni Ægi Guðmundssyni, f. 6.4. 1974, og eiga þau fjögur börn. 2) Jón Gunnar, f. 5.12. 1979, á hann tvo syni. 3) Kristín Ásta, f. 5.10. 1984, gift Colby Fitzger- ald, og eiga þau tvö börn. 4) Soffía Ósk, f. 11.10. 1992, í sambúð með Gunnari Inga Þor- steinssyni, f. 21.4. 1991, og eiga þau tvö börn. Að loknu skyldunámi lá leið- in á sjó en sjómennskuna stund- aði Kristinn með föður sínum frá unglingsaldri og fram eftir. Síðar sótti Kristinn sér skip- stjórnarréttindi og sigldi eigin bát. Eftir það lá leiðin í land, þar starfaði Kristinn m.a. sem leiðsögumaður í laxveiði, smíð- aði og vann við pípulagnir. Kristinn og Sólveig kynntust í Keflavík og bjuggu þar sam- an. Útför Kristins fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju í dag, 23. mars 2018, klukkan 13. Í dag kveðjum við góðan vin sem kvaddi þennan heim allt of snemma. Ég kynntist Kidda fyrst fyrir um 35 árum í gegnum starf mitt. Með okkur tókst fljótlega góð vinátta sem hélst allt til dauða- dags og bar þar aldrei skugga á. Fljótlega eftir að við kynntumst var okkur Dóru boðið að gerast félagar í veiðiklúbbi sem Kiddi var helsti hvatamaður að og þáð- um við það að sjálfsögðu. Fé- lagsskapur þessi tók ýmsum breytingum í gegnum árin en segja má að þessi hópur hafi veitt saman, ýmist fullskipaður eða hluti hans, á hverju ári í yfir 30 ár. Í þessum veiðiferðum kynntist ég mörgum bestu lax- veiðiám landsins og naut dyggr- ar aðstoðar Kidda við veiðina. Minnisstæðar eru veiðiferðir í Hafralónsá sem farnar voru í mörg ár og síðar árlegar veiði- ferðir í Blöndu. Einna minnisstæðust er ferð sem farin var í Hafralónsá í byrj- un september fyrir um 20 árum þar sem við veiðifélagarnir skipt- umst á að sjá um matseld fyrir hópinn. Kiddi og veiðifélagi hans fóru snemma einn morguninn og skutu nokkrar gæsir í morgun- flugi sem síðan voru kryddaðar með því sem fannst í veiðihúsinu. Þær voru síðan pönnusteiktar og bornar fram með rjómasósu um kvöldið. Þessi máltíð er ógleym- anleg og er ein besta máltíð sem ég man eftir að hafa snætt í veiðiferð. Kiddi var mjög eftirsóttur leiðsögumaður í laxveiði og var það hans helsta atvinna flest sumur og naut ég góðs af kunn- áttu hans á þessu sviði. Ég á hon- um mikið að þakka í sambandi við þekkingu á laxveiði og get fullyrt að hann á stóran þátt í því að ég get talið mig vera þokka- lega góðan laxveiðimann. Ég veit einnig að eftir að hann er farinn mun geta mín á þessu sviði að- eins versna. Kiddi var mikið náttúrubarn og stundaði laxveiðar og veiði- leiðsögn á sumrin og veiddi gæs- ir, rjúpur og hreindýr á haustin og nutum við góðs af þessum veiðum á hverju hausti. Á vet- urna vann hann ýmis störf sem til féllu og haustið 2008 tók hann að sér að sjá um endurnýjun á húsi sem við Dóra höfðum þá ný- lega keypt. Sú framkvæmd tókst svo vel að enn þann dag í dag finnst okkur eins og húsið hafi verið endurnýjað á síðasta ári en ekki fyrir hartnær 10 árum. Segja má að það sem ein- kenndi Kidda var hreinskilni hans og mikil réttlætiskennd auk þess sem hann var tryggur vinur vina sinna. Hann lá ekki á skoð- unum sínum og ef honum mislík- aði eitthvað sem var sagt eða gert lét hann vita af því með skýrum hætti. Ég veit að það kunnu ekki allir að meta þessa eiginleika en að mínu áliti voru þetta miklir mannkostir. Ég veit að við veiðifélagarnir munum sakna Kidda mikið og það skarð sem hann skilur eftir sig verður ekki fyllt. Það mun enginn geta komið í stað hans hvað varðar að sjá laxfiska í ám, en hann hafði ótrúlega sjón og sá laxa sem flestir aðrir áttu erfitt með að koma auga á eða sáu alls ekki. Um leið og ég kveð hann með þakklæti í huga vegna þeirra stunda sem við áttum saman færi ég Sólveigu og börnum þeirra mínar dýpstu samúðarkveðjur. Alexander og Dóra. Kristinn Sigurður Gunnarsson ✝ Einar ReynirFinnbogason fæddist í Neðri- Presthúsum í Mýr- dal, V-Skaftafells- sýslu, 9. ágúst 1934. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans 16. mars 2018. Foreldrar hans voru hjónin Kristín Einarsdóttir frá Reyni, f. 1888, d. 1986, og Finnbogi Einarsson frá Þórisholti, f. 1889, d. 1985. Systk- ini Einars Reynis voru Sigríður, f. 1918, d. 1999, Guðrún, f. 1920, d. 2016, Vilborg, f. 1921, d. 2007, Matthildur, f. 1922, d. 2016, Magnús Kristinn, f. 1925, d. 2009, Þóranna, f. 1927, d. 2006, Hrefna, f. 1932, d. 2016. Þorgerður, f. 1930, er ein eftirlifandi systkina. Einar Reynir kvæntist 1955 Kristrúnu Dagbjörtu Guðmunds- dóttur frá Höfða í Eyjahreppi, f. 14. nóv. 1935, d. 7. júní 2001. Börn þeirra eru: 1) Guðmundur, lögg. rafvirkjameistari, f. 18. sept. 1954, maki Valgerður Mar- grét Briem. Börn þeirra eru a) Arnar Geir, f. 1983, maki Ástríð- ur Viðarsdóttir, dætur þeirra eru Vala, f. 2014, og Vaka, f. 2016. b) Brynja Dögg, f. 1986. c) Ásdís Rúna, f. 1996. 2) Kristín, lögg. fast- eignasali, f. 11. des. 1955. Sambýlis- maður Kristján Kristjánsson. Synir hennar og Einars Kr. Jónssonar a) Ás- geir Orri, f. 1980, sambýliskona Hrefna Dís Þórs- dóttir, b) Rúnar Ingi, f. 1985, maki Soffía Dóra Jóhannsdóttir. Einar Reynir og Kristrún slitu samvistir 1988. Einar Reynir ólst upp í Neðri- Presthúsum en 17 ára gamall hleypti hann heimdraganum og flutti til Reykjavíkur. Hann starf- aði m.a. hjá Agli Vilhjálmssyni hf. við bílaréttingar en 1960 flutt- ist fjölskyldan inn í Laugarnes, þar sem hann setti á stofn sitt eigið bílaréttingaverkstæði og starfrækti það til ársins 2002. Helsta áhugamál hans var kórsöngur og var hann virkur þátttakandi í Skagfirsku söng- sveitinni og kirkjukórum, m.a. Fríkirkjukórnum í Reykjavík. Útför Einars Reynis fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 23. mars 2018, og hefst at- höfnin kl. 13. Reynir var kvæntur Rúnu móðursystur minni. Eftir að leiðir þeirra skildi kom ég stundum við hjá honum á Laugarnesveginum, þegar gera þurfti við eitthvað eða bara leita ráða með bíla. Það var gaman að spjalla við Reyni um tónlist en hann hafði yndi af söng og lærði á píanó á fullorðinsárum. Hann fór með okkur stórfjöl- skyldunni, fyrir nokkrum árum, vestur að Höfða í Eyjahreppi, þar sem afi og amma bjuggu fram til 1974. Reynir átti þá erfitt með gang en mér er minnisstæður glaðvær hlátur hans. Ég hef fengið reglulegar fréttir af Reyni frá pabba, sem kom oft við hjá honum í göngu- ferðum sínum um Laugarnesið. Þar var honum boðið upp á kaffisopa og eldheitar umræður um stjórnmál og önnur brýn þjóðfélagsmál. Síðast sáum við pabbi Reyni á líknardeildinni, deginum áður en hann kvaddi þennan heim. Blessuð veri minning hans. Ásdís Gísladóttir. Einar Reynir Finnbogason Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ANNA EGILSDÓTTIR, Hólabrekku, Hornafirði, lést á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands þriðjudaginn 20. mars. Útför verður auglýst síðar. Ari Guðni Hannesson Egill Vignisson Bryndís Ósk Bragadóttir Hjalti Þór Vignisson Guðrún Ingólfsdóttir Ólafur Páll Vignisson Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir Guðjón Bjarni Óskarsson Íris Björk Óttarsdóttir barnabörn Stebbi vinur minn er dáinn. Hann var hlý og góð manneskja sem hafði þægilega nær- veru. Stebbi var lítillátur en öruggur með sjálfan sig. Hann var myndarlegur og fáir voru hans jafnokar í hugsun. Hann gat Stefán Kristjánsson ✝ Stefán Krist-jánsson fæddist 8. desember 1982. Hann lést 28. febr- úar 2018. Útför Stefáns fór fram 15. mars 2018. verið ótrúlega fynd- inn og skemmtileg- ur auk þess sem hann var gæddur miklum innri styrk og þrautseigju. Hann hafði einnig til að bera eðlislæga já- kvæðni sem gerir minningu mína um hann enn bjartari. Með Stebba eru ein- stakir tónar horfnir úr þessari tilvist og ég vil votta fjölskyldu hans innilega samúð mína. Róbert Viðarsson. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.