Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 Ég er stödd við vinnu mína í Nor- egi þegar síminn hringir. Allan son- ur minn er í símanum ...amma Stína er dáin. Mikið var ég langt í burtu á þessu augnabliki. Ég leyfi mér að ferðast aftur í tímann. Fyrir rúmum 20 árum kynntist ég þeim hjónum Stínu og Allani þar sem ég varð tengdadóttir þeirra. Ófáar voru heimsóknirnar í Engihjallann og Ölver, þar sem þau hjón höfðu byggt sér sumarhús. Matarboðin hjá Stínu voru ansi mörg og verð ég að nefna lambakótelettur í raspi, plokk- ara í hömsum og sætu kart- öflumúsina, einstaklega sterkt og bragðgott kaffi sem Stína mín hellti upp á á gamla mát- ann. Á fyrsta og öðru ári Allans mín komu tvær skottur á dag- inn í pössun, átti Stína mín það til að koma með strætó úr Kópavoginum upp í Árbæ en hún tók stundum krók á leið sinni og kom við hjá fiskbúð Hafliða með ýsu í soðið, svo borðuðum við saman með barnahópinn, yndisleg minning. Amma Stína, eins og hún var ávallt kölluð, hafði einstaka nærveru og ræktaði vinskap og hafði óbilandi þolinmæði. Að- Kristín Jónsdóttir ✝ Kristín Jóns-dóttir fæddist 17. nóvember 1939. Hún lést 16. febr- úar 2018. Útför Kristínar fór fram 27. febr- úar 2018. skilnaður varð staðreynd og urðu árin mín í fjöl- skyldu þeirra hjóna átta, en aldr- ei rofnaði þó traustið og vinátt- an á milli okkar, þau hjón voru ein- staklega góð við mig og börnin mín tvö svo og barna- börnin mín eftir að þau komu, alltaf gáfu þau sér tíma fyrir okkur. Ég er á göngu í litlu sveit- inni minn síðdegi eitt þegar síminn minn hringir, amma Stína er í símanum, ég stoppa til að svara og man ég það eins og gerst hafi í gær þegar hún tilkynnti mér niðurstöður úr læknisrannsóknum sem hún hafði verið í, sagði mér enn fremur hversu ósátt hún var. Stína var læknaritari til margra ára og vissi hún vel hvað klukkan sló, raddblærinn gaf það sterklega í ljós að hún ætti ekki séns lengur, maður reynir yfirleitt að finna eitt- hvað hvetjandi eins og nú væri komin niðurstaða og hægt að fara að vinna með hana, en innst inni samhryggðist ég henni. Elsku Stína mín, vonandi hvílistu vel í draumalandinu og ert nú laus við þennan sjúk- dóm. Ég sé um ömmustrákinn þinn en þú átt alltaf stóran hluta í hjarta hans. Ég votta Allani mínum og fjölskyldu Stínu mína dýpstu samúð. Jódís. ✝ Una JónaÓlafsdóttir fæddist á Blöndu- ósi 4. febrúar 1984. Hún lést 6. mars 2018. Foreldrar Unu eru Lilja Jósteins- dóttir, f. 10. febr- úar 1959, og Ólaf- ur Bragason, f. 16. apríl 1957, og er kona hans Ingi- björg Þórarinsdóttir, f. 11. júní 1953. Systur Unu Jónu eru Indiana K. B. Ólafsdóttir, f. 15. ágúst 1980, Sigríður Heiða Ólafsdótt- ir, f. 2. júní 1982, maki Glascor Sepulveda Benner, f. 13. ágúst 1971, Ágústa Margrét Ólafs- dóttir, f. 17. ágúst 1994. Una Jóna lætur eftir sig eina dótt- ur, Katrínu Lilju, f. 20. ágúst 2002, og er faðir hennar Atli Arnljóts Þórarinsson, f. 6. janúar 1983. Una Jóna lauk skyldunámi frá Njarðvíkurskóla. Hún varð ung ein- stæð móðir. Una Jóna vann hjá Reykja- nesbæ, í bókhaldinu, undir það seinasta. Hún hugðist klára nám sitt sem viðkenndur bók- ari. Útför Unu Jónu fer fram frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag, 23. mars 2018, og hefst athöfnin klukkan 14. Við vorum öll slegin yfir þeirri sorgarfrétt er við fengum fréttir af andláti Unu Jónu sam- starfskonu okkar. Una Jóna kom í starfsþjálfun á fjármála- svið Reykjanesbæjar á vormán- uðum 2015 um tveggja mánaða skeið og þegar því tímabili lauk var henni boðið starf í bókhalds- deild Reykjanesbæjar en hennar áhugi lá á því sviði og rækti hún starf sitt af alúð og samvisku- semi. Í starfi sínu hjá Reykjanesbæ var Una Jóna í samskiptum við fjölmarga vinnufélaga bæði starfsins vegna og vegna fé- lagsstarfa sem hún tók þátt í, en hún var meðal annars í skemmtinefnd starfsmanna ráð- hússins. Hún nálgaðist iðulega fólk og verkefni af nærgætni og blíðu, með æðruleysi og vand- virkni tókst hún á við verkefni dagsins. Það sem var einkennandi fyr- ir Unu Jónu var brosmildi og flestir hefðu einmitt notað það lýsingarorð um hana. Hún brosti iðulega sama hvað það var sem hún vildi koma á framfæri. Hún brosti jafnvel þegar hún þurfti að fást við erfið verkefni sem tengdust heilsunni eða öðru því sem fæstir hefðu brosað sig í gegnum. Þegar við fyllumst von- brigðum yfir að lífið geti verið svo ósanngjarnt að taka unga móður frá dóttur sinni, að 34 ára gamalli konu sé fyrirvaralaust kippt úr veröldinni, veltum við fyrir okkur í einlægni hver til- gangurinn sé með þessu öllu saman, þá getum við hugsað til þess að arfleifð Unu Jónu var bros. Ekki af því að lífið væri alltaf svo auðvelt heldur vegna þess að hún valdi að brosa í gegnum það allt. Unu Jónu verður sárt saknað í ráðhúsinu og við sendum dótt- ur hennar og þeim sem næst henni standa innilegustu sam- úðarkveðjur og megi minningin um Unu Jónu verða ykkur styrkur á þessum erfiða tíma. Fyrir hönd samstarfsmanna ráðhúss Reykjanesbæjar, Regína F. Guðmundsdóttir, Þórey I. Guðmundsdóttir. Una Jóna Ólafsdóttir✝ Inga Jóels-dóttir fæddist á Stokkseyri 24. apríl 1924. Hún lést 3. mars 2018. Foreldrar henn- ar voru hjónin Guð- ríður Ingvarsdóttir, f. á Stokkseyri 30. apríl 1900, d. í Keflavík 2. júlí 1957, og Jóel Jón- asson, f. í Hákoti í Flóa 12. september 1894, d. í Reykjavík 8. júní 1988, bændur í Bakkakoti í Leiru og síðar í Kötluhóli í sömu sveit en bæði voru ættuð úr Árnessýslu. Inga fluttist ung með for- eldrum sínum til Reykjavíkur á Hverfisgötu 100A og myndaði við það fólk ævilöng vinatengsl. Þaðan fluttist litla fjölskyldan suður í Leiru og ólst hún þar upp ásamt systkinum sínum. Hún var elst, á eftir komu Ás- Börn þeirra: 1) Þorvarður Ell- ert, f. 5. mars 1943, d. 18. desem- ber 2013. Eftirlifandi maki Steingerður Steindórssdóttir. Fyrri maki Hrafnhildur Mar- inósdóttir, d. 1986. 2) Sigrún Björk, f. 21. desem- ber 1945, maki Örlygur Sigurðs- son. 3) Guðrún Gerður, f. 31. maí 1947, sambýlismaður Jóhann Þórarinsson. Fyrri maki Þórður Eiríksson d. 2000. 4) Guðjón Jóel, f. 10. febrúar 1959, maki Helena Þuríður Karlsdóttir. 5) Ásgeir, f. 25. mars 1960, maki Kristín Jónsdóttir. Barnabörnin eru tólf, lang- ömmubörnin tuttugu og eitt og þrjú langalangömmubörn. Inga var mjög ljóðelsk og hafði gaman af að ferðast. Hún var fyrst og fremst húsmóðir á sínu heimili og var þar oft gest- kvæmt. Inga var jarðsungin frá Nes- kirkju 16. mars og fór útför hennar fram í kyrrþey að ósk hennar. geir, Jóel Bach- mann, Guðríður og Jónasína, öll látin. Hún gekk í Gerðaskóla, fimm km leið, og lauk barnaprófi þaðan. Hún var í vist í Keflavík og þar gekk hún í kvöld- skóla. Svo tók skóli lífsins við og ýmiss konar námsskeið. Hún kom til Reykjavíkur, dvaldi hjá föðurbróður sínum og fór að vinna á Kleppsspítala. Á þeim tíma kynntist hún mannsefni sínu, sem var Björn Guðjónsson, f. 11.11. 1921, d. 30.11. 2008, sonur hjónanna Guðrúnar V. Guðjónsdóttur og Guðjóns Bjarnasonar. Þau giftu sig 11. desember 1942 og hófu búskap á Bjarnastöðum á Gríms- staðaholti og byggðu svo á Æg- isíðu 66 og bjuggu þar æ síðan. Það liggur pönnukökuilmur í loftinu og móttökurnar eru ein- staklega ljúfar, þetta er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar við leitum í minningar um Ingu tengdamóður og ömmu. Þessi einstaklega ljúfa kona bak- aði heimsins bestu pönnukökur og hún hafði frá svo mörgu að segja, alltaf var jafn gott að sitja við gluggann á Ægisíðunni, horfa til sjávar og spjalla um daglegt líf og heimsins málefni. Mörg voru þau skiptin sem við sátum saman við gluggann og fylgdumst með þegar feðgarnir, afi Bjössi og Þorvarður, komu að landi með drekkhlaðinn bátinn af rauð- maga og grásleppu, síðan var haldið niður í fjöru að taka á móti þeim og skoða aflann. Já, heim- sóknir til ömmu Ingu voru alltaf mjög ljúfar. Minning þín lifir, elsku tengdamóðir og amma. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Steingerður Steindórsdóttir, Atli Már Þorvarðarson, Brynjar Smári Þorvarðarson. Ung stúlka labbar upp stíg á leið í skólann. Við glugga stendur kona á besta aldri. Eitthvað var það sem sagði henni að þessi unga stúlka yrði tengdadóttir hennar. Í dag eru rúmlega 40 ár síðan unga stúlkan smellti fyrsta koss- inum á son hennar... eða var það kannski öfugt? Konan var Inga. Stúlkan er ég. Hún tók mér vel frá fyrstu kynnum og varð ekki bara tengdamóðir mín heldur líka vin- kona. Ég hef lært svo ótal margt af henni og ekki í neinni kennslu- stund heldur af framferði hennar og tali. Hún var dugleg, fróð, ljóðelsk, góður hlustandi, dásam- leg amma og trúnaðarvinur. Hún var límið. Hún var amma á Æjó. Saman voru þau hjón, Inga og Bjössi, fyrirmynd unga parsins, þau eru það enn og munu alltaf verða. Hún er nú farin að hitta Bjössa sinn en fallegar minning- ar lifa í hjörtum okkar. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín Kristín. Nú hefur elsku amma mín fengið hvíld og fær að hitta Bjössa sinn aftur. Það var alltaf gott að koma á Ægisíðuna, amma Inga og afi Bjössi voru einstaklega hlý og tóku mér alltaf fagnandi. Það voru ófáar stundirnar sem við stöllur sátum í stofunni og spjöll- uðum um allt og ekki neitt en þá skipti aldursmunurinn engu máli. Ömmu fannst gaman að heyra hvað unga fólkið væri að bralla og hún var góð í að hlusta. Hún hafði góða nærveru, það var stutt í grínið og hún var óspör á hrósið. Með orðum sínum og gjörðum kenndi hún mér svo ótal margt. Amma Inga mun alltaf verða mín fyrirmynd og lífsspeki hennar mun ég hafa að leiðarljósi í lífinu. Ég verð ævinlega þakklát fyrir samband okkar Ömmu Ingu sem einkenndist af væntumþykju og virðingu. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sig.) Elsku besta amma mín, ég veit að afi Bjössi tekur vel á móti þér og viltu knúsa hann frá mér. Þið munið alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu. Takk fyrir allt. Þín eina sonardóttir, Charlotta Ég sit með autt blað fyrir framan mig og stari út í tómið. Veit ekki hvar skal byrja eða hvað skal segja. Ég finn að það er tómarúm. Þú ert farin. Elsku amma. Það var á stund- um sem þessum sem ég leitaði til þín. Á þeim stundum sem mér leið sem týndum, ráðvilltum, vantaði svör eða þurfti að létta á mér. Elsku amma, þú varst mér svo kær. Elsku amma, þú varst mér traust, ég treysti þér og ég veit þú tókst með þér mörg leyndarmál. Við töluðum saman, oft og mikið. Við áttum margar góðar stundir saman. En við þögðum líka. Ég ligg í sófanum og heyri prjónana slást. Við segj- um ekkert en ég finn notalega til- finningu í þögninni. Við þegjum en ég ligg umkringdur kærleik. Elsku amma, ég er þakklátur, þú varst mér góð fyrirmynd. Þú varst góð kona og kenndir mér svo margt. Elsku amma, þú hlustaðir alltaf. Þú gafst mér allt- af góð ráð, réttu ráðin. Þú hlýi, góðhjartaði og góði vinur. Elsku amma, ég græt blautum tárum sem renna niður kinn. Ég sakna þín. Þú kenndir mér, og við munum bæði, að eitt bros get- ur dimmu í dagsljós breytt. Elsku amma mín, ég sé þig bros- andi. Kveð þig brosandi. Minn- ingin lifir. Jón Ásgeirsson. Inga var einn af frumbyggjum á Ægisíðunni. Öðlingshjónin Inga og Bjössi byggðu sitt heim- ili á landi tengdaföður hennar á sjötta áratugnum og fengu for- eldrar mínir að fylgja þeim í þeirri vegferð. Þar var þeirra heimili og vinnustaður alla tíð. Bjössi sótti sjóinn og Inga rak stórt heimili af miklum myndar- skap. Félagsmiðstöð Ægisíðunn- ar var í fjörunni við skúrinn hans Bjössa. Þar komu ungir sem aldnir saman þegar bátinn bar að landi, þar var líf og fjör. Inga og Bjössi gengu saman í fallegum takti í gegnum lífið og sýndu hvort öðru stuðning í gegnum þykkt og þunnt. Inga var flug- greind og víðlesin, það var gam- an að detta í kaffispjall með henni. Hún var frjó í hugsun, skemmtilegur sögumaður og húmoristi og ekki síður góður greinandi og hlustandi. Hún var á margan hátt ungæðisleg alla tíð og þar skiptu árin litlu máli. Hún var örlát á tímann sinn og ætt- boginn allur sóttist eftir fé- lagsskap hennar. Við sendum fjölskyldunni inni- legar samúðarkveðjur um leið og við þökkum fyrir áralangan vin- skap, gott sambýli og vinarþel. Ragnhildur Zoéga og fjölskylda. Inga Jóelsdóttir ✝ Friðrik Árna-son, vélstjóri, fæddist í Þórs- hamri í Gerðum 9. janúar 1930. Hann lést á hjúkr- unarheimilinu Hrafnistu í Reykja- nesbæ, 19. febrúar 2018. Friðrik var son- ur hjónanna Árna Árnasonar frá Varmahlíð í V. Eyjafjallahreppi, f. 18.12. 1875, d. 11.6. 1967, og Guðrúnar Þórðardóttur frá Vegamótum á Akranesi, f. 6.6. 1887, d. 22.7. 1972. Friðrik var yngstur af börnum þeirra hjóna, en systkini hans voru: Kjartan, f 19.6. 1913, d. 16.4. 1932, Björg, f. 24.10. 1916, d. 21.9. 2014, Þórður, f. 29.5. 1919, d. 24.2. 1936, og Árni, f. 13.2. 1925, d. 29.11. 2010. Friðrik var vélstjóri alla tíð, fyrst hjá Gerðabát- um í Gerðum í Garði, Síðar hjá Ísstöðinni um árabil, en einna lengst af starfs- ævinni hjá Nesfiski í Garði. Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hins láta, frá Útskálakirkju í Garði, 2. mars 2018. Þakklæti var efst í huga fjöl- skyldunnar er við fylgdum Fidda frænda til hinstu hvíldar. Fiddi var bróðir ömmu, en hann var ókvæntur og barnlaus og var því okkur eins og auka afi. Góðmennska hans, hjálp- semi og væntumþykja umvafði alla fjölskylduna, hann bjó yfir miklum kærleika. Fiddi bjó lengi vel í Þórshamri í Garði. Hann tók við æskuheimilinu eftir að langafi og langamma létust. Hann hélt í heiðri minn- ingu þeirra, sagði af þeim sög- ur og hélt heimili þeirra óbreyttu. Það var líkt og þau hafi rétt brugðið sér frá, allt á sínum stað. Handverk þeirra hjóna naut sín og okkur sem komum í þetta líf eftir þeirra dag líður eins og við þekktum þau. Hann gaf byggðasafninu á Garðskaga einstakt safn muna frá Þórshamri þar sem nú má finna bás til minningar um fjöl- skylduna frá Þórshamri. Fiddi var vélstjóri alla sína tíð. Hann hóf störf hjá Gerðabátum í Gerðum, svo tók Ísstöðin við í sama húsi og loks Nesfiskur. Alltaf fylgdi Fiddi vélarsalnum og stóð því vaktina allan sinn starfsferil á sama staðnum. Það voru margir suðurnesjamenn- irnir sem kynntust Fidda í gegnum tíðina í frystihúsinu og aldrei bar skugga á samskipti hans við aðra. Fiddi reyndist ömmu afskap- lega vel. Hugsaði vel um hana og dekraði eftir bestu getu, þannig mann hafði hann að geyma. Ef einhver í fjölskyld- unni flutti eða stóð í fram- kvæmdum þá var Fiddi mættur til að rétta hjálparhönd. Það voru ófá skiptin sem ég hjólaði niður í Gerðar til Fidda. Ef hjólið bilaði þá kippti hann því í liðinn, oft sat ég og borðaði kvöldmat með honum og við sátum og horfðum á fréttirnar og svo fékk ég að fara með í eftirlitsferð um vélasalinn. Það var aldrei neitt mál að fara og hanga hjá Fidda, hann tók manni alltaf opnum örmum. Fiddi var samt íhaldssamur, enda mikill sjálfstæðismaður. Hann fór oft til útlanda en allt- af á sama staðinn á Spáni og kom alltaf heim með gjafir handa öllum. Þessi einstaki maður sem markaði djúp spor í fjölskyldunni, var ern alveg undir það síðasta, ræddi póli- tíkina, fiskiríið og bátana fram á síðasta dag. Það er skarð í fjölskyldunni, við stöndum þó eftir með fullan minningabanka um Fidda okkar. Hugljúfan og hæglátan mann sem áttaði sig ekki á því hve marga hann snerti með góðmennsku sinni á lífsleiðinni. Um leið og ég þakka Fidda fyrir samfylgdina og allar ljúfu stundirnar okkar, þakka ég starfsfólkinu á Hrafnistu í Reykjanesbæ fyrir umönnunina og Jónu Björgu frænku fyrir að vera ávallt kletturinn hans Fidda alla tíð. Þinn frændi, Árni Árnason. Friðrik Árnason Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandend- ur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýs- ingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.