Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 34

Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 34
34 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 Ég er staddur í Reykjavík, krakkarnir vildu endilega að viðkæmum hingað,“ segir Sigmar Pálmason sem á 75 ára afmælií dag. „Við fjölskyldan ætlum út að borða á GOTT restaurant sem dóttir mín og maðurinn hennar voru að opna í Reykjavík í Hafn- arstræti. Þau opnuðu Gott restaurant í Eyjum fyrir fimm árum og hann sló alveg í gegn.“ Sigmar fæddist í Vestmannaeyjum og hefur búið þar alla tíð og var fljótur aftur heim eftir gosið. Hann lék knattspyrnu með ÍBV, 150 leiki alls, og vann alla titla með ÍBV fyrir utan Íslandsmeistaratitilinn. Síðan varð hann aðstoðarþjálfari George Skinner. „Hann stjórnaði mér og ég stjórnaði liðinu. Við komumst í aðra umferð í Evrópu- keppninni, eftir að við náðum jafntefli við Glentoran á Norður-Írlandi undir byssugný. Það var alveg rosalegt, við jöfnuðum á lokamínút- unni og það sló þögn á allan mannskapinn á vellinum.“ Sigmar var umboðsmaður Vífilsfells 1974-99 í Eyjum og var síðan eigandi HSH-flutninga, ásamt Henry Erlendssyni. „Við seldum fyr- irtækið Eimskip í restina, þeir hefðu líklega gleypt okkur á endanum, en við hefðum samt getað barist lengur, vorum með 80% af flutning- unum.“ Sigmar leikur golf og var í landsliði öldunga í golfi árið 2002 og hefur unnið sex Íslandsmeistaratitla í eldri manna sveitum. Eiginkona Sigmars er Kristrún Axelsdóttir. Börn þeirra eru Pálmi, hóteleigandi í Toskana-héraði á Ítalíu, Unnur sem vinnur hjá Stafey í Eyjum, Berglind sem á veitingastaðina Gott og Hildur sem á hestabú- garð í Danmörku. Barnabörnin eru fjórtán og barnabarnabörn eru fjögur. Eyjamaðurinn Sigmar staddur á Alicante fyrir tveimur árum. Komst í aðra umferð undir byssugný Sigmar Pálmason er 75 ára í dag B jarni Ármannsson fædd- ist á Akranesi 23.3. 1968 og ólst þar upp í for- eldrahúsum. Hann var í Grunnskóla Akraness, lauk stúdentsprófi frá Fjölbrauta- skóla Vesturlands, lauk prófi í tölv- unarfræði við HÍ, stundaði nám í verðbréfamiðlun við HÍ, nám við Institut for Management Develop- ment í Lausanne í Sviss og lauk það- an MBA-prófi í fyrirtækjastjórnun og viðskiptafræðum 1996. Á unglings- árum og námsárunum stundaði Bjarni almenn verkamannastörf á Akranesi og var til sjós á togurum frá Akranesi. „Ég hef frá barnæsku haft mikinn áhuga á landafræði og sögu og þó ég hafi ekki ferðast út fyrir landsteinana fyrr en ég var orðinn 21 árs, hef ég eiginlega verið á ferð og flugi síðan. Ég ferðast mikið og fæ mikið út úr því. Framandi staðir heilla mest.“ Bjarni varð forstjóri Kaupþings í ársbyrjun 1997 og bankastjóri Fjár- festingarbanka atvinnulífsins í árs- byrjun 1998. Hann varð síðan banka- stjóri Íslandsbanka og síðar Glitnis til 2007 þegar hann lauk störfum í fjár- málageiranum. Á síðastliðnum áratug hefur Bjarni verið atvinnufjárfestir hér á landi og erlendis. Þá hefur hann gegnt ýmsum trúnaðarstörfum er tengst hafa starfi hans. Það verður ekki sagt um Bjarna að hann sé sporlatur: „Fjallgöngur og útivera eru nánast orðin að fíkn í mínu lífi – eins og ávanabindandi Bjarni Ármannsson atvinnufjárfestir – 50 ára Við Stonehenge á Englandi Bjarni og Helga ásamt þeim Auði, Sonju Sif, Tómasi, Benedikt og Helgu Guðrúnu. Fjallgöngur eru ávana- bindandi vítamínsprauta Bjarni á toppnum Hér fagnar hann því að hafa náð enn einum tindinum. Eins og sjá má á útbúnaðinum er hér alvöru fjallgöngumaður á ferð. Reykjavík Hákon Hrafn Bridde fæddist á LSH í Reykjavík 7. mars 2017 kl 18.32. Hann vó 4.040 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Hermann Hrafn Bridde og Svana Kristín Elísdóttir. Ljósmynd: Eiríkur Ingi Photography. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. HEYRNARSTÖ‹INKringlunni • Sími 568 7777 • heyra.is exton™ heyrnartækin opna nýjar leiðir í samskiptum auka lífsgæðin. Komdu í ókeypis heyrnarmælingu fáðu heyrnartæki lánuð til reynslu. Við hjálpum þér að bæta lífsgæðin R og og Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.