Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 23.03.2018, Qupperneq 35
vítamínsprauta fyrir líkama og sál. Ég er alinn upp við að hlaupa á eftir kindum og geri það reyndar ennþá, og hef unun af að vera á fjöllum hvort sem er gangandi, hlaupandi, á skíðum eða hjólandi, með sjálfum mér eða góðum hópi vina og fjölskyldu. Við göngum með börnunum okkar og vinafólki á hverju ári og höfum þannig alið þau upp við útivist.“ Þau eru orðin mörg fjöllin sem Bjarni hefur lagt að baki, hér á landi og ekki síður á erlendri grund: „Ég reyni að fara allavega mánuð á ári í einhvers konar leiðangra sem reyna á – en opna mikla sýn á lífið og til- veruna. Ég fór t.d. í annað skiptið á suðurskautið nú um áramótin. Í þetta skiptið til að klífa Mt. Vinson, hæsta fjall þeirrar heimsálfu. Í ágústlok sl. gekk ég á Mt. Fuji, þegar ég var staddur í Japan til að fjármagna skipanýsmíðar í Kína, en ég er í félagi við Íslendinga og Norðmenn að byggja fjögur 12 þúsund tonna skip sem munu flytja ál og hrávörur til álbræðslu fyrir Alcoa í Noregi á Reyðarfirði. Svo er ég alltaf eitthvað að hlaupa. Hlaupin eru mín sálfræðimeðferð – ekki síst í fallegu umhverfi.“ En hvernig gengur að sameina þessar tvær sterku ástríður, atvinn- una og síðan hlaup og fjallgöngur? „Ég viðurkenni að það kemur fyrir – og kannski óþarflega oft – að óvæntar brekkur í starfi mínu við fjárfestingar og fyrirtækjarekstur kalla á forgangsröðun sem bitnar bæði á útivistinni og fjölskyldunni. Stundum eru þau verkefni hálfgerðar fjallgöngur með alls kyns hindrunum. Allt er þetta gott í bland og fyrir mig hefur fjölbreytnin verið mikils virði. Hvort tveggja, viðskiptalífið og úti- vistin, hefur fært mér góða kunningja og nána vini sem er mér ómetanlegt. Það fyllir lífið gleði og ánægju. Ég er þakklátur fyrir góða heilsu og þol- inmæði fjölskyldu og vina – því ég veit að ég á það til að taka meira tillit til mín en annarra þegar tíminn leyfir ekki allt sem gaman væri að gera.“ Fjölskylda Eiginkona Bjarna er Helga Sverr- isdóttir, f. 29.11. 1968, hjúkrunar- fræðingur. Hún er dóttir Sverris Hólmarssonar, f. 6.3. 1942, d. 6.9. 2001, framhaldsskólakennara sem var búsettur í Danmörku seinni árin, og Guðrúnar Helgadóttur, f. 7.9. 1935, rithöfundar og fyrrv. alþingis- manns og forseta Alþingis. Börn Bjarna og Helgu eru Tómas Bjarnason, f. 19.7 1994, í sambúð með Sonju Sif Ólafsdóttur, f. 1.4. 1993. Helga Guðrún Bjarnadóttir, f. 15.3. 1998; Benedikt Bjarnason, f. 15.3. 1998, og Auður Bjarnadóttir, f. 26.11. 2003. Systkini Bjarna eru Kristín Ár- mannsdóttir, f. 25.3. 1963, skólaliði á Akranesi, gift Guðgeiri Svavarssyni og eiga þau þrjú börn; Gunnar Már Ármannsson, f. 28.3. 1964, vélstjóri á Akranesi, kvæntur Önnu Kristjáns- dóttur og eiga þau fjögur börn. Foreldrar Bjarna eru Ármann Gunnarsson, f. 1.1. 1937, vélvirki á Akranesi, og Helga Sólveig Bjarna- dóttir, f. 13.9. 1933, húsmóðir. Bjarni og fjölskylda eru að heiman í dag. Úr frændgarði Bjarna Ármannssonar Bjarni Ármannsson Guðmundur Auðunsson hreppstj. á Skálpastöðum, af Víkingslækjarætt Kristín Guðmundsdóttir húsfr. í Eskiholti Bjarni Sveinsson b. í Eskiholti í Borgarfirði Helga Sólveig Bjarnadóttir húsfr. áAkranesi Helga Eysteinsdóttir húsfr. á Kolsstöðum og í Eskiholti ísli Sigurjón Sigurðsson húsasmíðam. og framkvstj. áAkranesi GGunnar Valur Gíslasonverkfr., bæjarfulltr. í Garðabæ og fyrrv. sveitarstj. í Bessastaðahreppi Sigurður Guðmundsson smiður áAkranesi Sigurlín Gunnarsdóttir fyrrv. hjúkrunarforstj. Borgarspítalans Sveinn Finnsson b. á Kolsstöðum í Miðdölum og í Eskiholti á Mýrum Arndís Finnsdóttir húsfr. á Hólmlátri á Skógarströnd Anna Sigfúsdóttir húsfr. í Drápuhlíð í Helgafellssveit Sigfús Daðason skáld Guðbjörg Aradóttir húsfr. á Skálpastöðum í Lundarreykjadal Ari Gíslason ættfr. og rith. áAkranesi SalvörAradóttir húsfr. á Syðstu-FossumíAndakíl og í Rvík Ásmundur Sveinsson myndhöggvari Guðmundur Svein- björnsson bæjarfulltr. og íþrótta- frömuður á Akranesi Sesselja Sveinsdóttir húsfr. í Stóra-Lambhaga Sigurður M. Helgason borgarfógeti í Rvík Gísli Heimir Sigurðsson yfirlæknir Guðrún Illugadóttir húsfr. á Lykkju áAkranesi og í Rvík Guðmundur Illugason b. í Stóra-Lambhaga í Hvalfjarðarsveit Guðríður Guðmundsdóttir húsfr. á Steinsstöðum Margrét Guðmundsdóttir forstöðu- kona Fæðingardeildar Landspítalans Gunnar Guðmundsson vélstj. á Steinsstöðum áAkranesi Sigurlína Margrét Sigurðardóttir húsfr. á Steinsstöðum og í Görðum Guðmundur Gísli Gunnarsson oddviti á Steinsstöðum og í Görðum áAkranesi Ármann Gunnnarsson vélvirki áAkranesi ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is Ekki bara jeppar 2013 - 2017 Kerruöxlar & íhlutir ALLT TIL KERRUSMÍÐA Magnús Halldór Gíslasonfæddist á Frostastöðum íBlönduhlíð 23.3. 1918. Foreldrar hans voru Gísli Magnús- son og Guðrún Þ. Sveinsdóttir bændur. Fimm ára flutti hann með foreldrum sínum að Eyhildarholti í Hegranesi og átti þar heima uns hann hóf sjálfur búskap. Hann var elstur ellefu systkina sem upp komust. Magnús kvæntist 1946 Jóhönnu Þórarinsdóttur frá Ríp í Hegranesi en þau eignuðust fjögur börn, Gísla, kennara við FB; Þórarin, bónda á Frostastöðum; Ólaf, vélvirkja og starfsmann hjá Ístexi í Mosfellsbæ, og Guðrúnu Kristínu, læknaritara á Húsavík. Magnús stundaði nám við Bænda- skólann á Hólum, Héraðsskólann á Laugarvatni og Garðyrkjuskóla rík- isins á Reykjum í Ölfusi og útskrif- aðist þaðan í fyrsta árgangi skólans. Þau hjónin hófu búskap á Frosta- stöðum g bjuggu þar félagsbúi með þremur bræðrum Magnúsar þar til sonur hans tók við 1977. Þá fluttu þau hjónin til Reykjavíkur þar sem Magnús varð blaðamaður á Þjóðvilj- anum og gegndi því starfi til 1988. Sex árum síðar fluttu þau aftur norður í Frostastaði. Magnús gekk ungur í Framsókn- arflokkinn og starfaði þar í áratugi, sat í miðstjórn SUF, í miðstjórn flokksins, var formaður FUF í Skagafirði, formaður Framsóknar- félags Skagafjarðar, blaðamaður á Tímanum 1958-61 og sinnti þar póli- tískum skrifum ekki síður en al- mennum fréttum, var varaþingmað- ur 1967-71 og sat á þingi um skeið. Hann var alla tíð hernámsandstæð- ingur og virkur í þeirri sveit, sat í hreppsnefnd Akrahrepps í átta ár, í stjórn Ungmennasambands Skaga- fjarðar, Karlakórsins Heimis, Hestamannafélagsins Stíganda og fleiri félögum. Hann var félagi í Karlakórnum Heimi í áratugi og þegar Karlakórinn Feykir starfaði söng hann með báðum kórum. Magnús lést 3.2. 2013. Merkir Íslendingar Magnús Halldór Gíslason 85 ára Halldóra Theódórsdóttir Inga Guðlaug Helgadóttir Þuríður Einarsdóttir 80 ára Erling Jón Sigurðsson Guðný Steinsdóttir Jóhannes Eiríksson Sigurlaug Ingibjörg Ásgrímsdóttir Steinunn Erla Lúðvíksdóttir 75 ára Dýrleif Bjarnadóttir Katrín Lovísa Irvin Ragnheiður Rögnvaldsdóttir Sigmar Pálmason Viggo Mortensen 70 ára Bjarni Ingi Gíslason Elín Kröyer Fanný Hauksdóttir Gerður Berndsen Guðmundur Kristján Hjartarson Gunnar Baarregaard Hjálmur Steinar Flosason Margrét Eggrún Arnórsdóttir Ragnhildur Jóna Þorgeirsdóttir Sólveig Guðmundsdóttir Steinunn Þórhallsdóttir Þorgerður Björnsdóttir Þuríður Davíðsdóttir 60 ára Allaoua Ægir Si Said Anna Kristín Fenger Ari Þorsteinn Þorsteinsson Arndís Sveina Jósefsdóttir Árdís Guðríður Erlendsdóttir Birna Þórunn Pálsdóttir Gunnar Kristjánsson Hrafnhildur Þórðardóttir Inga Jóhannsdóttir Páll Eyjólfsson Stanislaw K. Sniadala Sveinn Hauksson 50 ára Aðalheiður Tryggvadóttir Bjarni Ármannsson Drífa Valborg Erhardsdóttir Elínborg Arna Árnadóttir Eva Margrét Hjálmarsdóttir Hermann Þór Geirsson Hillbjörg Helene Heggelund Hlíf Þorgeirsdóttir María Teresita Ólafsson Natalea Demetrescu Óskar H.J. Viðarsson Sawid Raknarong Torfi Hermann Pétursson 40 ára Árni Hjálmarsson Bjarki Þór Kjartansson Elísa Margrét Johnsen Halldór Sigurkarlsson Hera Eiríksdóttir Hansen Ingólfur Guðnason Katrín Þóra Víðisdóttir Berndsen Olga Novikova Stefka Dimitrova Mihaylova 30 ára Brynjólfur Steingrímsson Guðrún H. Guðmundsdóttir Hákon Fannar Ellertsson Ingunn Lára Ívarsdóttir Konráð Freyr Friðriksson Nicu-Marin Costea Piotr Zbigniew Bakowski Rannveig Lára Sigurbjörnsdóttir Steinn Friðriksson Steinunn Sigurðardóttir Til hamingju með daginn 30 ára Hákon lærði íþróttakennarafræði á Laugarvatni, er íþrótta- kennari við Grenivíkur- skóla og einkaþjálfari. Maki: Steinunn Adolfs- dóttir, f. 1988, leikskóla- kennari. Börn: Alexander Smári, f. 2014, og Aron Ellert, f. 2017. Foreldrar: Ellert Rúnar Finnbogson, f. 1957, og Sigurlína Ragúels Jó- hannsdóttir, f. 1954. Hákon Fannar Ellertsson 40 ára Katrín ólst upp á Laugarbakka, býr á Akra- nesi, lauk BA-prófi í norsku við HÍ og starfar við Póstinn á Akranesi. Sonur: Natan Dagur Berndsen, f. 2009. Foreldrar: Regína Ólína Þórarinsdóttir Berndsen, f. 1954, stuðningsfulltrúi við Grunnskólann á Hvammstanga, og Víðir Gissurarson, f. 1958, kranamaður hjá Havator í Gautaborg. Katrín Þóra Víð- isd. Berndsen 40 ára Ingólfur ólst upp í Kópavogi, býr þar, lauk BEd-prófi frá HÍ og kennir við Kópavogsskóla. Börn: Helga Xocthil, f. 2003, og Tómas Pétur, f. 2006. Systkini: Fanney Dögg, f. 1982; Elías, f. 1987, og Elísa Björk, f. 1994. Foreldrar: Geirlaug Ing- ólfsdóttir, f. 1955, ræsti- tæknir, og Sigurður Korn- elíusson, f. 1955, húsa- og húsgagnasmiður. Ingólfur Guðnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.