Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 23.03.2018, Blaðsíða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „Leikhópur í Borgarleikhúsinu setur upp morðgátu við nokkuð frum- stæðar aðstæður en sýningin á að vera nokkurs konar „break-through“ fyrir hópinn. Ekki byrjar það vel því fljótlega fer allt úrskeiðis; leik- myndin virkar ekki sem skyldi, dyr opnast ekki, leikmunavörð- urinn hefur ekki staðið sig í að koma fyrir hlut- um á réttum stöð- um og leikararnir kunna ekki al- mennilega text- ann sinn,“ segir á vef Borgarleik- hússins um enska gamanleikinn Sýn- ingin sem klikkar sem frumsýndur verður á Nýja sviði leikhússins annað kvöld. Úr þessu verði ótrúleg at- burðarás þar sem allt klikki sem klikkað geti og rúmlega það og á meðan streði leikararnir við að koma til skila hinu dramatíska morðgátu- leikriti. Sýningin sem klikkar er eftir Henry Lewis, Henry Shields og Jo- nathan Sayer og hlaut Olivier-leik- húsverðlaunin sem besti gamanleik- urinn í Bretlandi árið 2015. Leikritið hefur gengið fyrir fullu húsi í London allt frá frumsýningu árið 2014 og var frumsýnt á Broadway í fyrravor þar sem það er enn sýnt við miklar vin- sældir. Um íslenska þýðingu sá Karl Ágúst Úlfsson og leikstjóri er Hall- dóra Geirharðsdóttir. Leikarar eru Bergur Þór Ingólfsson, Birna Rún Eiríksdóttir, Davíð Þór Katrínarson, Hilmar Guðjónsson, Hjörtur Jóhann Jónsson, Katrín Halldóra Sigurðar- dóttir og Kristín Þóra Haraldsdóttir. Helga I. Stefánsdóttir sér um leik- mynd og búninga. Reynir mjög á leiktækni Halldóra segir æfingar hafa geng- ið vel, þegar blaðamaður slær á þráð- inn til hennar á þriðjudegi, fjórum dögum fyrir frumsýningu. „Þetta er bara eins og að æfa tónverk, allt snýst um ryþma núna og á loka- sprettinum er ég í rauninni að af- henda þeim sýninguna. Þau þurfa bara að æfa sig í trillunum og hvern- ig þau gefa boltann. Að leika farsa er bæði sinfónía og handbolti,“ segir leikstjórinn. – Þetta er þá farsi? „Þetta er gamanleikur og það er alla vega notuð farsatækni sem er rosalega hraður fókusflutningur og reynir mjög á leiktækni leikaranna. Og svo er bara að taka ákvörðun um hvort er fyndnara við hverja einustu setningu, þetta eða hitt.“ – Það er þá að mörgu leyti flókn- ara að leika í og leikstýra farsa en annars konar leikritum? „Það er leiktæknilega miklu flókn- ara en þú þarft ekki að taka mjög stórar konseptákvarðanir,“ segir Halldóra. „Við erum ekki í angist yfir hörmungum heimsins, erum í raun- inni bara að hreyfa orku og ekki að skora á áhorfendur vitsmunalega. Fólki líður öðruvísi þegar það fer út en þegar það kom inn en þó ekki vits- munalega.“ Halldóra segir mælinguna á við- brögðum áhorfenda úti í sal mjög skýra þegar farsi sé annars vegar. „Annað hvort hlær fólk eða ekki. Svo er freistandi fyrir leikhóp að sækja það sem við köllum lélegu hlátrana með lúðalegum bröndurum en við reynum, eftir fremsta megni, að koma með góða brandara. Það sem okkur finnst vera gott grín.“ Þrjár sýningar í gangi Leikhópurinn sem setur upp morðgátuna í verkinu er skipaður mjög metnaðarfullu fólki í tíma- þröng, að sögn Halldóru. „Það klikk- ar allt sem getur klikkað,“ segir hún. – En fyrst sýningin er um sýningu sem klikkar, vita áhorfendur þá nokkuð af því ef eitthvað klikkar sem á ekki að klikka? „Nei, eins og á æfingu í gær þá klikkaði margt sem átti ekki að klikka þannig að það voru eiginlega þrjár sýningar í gangi: Morð á meðal vor sem er spennuleikritið og svo Sýningin sem klikkar sem á að klikka og svo klikkaði Sýningin sem klikkar líka. Það voru þjár sýningar í gangi í gær en ekki bara tvær,“ svarar Hall- dóra kímin. – Það hlýtur að vera þægilegt að vita til þess að ef eitthvað klikkar sem á ekki að klikka tekur enginn eftir því? „Jú, og þau stóðu sig mjög vel í gær, ég held að áhorfendur hafi ekki áttað sig á að það var margt sem klikkaði sem á ekki að klikka,“ segir Halldóra. Allt sem getur slegið leikara út af laginu Nokkrir leikarar sem voru saman í bekk í London Academy of Music & Dramatic Art, LAMDA, settu leik- sýninguna upp á sínum tíma og Hall- dóra segir að Hera Hilmarsdóttir hafi átt að vera með en sökum anna hafi hún ekki getað það. „Það er eins og leikhópurinn hafi sest niður og skrifað niður allar martraðir leik- arans og hvað geti hugsanlega slegið þig út af laginu á sviði. Það er eins og þau hafi búið til tékklista með því og komið öllu á honum fyrir í þessari leiksýningu,“ útskýrir Halldóra. Hún telur að allir geti sett sig í spor leikara sem standi á sviði frammi fyrir fjölda áhorfenda og lendi í því að eitthvað klikki. „Þetta eru martraðir leikaranna og almenn- ingur á mjög auðvelt með að setja sig í þau spor. Leikarar eru oft spurðir að því hvað þeir geri þegar þeir gleyma texta eða lenda í hinu eða þessu og í þessari sýningu fáum við að sjá hvernig leikhópur bregst við þegar það gerist allt saman.“ Líkara því að stjórna tónverki Halldóra er spurð út í þýðingu Karls Ágústs á verkinu og segir hún að þýðingin sé afar vel heppnuð. „Hann fer með okkur inn í útvarps- leikhúsið af því þetta er spennu- leikrit, notar orðfæri einhvers konar spennuleikritaheims og hann hefur meira að segja skrifað leikrit sjálfur, Allir á svið, sem er í rauninni byggt á sömu hugmynd,“ segir Halldóra. Hún segir að Sýningin sem klikkar sé mjög vel heppnað verk og að nær allar brellur sem sjáist í sýningunni megi finna í handritinu. „Við bætum náttúrlega okkar við líka, það sem varð til í æfingaferlinu en það er rosalega mikið fyrirskrifað í handriti sem gerir að verkum að ég velti því stundum fyrir mér hvort þetta er meira eins og að stjórna tónverki en að stjórna leikriti,“ segir Halldóra. Þá megi einnig líka líkja leikstjórn- inni við klippingu á kvikmynd að því leyti að beina þurfi athygli áhorfand- ans að réttu stöðunum. Trúðatæknin nýtist vel Síðasti gamanleikurinn sem Hall- dóra leikstýrði í Borgarleikhúsinu var Beint í æð árið 2014 og segir hún Sýninguna sem klikkar flóknari og minna meira á trúðasýningarnar sem hún hefur leikið í, Dauðasyndirnar og Jesú litla. „Þar erum við trúðar sem eru að leika leikrit þannig að við erum með tvo heima í gangi og það sama má segja um þetta verk. Þar er leikhópur að leika morðgátu þannig að það eru tvö leikrit í gangi. Mér fannst því trúðatæknin nýtast mér mögulega betur en að hafa leikstýrt farsa,“ segir Halldóra. Halldóra er að spurð að því hvað megi alls ekki klikka hjá henni við leikstjórn svona sýningar og svarar hún því til að leikstjórinn megi alls ekki taka frelsið af leikurunum. „Þú mátt aldrei stíga inn í sköpunarkraft leikhópsins, mátt ekki þvælast fyrir sköpunarkrafti þeirra, þá tapa þau gleðinni og þá er allt ónýtt.“ Ljósmynd/Grímur Bjarnason Martraðir leikarans  Allt sem getur klikkað klikkar í farsanum Sýningin sem klikkar sem hlaut Olivier-verðlaunin árið 2015  „Að leika farsa er bæði sinfónía og handbolti,“ segir leikstjórinn Halldóra Geirharðsdóttir Halldóra Geirharðsdóttir Klikkun Hjörtur Jóhann og Hilmar í Sýningunni sem klikkar. PÖNTUN AUGLÝSINGA: fyrir mánudaginn 16. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is SÉRBLAÐ Fatnaður fyrir brúðhjónin, förðun, hárgreiðsla, brúðkaupsferðin, veislumatur, veislusalir og brúðargjafir eru meðal efnis í blaðinu. Brúðkaupsblað fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 20. apríl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.