Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 39

Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MARS 2018 Snorra-Edda í uppsetningu Þorleifs Arnar Arnarssonar og Mikaels Torfasonar í Hannover hlýtur góða dóma í þýskum fjölmiðlum og trón- ir þessa vikuna á toppi vinsælda- lista menningarvefjarins nacht- kritik.de yfir athyglisverðustu sýningar í Austurríki, þýskumæl- andi svæðum Sviss og Þýskalandi. Sýningin er yfirferð Þorleifs Arnar og Mikaels yfir Snorra- Eddu. Inn í hana fléttast samskipti Mikaels við föður sinn. Eftir um- sögnum að dæma er sýningin mikið sjónarspil. Gagnrýnandi dagblaðsins Hannoversche Allgemeine, Ronald Mayer-Arlt, segir að Schauspiel Hannover hafi lagt mikið undir í þessari uppfærslu. Meiri tími hafi verið gefinn til æfinga en venja sé og leikarahópurinn fjölmennur. Samspil leikaranna allra sé fram- úrskarandi, segir hann, og bætir við: „Fjárfestingin hefur borgað sig. Þrátt fyrir að sýningin standi í fjóra tíma verður þessi „Edda“ aldrei leiðinleg, heldur alltaf spennandi og snertir við manni.“ Mayer-Arlt er það hrifinn af sýn- ingunni að hann mælist eindregið til þess að dómnefndin taki Eddu til greina þegar valdar verða athyglis- verðustu leiksýningar ársins til sýningar á árlegri stefnu leikhús- anna í Berlín. Frank Kurzhals skrifar í nachtkritik.de að miklu sé þjappað í sýninguna og þar sé að finna hæð- ir og lægðir, allt að því notalegar ástríður hins mikilfenglega og heildarinnar í bland við furðuleg innskot. Eitt þeirra sé þegar Donald Trump birtist sem skop- mynd af sjálfum sér, en einnig séu mögnuð augnablik eins og þegar hin alsjáandi Völva, sem í upphafi greini frá tilurð heimsins aðeins til að hrópa skömmu síðar í uppgjöf og örvæntingu: „Svört verða sól- skin.“ Kurzhals segir að sýningin sé eins og klippimynd, sem með því að upplýsa upphefji. Í Neue Presse segir Stefan Grol- isch að Þorleifur fjalli um „upphaf og endi heimsins“, hina „eilífu end- urkomu þess sama“ og úr verði „guðlegur gleðileikur“ og „mann- legur harmleikur“ þar sem forn vís- dómur sé vakinn til lífs og leiði stundum óvænt inn í daginn í dag. Í skýringum með listanum, sem nefndur var í upphafi, segir að hann sé byggður á því hvaða sýning hafi vakið mesta athygli gagnrýn- enda bæði á vefnum Nachtkritik.de og í öðrum fjölmiðlum og almenn- ings í vikunni. Listinn er uppfærður vikulega, nú síðast á miðvikudag. Ein af sýningum ársins Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Teymi Þorleifur Örn og Mikael. Fjölmörg verk eftir KristinE. Hrafnsson er að finnaí almannarými víðsvegarum landið og ekki er víst að allir viðskiptavinir sem leggja á bílastæði aftan við Kringluna eða arka inn í IKEA átti sig á því að þeir séu staddir í miðju verki Krist- ins. Verk hans byggjast iðulega á heimspekilegum vangaveltum um staðsetningar og viðmið mannsins til glöggvunar á stöðu sinni í heim- inum. Skynjun okkar á tíma og rúmi í síbreytilegum heimi er ein- staklingsbundin og nokkuð víst að tempóið er jafn misjafnt og menn- irnir eru margir. Þegar hlutirnir ganga í aðeins hægari takti en von- ir standa til á rýnir það til að grípa til þess að segja án frekari umhugs- unar: „Þessi hefur allan tímann í heiminum“. - En hvað er allur tím- inn í heiminum? Tíminn er órætt fyrirbæri en jafnframt heillandi viðfangsefni sem listamaðurinn Kristinn E. Hrafnsson glímir við á sýningunni Þvílíkir tímar í Hverf- isgalleríi. Á miðju gólfi sýningarrýmisins er titilverk sýningarinnar, trébekk- ur með stálfótum og innfelldri áletrun „Þvílíkir tímar“, gestir geta tyllt sér niður og velt fyrir sér sí- fellu tímans. Kristinn hefur löngum unnið með áletrun í verkum sínum, þar sem hnitmiðaður textinn, sem hann sækir til merkra skálda, vek- ur vangaveltur hjá áhorfandanum, meitluð orðin taka hann á flug. Kristinn tileinkar tveimur ljóð- skáldum, sem nýlega féllu frá, verk á sýningunni, þar á meðal er verkið „Fjórir hornsteinar (til Þ.f.H.) “ (2018) sem er tileinkað Þorsteini frá Hamri. Verkið er í raun grá- grýtishnullungur sem hefur verið klofinn í fernt og einum hluta stillt upp í hvert horn sýningarsalarins og rammar þannig inn sýninguna. Á veggjunum gefur að líta hand- skrifaðar setningar steyptar úr járni. Setningarnar fjalla allar á einn eða annan hátt um tímann: „Fyrir upphafið og eftir endinn“, „Endalaust“ ,„Frá upphafi til enda“ (2017). Óstyrk rithönd aldr- aðs einstaklings gæðir setning- arnar einstakri og persónulegri nánd. Setbekkurinn og vegg- textarnir á sýningunni kalla fram samtal við annað verk Kristins frá árinu 2005, en það er einnig tré- bekkur með handskrifaðri áletrun; „Stöðug óvissa“. Rithöndin á verk- inu tilheyrir sama einstaklingnum og á veggtextunum sem nú eru til sýnis í Hverfisgalleríi. Hér fer fram samtal um hverfulleika lífsins og óvissuna sem felst í tilverunni – lífið er stöðug óvissa, frá upphafi til enda. Eldrauð kúla með stöng upp úr brýtur upp naumt yfirbragð sýn- ingarinnar, verkið heitir „Pendúll“ en sveiflast eingöngu ef hreyft er við stönginni og með þátttöku sinni virkjar áhorfandinn atburðarás, verkið er eins konar öfugur pendúll sem sveiflast á tilviljunarkenndan hátt en hefur ekki taktfast tif eins og í klukku. Mót vísinda og lista birtast í grafíkverkum af myndum úr geimnum sem teknar eru með Hubble-sjónauka og skeytt saman við sömu handskrifuðu setning- arnar og áður er lýst. Listamað- urinn snýr upp á þekkingarleit vís- indamanna, myrkrið er orðið bjart og stjörnurnar svartar. Hér mæt- ast ímyndunarafl skáldsins og rök- hyggja vísindanna. Verkin á þessari heildstæðu sýn- ingu eru ljóðrænni en oft áður hjá Kristni og nánast melankólískur undirtónn. Hér er engin manns- mynd sýnileg en listamaðurinn er samt sem áður að fjalla um tilveru mannsins, hið margslunga sam- band hans og umheimsins. Þvílíkir tímar er vettvangur til íhugunar um tímann og vekur hugleiðingar um hina eilífu hringrás, upphaf og endi – allan heimsins tíma. Morgunblaðið/Hari Heillandi Tíminn er órætt fyrirbæri en jafnframt heillandi viðfangsefni sem Kristinn glímir við í Hverfisgalleríi. Allan heimsins tíma Hverfisgallerí Þvílíkir tímar – Kristinn E. Hrafnsson bbbbn Sýningin stendur til 31. mars 2018. Opið er í Hverfisgalleríi, Hverfisgötu 4, þriðjudaga til föstudaga kl. 13 – 17 og frá kl. 14 – 17 á laugardögum. ALDÍS ARNARDÓTTIR MYNDLIST Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Þri 15/5 kl. 20:00 aukas. Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Lau 19/5 kl. 20:00 37. s Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Mið 23/5 kl. 20:00 aukas. Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Fim 24/5 kl. 20:00 aukas. Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Fös 25/5 kl. 20:00 38. s Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Lau 26/5 kl. 20:00 39. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Sun 27/5 kl. 20:00 40. s Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Mið 30/5 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Fim 31/5 kl. 20:00 41. s Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Fös 1/6 kl. 20:00 46. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Lau 2/6 kl. 20:00 47. s Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 7/9 kl. 20:00 139. s Mið 12/9 kl. 20:00 141. s Sun 16/9 kl. 20:00 143. s Sun 9/9 kl. 20:00 140. s Fim 13/9 kl. 20:00 142. s Lau 22/9 kl. 20:00 144. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas. Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 13. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Sun 6/5 kl. 20:00 14. s Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Mið 9/5 kl. 20:00 15. s Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Sun 29/4 kl. 20:00 10. s Fim 10/5 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 16. s Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Slá í gegn (Stóra sviðið) Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn Sun 27/5 kl. 19:30 30.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Svartalogn (Stóra sviðið) Fim 26/4 kl. 19:30 Fors Lau 28/4 kl. 19:30 2.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 4.sýn Fös 27/4 kl. 19:30 Frum Fim 3/5 kl. 19:30 3.sýn Fös 11/5 kl. 19:30 5.sýn Heillandi verk um höfnun og hindranir. Stríð (Stóra sviðið) Mið 16/5 kl. 19:30 Frums Fim 17/5 kl. 19:30 2.sýn Fös 18/5 kl. 19:30 3.sýn Ragnar og Kjartan hafa tvívegis skapað í sameiningu sviðsverk fyrir Volksbühne-l Efi (Kassinn) Fim 5/4 kl. 19:30 Síðustu Margverðlaunað og spennandi verk ! Faðirinn (Kassinn) Lau 24/3 kl. 19:30 28.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 30.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 29.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 31.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Ég get (Kúlan) Sun 25/3 kl. 13:00 Síðasta Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Oddur og Siggi (Á flakki um landið) Mán 9/4 kl. 11:00 Vík Mán 16/4 kl. 11:00 Selfoss Þri 15/5 kl. 11:00 Vestm.eyjar Þri 10/4 kl. 11:00 kirkjub.klaustur Þri 17/4 kl. 11:00 Selfoss Mið 11/4 kl. 11:00 Höfn Þri 24/4 kl. 11:00 Hveragerði Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning Pörupiltar (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 26/4 kl. 10:00 Fös 27/4 kl. 11:30 Mið 2/5 kl. 10:00 Fim 26/4 kl. 11:30 Mán 30/4 kl. 10:00 Mið 2/5 kl. 11:30 Fös 27/4 kl. 10:00 Mán 30/4 kl. 11:30 Hlátur og skemmtun í bland við eldfimt efni Barnamenningarhátið (Þjóðleikhúsið) Fös 20/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 13:00 Pétur og úlfurinn Sun 22/4 kl. 13:00 Oddur og Siggi Fös 20/4 kl. 10:00 Ég get Lau 21/4 kl. 13:00 Ég get Sun 22/4 kl. 15:00 Oddur og Siggi Lau 21/4 kl. 10:00 Pétur og úlfurinn Lau 21/4 kl. 15:00 Ég get Barnamenningarhátíð 2018 leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Lifandi tónlist mbl.is/tonleikar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.