Morgunblaðið - 23.03.2018, Síða 44
FÖSTUDAGUR 23. MARS 82. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Þakklát fyrir að hafa sest í sófann
2. Heiðrún Anna heimsótt …
3. Saup hveljur rétt fyrir áreksturinn
4. 26,3 milljónir í laun …
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Stuðmannamyndin Með allt á
hreinu frá 1982 verður sýnd í Bíó
Paradís annað kvöld, laugardag, kl.
20. Áhorfendum býðst að syngja með
því söngtextar birtast á skjánum í öll-
um lögum myndarinnar.
Gestir mega syngja
með í bíósalnum
Þýska útgáfufyrirtækið Deutsche
Grammophon gefur í dag út tvöfalt
albúm með tónlist Jóhanns Jóhanns-
sonar sem nefnist Englabörn & Var-
iations. Um er að ræða endur-
hljóðblöndun á Englabörnum, fyrstu
sólóplötu Jóhanns sem breska út-
gáfufyrirtækið Touch gaf út 2002,
auk nýlegra tilbrigða. Eitt þeira er pí-
anóverk sem Víkingur Heiðar Ólafs-
son leikur. Í kynningartexta á vef DG
er Englabörnum lýst sem földum fjár-
sjóði og Jóhanni hampað fyrir mikil-
vægt framlag hans til að bræða sam-
an klassísk og elektrónísk hljóðfæri.
Ótímabært fráfall hans er harmað og
segjast starfsmenn DG á sorgar-
tímum ylja sér við minningar um
hlýja nærveru Jóhanns og dulúð,
„þurran húmor og þrotlausa og ein-
arða leit hans að nýjum hljóðum og
hugmyndum. Hljóðheimur
Jóhanns var einstakur
og tómið sem and-
lát hans skapar
verður aldrei
hægt að fylla.
Máttur tón-
listar hans lif-
ir áfram og
snertir við
okkur“.
„Hljóðheimur Jó-
hanns var einstakur“
Á laugardag Norðvestlæg átt, víða 5-13 m/s. Dálítil él eða slyddu-
él, en þurrt og bjart sunnan- og suðaustanlands. Samfelld snjó-
koma á Austurlandi um kvöldið. Hiti kringum frostmark.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Víða hæg suðlæg eða breytileg átt, stöku
slydduél sunnanlands en bjartviðri austantil. Gengur í norðan 10-
18 vestast á landinu með snjókomu eða slyddu. Hiti 0 til 6 stig.
VEÐUR
„Íslendingar eru yfirleitt
mjög bjartsýnir og þeir
bjuggust við því að við fær-
um á HM, en þeir eru líka
raunsæir svo ef við töpum
leik eru þeir bjartsýnir fyrir
næsta leik á eftir,“ sagði
Heimir Hallgrímsson m.a. á
blaðamannafundi karla-
landsliðsins í fótbolta í
Santa Clara í gærkvöld.
Anna Marsibil Clausen
skrifar um fundinn fyrir
Morgunblaðið. »1
Bjuggust við að
við færum á HM
Frá því að úrslitakeppni um Íslands-
meistaratitilinn í handknattleik karla
var tekin upp á ný fyrir nærri áratug
hefur það síst verið ávísun á Íslands-
meistaratitilinn að verða deildar-
meistari. Aðeins 2010 og 2016 varð
sama lið deildarmeistari og Íslands-
meistari. Haukar í
bæði skipti. Á
síðasta ári
vann FH
deildar-
keppnina en
Valur, sem
varð í sjö-
unda sæti í
deildinni,
stóð uppi
sem Ís-
landsmeistari,
reyndar eftir
rimmu við FH. »4
Sigur í deildinni ekki
verið ávísun á titilinn
KR sló Njarðvík út úr úrslitakeppni Ís-
landsmóts karla í körfuknattleik í
gær með 81:71 sigri í þriðja leik lið-
anna í Vesturbæ Reykjavíkur. Í Breið-
holtinu mættust ÍR og Stjarnan þar
sem ÍR hafði betur 67:64. ÍR-ingar
eru þar með 2:1 yfir í rimmunni en
næsti leikur verður í Garðabæ. Í kvöld
eigast við Tindastóll og Grindavík
sem og Haukar og Keflavík. »2-3
Njarðvíkingar komnir í
sumarfrí í körfunni
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sigurður Elvar Baldvinsson, bakara-
og konditor-meistari, var í danska
landsliðinu sem sigraði á Norður-
landamóti bakara, Nordic Bakery
Cup, sem fram fór í Herning í Dan-
mörku um liðna helgi. Hann varð
einnig hlutskarpastur í gerð skraut-
stykkja. Svíar urðu í 2. sæti í liða-
keppninni, Norðmenn í því þriðja og
lið Íslands hafnaði í fjórða og neðsta
sæti.
„Keppendur Íslands stóðu sig al-
veg eins og hetjur, keppnin var mjög
jöfn og mjótt á mununum,“ segir Sig-
urður. Hann bætir við að verðlaunin
hafi mikla þýðingu fyrir hann. „Fag-
lega séð er þetta mikill heiður og er
ég að uppskera ávöxtinn af mikilli
vinnu og mörgum tímum í bakaríinu.
Persónulega hefur þetta kannski
ennþá meiri þýðingu þar sem ég fékk
heilablóðfall fyrir einu og hálfu ári og
var frá vinnu í tvo mánuði. Gerðist
reyndar viku eftir að ég varð
aðstoðarþjálfari danska bakaralands-
liðsins. Ég komst upp úr þeim erfið-
leikum með hjálp fjölskyldu og vina
en ekki síst landsliðsins sem stóð við
bakið á mér allan tímann.“
Eins og Haukar á móti FH
Undanfarin 15 ár hefur Sigurður
unnið sem bakari og konditor í Ála-
borg í Danmörku. Hann hafði verið
aðstoðarþjálfari danska bakaralands-
liðsins í eitt ár þegar hann var beðinn
um að taka að sér skrautstykkið í ár
og segist ekki hafa getað skorast
undan því. „Þetta var líka góð leið til
að sanna fyrir sjálfum mér að ég gæti
verið á meðal þeirra bestu.“
Sigurður lærði fagið í Kökubank-
anum í Garðabæ og vann þar í fjögur
ár. Hann starfaði í stuttan tíma í
Breiðholtsbakaríi áður en hann flutti
til Danmerkur í janúar 2003 til þess
að mennta sig sem konditor. Hann
hefur farið á ótal námskeið, m.a. í
Bandaríkjunum, og sjálfur kennt á
mörgum námskeiðum. Hann var í
fyrsta danska kontitor-landsliðinu
2008-2010, en undanfarin ár hefur
hann verið fagkennari í Álaborg.
„Ég ætlaði mér alltaf að vinna í
kökunum og hef sérhæft mig í þeim,“
segir Sigurður. Hann fékk verðlaun
fyrir sveinsstykkið á sínum tíma og í
keppninni nú fékk hann sérstök verð-
laun fyrir brauðskrautstykki. Það
varð að vera í brauðlitum og var að
mestu úr rúgmjöli, vatni og sykri, en
þemað var íþróttir, eða sport.
Mikið er lagt upp úr bakstri í Dan-
mörku og Sigurður segir að ekkert
sé til sparað í sambandi við lands-
liðið. „Við höfum allt til alls sem gerir
þátttökuna enn skemmtilegri,“ segir
hann. Hafnfirðingurinn segir það
hafa verið sérstakt að keppa á móti
Íslendingum, en í íslenska liðinu
voru Ásgeir Þór Tómasson, fagstjóri
bakaradeildarinnar í Hótel- og mat-
vælaskólanum, Birgir Þór Sigur-
jónsson, yfirbakari hjá Brauð & Co,
og Þórey Lovísa Sigurmundsdóttir,
bakari hjá Sandholt. Daníel K. Ár-
mannsson var í hópi dómara. Sig-
urður segir að sem barn hafi hann
búið í norðurbænum í Hafnarfirði og
æft og spilað með FH. Síðan hafi
hann flutt í suðurbæinn og gengið í
Hauka. „Það var alltaf mjög skrýt-
ið að keppa á móti félögum mínum
í FH og tilfinningin núna var
eins.“
Sigurður í gullliði Dana
Skrautstykki
hans fékk fyrstu
verðlaun á NM
Meistarastykkið Sigurður Baldvinsson leggur lokahönd á verkið, sem var í anda Ólympíuleikanna.
Gulllið Dana Frá vinstri: Asger Redsø, einn af þjálfurum landsliðsins, Per
Eckholdt, Sigurður E. Baldvinsson og Stephanie Carbel Svendgaard.