Fréttablaðið - 06.06.2018, Page 10

Fréttablaðið - 06.06.2018, Page 10
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5800, ritstjorn@frettabladid.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Kjartan Hreinn Njálsson kjartanh@frettabladid.is Það mikil- væga verkefni að efla traust á Alþingi er ekki aðeins verkefni ríkisstjórnar. Það er próf- raun allra þingmanna. Á hverju ári má gera ráð fyrir því að um 37 börn sem ekki hljóta við- eigandi meðferð verði út undan og að náms- og félagsfærni þeirra hraki. Á Vesturlöndum er heilaskaði talinn ein helsta ástæðan fyrir heilsufarsvandamálum hjá börnum, unglingum og ungu fólki á fullorð- insaldri. Hér á landi eru árlega greind yfir 500 börn með heilaáverka og 200 af þeim eru börn á aldr- inum 0-4 ára. Af þessum tölum má dæma að 40 börn og unglingar muni þurfa að takast á við alvarlegar afleiðingar heilaskaða til lengri tíma og oft á tíðum fram á fullorðinsár. Þessi börn þurfa á sérhæfðri endurhæfingu að halda til að lágmarka afleiðingar heilaskaða en því miður eru slík úrræði ekki í boði í heilbrigðiskerfinu. Í dag fá einungis eitt til þrjú börn á Íslandi, af fjöru- tíu, greiningu og skammtímaendurhæfingu, brota- brot af þeim börnum sem þurfa á meðferð að halda. Afleiðingar heilaskaða í æsku koma oft ekki að fullu fram fyrr en við fullorðinsárin þegar þessir einstaklingar fara að reyna að standa á eigin fótum í lífinu. Heilaskaði er fötlun sem hefur vitsmunaleg og líkamleg áhrif á einstaklinginn. Fá ranga meðferð Hvað verður um hin 37 börnin? Jú, þau gleymast. Á hverju ári má gera ráð fyrir því að um 37 börn sem ekki hljóta viðeigandi meðferð verði út undan og að náms- og félagsfærni þeirra hraki. Mörg af þessum börnum fá ranglega greiningu um AD/HD eða einhverfu og af þeim sökum fá þau ranga meðferð og jafnvel röng lyf. Þrátt fyrir að einkenni séu svipuð er um ólíka hluti að ræða sem þarfnast ólíkrar meðferðar. Mikið í húfi Það er mikið í húfi og nauðsynlegt að sinna þessum gleymdu börnum og gefa þeim tækifæri til að taka þátt í samfélaginu sem virkir einstaklingar. Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir, hefur nú skipað starfshóp sem fer vandlega yfir stöðu fólks með ákominn heilaskaða og þar með talið börnin okkar. Sérhæfð íhlutun er ekki til staðar á Íslandi og úr því þarf sannarlega að bæta. Gleymdu börnin á Íslandi Stefán John Stefánsson verkefnastjóri Hugarfars Traust almennings til Alþingis var í febrúar síðastliðnum, samkvæmt mælingum Gallup, aðeins 29 prósent. Það verður að teljast ólíklegt að þau vinnubrögð sem einkennt hafa síðustu daga í þingsal séu til þess fallin að efla og bæta ásýnd þingheims í augum og huga almenn- ings. Enginn getur gert þá kröfu að á Alþingi verði hlutirnir að ganga snurðulaust fyrir sig. Núningur er af hinu góða þegar hann er knúinn áfram af sannfæringu sem hafin er yfir trúarkenningar flokksins og eigin hagsmuni. Togstreitan er óum- flýjanleg þegar kjörnir fulltrúar með mismunandi bakgrunn, reynslu og veraldarsýn freista þess að vinna saman. Og sem betur fer er holl togstreita og öflug skoðanaskipti oft á tíðum viðhöfð í þingsal. Tillaga meirihluta atvinnuveganefndar, með stuðningi frá útgerðarmanni sem einnig er þing- maður Miðflokksins, um breytingu á veiðigjöldum og atburðarásin í kringum hana er hins vegar þver- öfugt dæmi um það hvernig við viljum sjá okkar kjörnu fulltrúa taka höndum saman til að tryggja almannahag. Risavaxið mál var lagt fram á síðustu stundu og afbrigða leitað. Um augljóst átakamál var að ræða. Umræða um málið kallaði á aukinn meirihluta og eftir margra klukkustunda stapp – tíma sem betur hefði verið varið í að ræða fjármálaáætlun eða nýja persónuverndarlöggjöf – var niðurstaðan sú að tillaga um að taka málið á dagskrá var felld. Annaðhvort hafa þingflokksformenn ríkisstjórnar- flokkanna boðað til atkvæðagreiðslu sem óvíst væri hvernig myndi fara eða þeir voru sviknir um stuðning úr röðum stjórnarandstöðunnar. Sama hvernig á málið er litið er um meinlegan vandræða- gang að ræða sem ekki á að fyrirfinnast í þingheimi. Á sama tíma kemur í ljós að hinn stuðningsglaði þingmaður Miðflokksins, Sigurður Páll Jónsson, hafði mikilla hagsmuna að gæta sem eigandi lítillar útgerðar. Fyrirtæki hans hefði hagnast um háar fjár- hæðir með samþykkt frumvarpsins. Hann svaraði Fréttablaðinu á þessa leið aðspurður um vanhæfi: „Ég er þingmaður og hef ekki skoðað mín mál í sam- bandi við þetta. Ég reikna með að fá afslátt enda er reksturinn þungur og margir hafa gefist upp.“ Staðreyndin er sú að breytingin mun fyrst og fremst hagnast stærri útgerðum, eins og Fréttablað- ið hefur greint frá. Tíu stærstu fyrirtækin fá helming lækkunarinnar sem nemur 2,6 milljörðum króna. Það mikilvæga verkefni að efla traust á Alþingi er ekki aðeins verkefni ríkisstjórnar. Það er prófraun allra þingmanna, þingheims í heild, og síðustu dagar eru ömurlegur vitnisburður um framlag þeirra. Veiðigjöld og trúverðugleiki Dimmar stundir Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þing- kona Vinstri grænna, hefur ekki farið leynt með að stjórnarsam- starf flokks hennar, Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks er henni þvert um geð. Hún flaggaði þessari skoðun sinni smekklega á þingi í fyrradag. Þegar þing- flokksformaður hennar, Bjarkey Olsen, steig í pontu tók hún upp bókina Darkest Hour. Bókin, fjallar ekki síst um baráttu Winstons Churchill gegn friðar- samningum Breta við Hitler, Rósa Björk virtist hafa mun meiri áhuga efni hennar en boðskap Bjarkeyjar. Rósa Björk upplýsti á Fréttablaðið.is í gær að hún væri komin á 6. kafla og fyndist bókin góð. Er fegurðin eldsmatur? Elísabet Jökulsdóttir stóð fyrir gjörningi og hélt þrumuræðu við opnun málverkasýningarinnar Einskismannsland – Ríkir þar fegurðin ein? á Kjarvalsstöðum um helgina. Þar eru sýnd verk helstu listamanna þjóðar- innar allt frá árdögum íslenskrar myndlistar hvar náttúran og fegurð hennar fá sín notið á strig- anum. Elísabet setti sýninguna í samhengi við stóriðju og ekki síst fyrirhugaða Hvalárvirkjun og spurði hvort ekki mætti ein- faldlega eyða og brenna lista- verkunum af öræfunum. „Er þetta nokkurs virði nema það sé eyðilagt?“ thorarinn@frettabladid.is 6 . j ú n í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R10 s K o Ð U n ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN 0 6 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :5 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 0 3 -1 A 3 8 2 0 0 3 -1 8 F C 2 0 0 3 -1 7 C 0 2 0 0 3 -1 6 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 5 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.