Fréttablaðið - 06.06.2018, Síða 16

Fréttablaðið - 06.06.2018, Síða 16
markaðurinn Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5800 Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5800 Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is Arthur Irving yngri, fyrrver­andi forstjóri kanadíska olíu­félagsins Irving Oil, býður sig fram í stjórn Heimavalla á hluthafa­ fundi félagsins sem verður haldinn á föstudag. Irving er hluthafi í íbúða­ leigufélaginu en félag hans, Nilock Capital Corporation, fór með eins prósents hlut í Heimavöllum í lok síðasta árs. Irving yngri er afabarn Kenneths Colins Irving heitins sem byggði fjölskylduveldið upp frá grunni en hann opnaði fyrstu bensínstöð Irv­ ing Oil árið 1924, þá 25 ára að aldri. Fjölskyldan er vellauðug og kemur víða við. Á ættarveldið ráð­ andi hlut í hundruðum fyrirtækja í olíuiðnaði, olíuhreinsun, smásölu­ verslun, iðnaði og fjölmiðlum, svo eitthvað sé nefnt. Mest eru umsvifin í héraðinu New Brunswick í Kanada þar sem Irving yngri býr. Faðir hans, Arthur Irving eldri, er einn ríkasti maður Kanada en auður hans er metinn á bilinu 5,8 til 9,5 milljarða dala. Hann á að fullu olíufélag fjölskylduveldisins, Irving Oil, en þar starfaði sonurinn sem forstjóri til fjölda ára. Samkvæmt heimildum Markað­ arins nýtur Irving stuðnings nokk­ urra stærri hluthafa Heimavalla og eru taldar sterkar líkur á því að hann verði kjörinn í stjórn íbúða­ leigufélagsins á hluthafafundinum á föstudag. Átta bjóða sig fram í fimm sæti í stjórnarkjöri félagsins. Þrír stjórnar­ menn, Anna Þórðardótt ir, Hall dór Kristjáns son og Hild ur Árna dótt ir, bjóða sig fram til áfram hald andi setu, en auk þeirra gefa kost á sér þau Irving, Björk Þórarinsdóttir, Ein­ ar Sím on ar son, Erlend ur Magnús son og Vil hjálm ur Bergs. – kij Kanadískur auðmaður á eitt prósent í Heimavöllum og gefur kost á sér í stjórn Bátasmiðjan Rafnar hættir rekstri á Íslandi Öllu starfsfólki Rafnars hér á landi hefur verið sagt upp störfum. Fyrirtækið flytur til útlanda. Framkvæmdastjóri Rafnars segir erfitt að standa í rekstrinum hér á landi og glíma við íslensku krónuna. Markaður fyrirtækisins sé erlendis. Fyrirtækið hefur hannað byltingarkenndan skrokk sem vakið hefur heilmikla athygli erlendis. Fréttablaðið/SteFán Bátasmiðjan Rafnar ehf. hefur sagt upp öllu starfsfólki sínu og flytur fyrirtækið til útlanda. Í rúman áratug hefur fyrirtækið þróað, hannað og smíðað nýja tegund báta og hefur skrokkhönnun þeirra náð athygli erlendra aðila. Björn Jóns­ son, framkvæmdastjóri Rafnars, segir þetta erfiða en nauðsynlega aðgerð í þróun fyrirtækisins. „Það má segja að fyrirtækið sé að slíta barnskónum og er að verða að fullvaxta einstaklingi. Markaður fyrirtækisins er erlendis og það er erfitt að standa í þessum rekstri hér á landi og eiga við íslenskan gjald­ miðil,“ segir Björn í samtali við Markaðinn. Síðustu ár hafa frumgerðir báta fyrirtækisins verið smíðaðar á Kársnesi í Kópavogi og í framhaldi hafa bátarnir verið kynntir og seldir innlendum aðilum á borð við Land­ helgisgæslu Íslands og til ýmissa björgunarsveita, og til erlendra stofnana, fyrirtækja og einstaklinga. „Við höfum fengið afar góðar við­ tökur erlendis og þessi nýja hönnun okkar hefur reynst afar vel. Því eru núna uppi viðræður um að smíði þessara skipa verði fram haldið erlendis fyrir erlendan markað,“ segir Björn. ekki samkeppnishæft um verð Ástæður þess að fyrirtækið hættir rekstri sínum hér á landi eru að mestu vegna erfiðra skilyrða í íslensku efnahagslífi, að sögn Björns. „Það umhverfi sem við búum við hér á landi, með sterku gengi krónunnar og að vera svona langt frá okkar meginmörkuðum, veldur því að við erum ekki sam­ keppnishæfir um verð,“ bætir Björn við. „Þessir þættir sem og og óhag­ stæð viðskiptakjör birgja fyrir lítinn íslenskan markað valda því að við þurfum að endurskoða fyrirtækið.“ Björn segir það þyngst að þurfa að segja upp því góða starfsfólki sem hefur starfað hjá fyrirtækinu. „Það er auðvitað sárast að þurfa að segja öllum upp og loka starfsstöðinni hér í Kópavogi. Hér munu allir starfs­ menn hætta að mér meðtöldum. En því miður teljum við þetta skref óhjákvæmilegan hlut í þróun fyrir­ tækisins.“ Rafnar tapaði tæpum 436 millj­ ónum króna árið 2016 en tapið var um 513 milljónir árið áður. Félagið hefur ekki skilað inn ársreikningi fyrir síðasta ár. Eignirnar námu rúmlega 663 milljónum króna í lok árs 2016 en á sama tíma var eigið fé um 368 milljónir og eiginfjárhlut­ fallið 56 prósent. Alls starfaði 21 starfsmaður hjá fyrirtækinu í lok síðasta árs. Rafnar er hugarfóstur Össurar Kristinssonar, stofnanda stoð­ tækjaframleiðandans Össurar, en hann hefur fjármagnað uppbygg­ ingu fyrirtækisins frá stofnun árið 2005. Fram kom í Morgunblaðinu í desember í fyrra að heildarframlag Össurar til fyrirtækisins næmi um fimm milljörðum. Össur sagðist í viðtali við blaðið hafa óbilandi trú á fyrirtækinu og framleiðslunni sem það byggir grundvöll sinn á. Hins vegar væri komið að þeim tíma­ punkti að fleiri kæmu að enda væri það nauðsynlegt til þess að fyrir­ tækið gæti þróast áfram. sveinn@frettabladid.is kristinningi@frettabladid.is 436 milljónir króna var tap á rekstri rafnars árið 2016. Upplýsingar eingöngu veittar á skrifstofu að undangenginni undirskrift trúnaðaryfirlýsingar. Vel rekið fjölskyldufyrirtæki til sölu Viðskiptatækifæri! Nánari upplýsingar: Guðni Halldórsson, gudni@kontakt.is og Gunnar Svavarsson, gunnar@kontakt.is Fyrirtækið selur eigin framleiðslu og vörur til fyrirtækja og einstaklinga. Fyrirtækið er með sterk viðskiptasambönd, eigin innflutning og góðar og stöðugar arðgreiðslur. Sömu eigendur frá uppha hátt í tvo áratugi og er í eigin húsnæði á áberandi stað. Miklir vaxtamöguleikar fyrir rétta aðila. Breska lággjaldaflugfélagið EasyJet hefur lánað íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Dohop 2,25 milljónir evra, jafnvirði 279 milljóna króna. Flugfélagið getur breytt láninu í 15 prósenta hlut í Dohop við lok lánstímans. Þetta staðfestir Davíð Gunnarsson, fram­ kvæmdastjóri Dohop. „EasyJet á í nánu samstarfi við Dohop. Flugfélagið býður upp á vöruna Worldwide by EasyJet sem aðstoðar viðskiptavini við að finna tengiflug í gegnum önnur flugfélög. Tæknin er knúin af Dohop og EasyJet lítur á þetta verkefni sem lykilstef í vexti félagsins til framtíðar,“ segir Davíð í samtali við Markaðinn sem bendir á að miðað við farþegafjölda sé EasyJet áttunda stærsta flugfélag í heimi. Starfsmenn Dohop séu um 35. Að hans sögn liggur tvennt til grundvallar fjárfestingunni í Dohop. Annars vegar sé EasyJet að tryggja að nýsköpunarfyrirtækið hafi fjárhags­ legt bolmagn til að takast á við krefj­ andi verkefni fyrir flugfélagið. Hins vegar sé um stórt fjárfestingartæki­ færi að ræða sem þeir vilji taka þátt í. Rætur Dohop liggja í að finna hag­ kvæmustu flugfargjöldin fyrir við­ skiptavini í gegnum netið. „Á þeim markaði er hart barist. Í gegnum þá vinnu bjuggum við til tækni sem enginn annar í heiminum býður upp á og hentar vel fyrir lággjalda­ flugfélög sem vilja fara í samstarf við önnur flugfélög um að finna tengi­ flug. Dohop stendur frammi fyrir áhugaverðu tækifæri og er áhersla fyrirtækisins nú meira á því sviði þótt áfram verði boðið upp á flug­ leit á vefnum okkar. Við erum í við­ ræðum við um 100 flugfélög í fimm heimsálfum um samstarf. Núna erum við með einn viðskiptavin á þessu sviði en reiknum með að þeir verði fjölmargir í framtíðinni.“ – hvj EasyJet fjárfestir í Dohop Davíð Gunnarsson, forstjóri Dohop arthur irving. Tveir erlendir kröfukaupendur hafa sýnt áhuga á að festa kaup á kröfu í skaðabótamáli Datacell og Sun shine Press á hendur greiðslukortafyrirtækinu Valitor, samkvæmt heimildum Markaðar­ ins. Wikileaks tók við styrkjum í gegnum greiðslugátt sem Datacell og Sunshine Press Production (SPP) ráku. Hið síðarnefnda félag er að mestu í eigu Julians Assange, stofn­ anda vefsíðunnar. Greiðslugáttin var opnuð 7. júlí 2011 en degi síðar sleit Valitor samningum fyrirvaralaust. Hæstiréttur sló því föstu með dómi vorið 2013 að riftun samningsins væri ólögmæt. Frá þeim tíma hafa málaferli staðið um skaðabótakröf­ ur vegna riftunar og hefur deilan einkum snúist um þær forsendur sem leggja eigi til grundvallar við mat á fjártjóni og þar með fjárhæð skaðabóta. Dómkvaddir matsmenn mátu tjónið á 3,2 milljarða. Heimildir Markaðarins herma að Sveinn Andri Sveinsson, lögmaður Datacell og SPP, hafi að undanförnu reynt að ná samkomulagi við Vali­ tor sem hafi hljóðað upp á um tvo milljarða króna. – hvj Fjárfestar skoða kaup á kröfu á Valitor Sveinn andri Sveinsson. EasyJet lánaði Dohop 2,3 milljónir evra eða tæp- lega 300 milljónir. Láninu má breyta í 15 prósenta hlut í íslenska fyrirtækinu. 6 . j Ú n í 2 0 1 8 M I Ð V I K u D a g u R2 markaðurinn 0 6 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :5 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 0 3 -2 9 0 8 2 0 0 3 -2 7 C C 2 0 0 3 -2 6 9 0 2 0 0 3 -2 5 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 5 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.