Fréttablaðið - 06.06.2018, Síða 34

Fréttablaðið - 06.06.2018, Síða 34
Markaðurinn instagram fréttablaðsins @frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 6. júní 2018fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál | Stjórnar- maðurinn 03.06.2018 @stjornarmadur FRÁBÆR FJÖLSKYLDUMYND FRÁ FRAMLEIÐENDUM SHREK CHARMING KOMIN Í BÍÓ Mikil átök hafa verið á Alþingi undanfarna daga vegna fyrir­ hugaðrar lækkunar á veiðigjöldum. Fyrir liggur að sú 17 prósenta lækkun sem boðuð er fer að langstærstum hluta í vasa stórút­ gerðanna, jafnvel þótt boðað sé að lækka eigi svokallaðan persónu­ afslátt á smærri útgerðir. Því verður það seint kallað annað en fyrirsláttur þegar aðgerðin er réttlætt með því að verið sé að bjarga smærri útgerðum og hinum dreifðu byggðum landsins. Mun auðveldara væri að ná þeim mark­ miðum með sértækari aðgerðum. Réttast er því að kalla þessa aðgerð sínu réttu nafni. Ölmusu til stór­ útgerða sem enga ölmusu þurfa. Fyrir liggur sömuleiðis að arð­ semi eigna í sjávarútvegi er mun hærri en annars staðar í atvinnu­ lífinu, jafnvel nú þegar gengi krónunnar er í hæstu hæðum. Útgerðarmennirnir kvörtuðu hins vegar ekki meðan krónan var veik, enda hagnast þeir á meðan. Engum dettur heldur í hug að aðrar greinar í landinu þurfi sambærilega ríkisaðstoð. Eitthvað yrði nú sagt ef ríkið hefði niðurgreitt lagerinn hjá Högum eða Festi eftir að Costco kom inn á markaðinn síðastliðið sumar. Venjuleg fyrirtæki í landinu þurfa einfaldlega að hagræða þegar skórinn kreppir. Sjávarútvegurinn hefur aldrei búið við það agatól enda alltaf getað farið til ríkisins með betlistaf í hendi. Nú eru væringar á markaði í sjávar­ útvegi eins og augljóst er af tilraun Brims til yfirtöku á HB Granda. Ekki er hins vegar endalaust hægt að taka yfir önnur fyrirtæki í sjávarútvegi. Annar vinkill á þá gríðarlegu arðsemi sem verið hefur í sjávar­ útvegi undanfarin ár er nefnilega sá að útvegsmenn hafa látið til sín taka í óskyldum rekstri. Þannig er næststærsta dagblað landsins að stærstum hluta í eigu útgerðarinn­ ar, og fari svo að kaup Haga á Olís verði staðfest verða útvegsmenn jafnframt stærstu einkafjárfestarnir í stærsta smásölufélagi landsins. Auðvitað skýtur skökku við að ríkið sé að niðurgreiða þessa veg­ ferð stórútgerðanna. Fylgifiskur þeirra yfirburða sem sjávarútvegs­ fyrirtækin njóta á önnur fyrirtæki í landinu er nefnilega sá að auður og eignir safnast á enn færri hendur. Varla vilja stjórnmálamennirnir það. allt á eina hönd Kostnaður við skráningu Heimvalla í Kauphöll Íslands er áætlaður um 155 milljónir króna. Til samanburðar var rekstrarkostnaður íbúðaleigu- félagsins, að kostnaði vegna fjárfestingareigna undanskildum, ríflega 97 milljónir króna á fyrsta fjórðungi ársins. Fram kom í máli Guðbrands Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Heimavalla, á fundi með fjárfestum í síðustu viku að umræddur skráningarkostnaður yrði gjald- færður á yfirstandandi ársfjórðungi. Viðskipti hófust með hlutabréf í Heimavöllum í Kauphöllinni 24. maí. Umtalsverð velta hefur verið með bréfin frá skráningu og hefur gengi bréfanna lækkað um 11 prósent frá meðalgenginu í hlutafjárútboði félagsins í byrjun maímánaðar. Annar rekstrarkostnaður Heimavalla var undir áætlun á fyrsta ársfjórðungi og lækk- aði um ríflega níu milljónir á milli ára. Félagið hagnaðist alls um 99 milljónir króna á tímabilinu borið saman við um 12 milljóna króna hagnað á fyrstu þremur mánuðum síðasta árs. – kij kostnaður við skráningu Heimavalla 155 milljónir Guðbrandur Sigurðsson Rekstrarskilyrði í sjávarútvegi í dag eru ekki þannig að þau eigi að bera veiði- gjöld sem taka mið af afkomu árið 2015. Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi 0 6 -0 6 -2 0 1 8 0 4 :5 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K _ N Ý.p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 0 3 -2 4 1 8 2 0 0 3 -2 2 D C 2 0 0 3 -2 1 A 0 2 0 0 3 -2 0 6 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 5 _ 6 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.