Morgunblaðið - 17.04.2018, Síða 15

Morgunblaðið - 17.04.2018, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018 Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur óskað er eftir því við borgarráð að það heim- ili sviðinu að bjóða framkvæmdir við gerð hjólastíga ásamt hljóðvarn- araðgerðum vestan Kringlumýrar- brautar, milli Miklubrautar og Bú- staðavegar. Kostnaðaráætlun vegna hjóla- stígs og hljóðvarna er 270 milljónir króna. Þar af er hlutur Reykjavík- urborgar 185 milljónir og Vega- gerðin mun greiða sömu upphæð. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist í maí nk. og þeim ljúki í nóv- ember. Verkið verður unnið í þrem- ur áföngum. Samhliða framkvæmdum við hjólastíginn verður núverandi göngustígur endurnýjaður. Verk- efnið er jafnframt samstarfsverk- efni með Veitum ohf. vegna endur- nýjunar og breytinga á lögnum. Til að verja aðliggjandi byggð við Stigahlíð fyrir umferðarhávaða frá Kringlumýrarbraut verður reistur 2,50 metra hár hljóðveggur með fjölbreyttum klifurjurtum og þekj- andi undirgróðri, eins og segir í lýs- ingu á verkefninu. sisi@mbl.is Mynd/Reykjavíkurborg Hjólastígurinn Húsin við Stigahlíð verða varin með hljóðvegg af nýrri gerð. Nýr hljóðveggur með klifurjurtum  Stígar lagðir við Kringlumýrarbraut Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Ég vænti að sú hækkun á sektum fyrir brot á umferðarlögum sem tek- ur gildi nú um mánaðamótin sé það mikil að bíti og hafi tilætluð áhrif. Að nú verði sektin fyrir að aka á 130 kíló- metra hraða þar sem hámarkshrað- inn er 90 kílómetrar 150 þúsund kr. hlýtur að fá fólk til að hugsa sinn gang,“ segir Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn á Norðurlandi vestra. 1.700 sektaðir Það sem af er árinu hefur Lögregl- an á Norðurlandi sektað alls 1.700 ökumenn fyrir umferðarlagabrot, þá einkum hraðakstur. Sektirnar í mars- mánuði voru alls 900, það er á öllu varðsvæðinu sem nær frá Holta- vörðuheiði að Öxnadalsheiði og norð- ur í Fljót. Var ranghermt í Morgun- blaðinu í gær að sektirnar í marsmánuði væru aðeins frá Blöndu- óslögreglunni. „Við höfum eflt umferðareftirlitið til muna. Með breyttu skipulagi hjá embættinu er uppsetningin þannig að tveir menn ganga vakt- ir hvor á móti öðr- um eru fyrst og síðast úti á vegunum við eftirlit og reynslan af því er góð. Umferðaróhöppum og slysum í um- dæminu hefur fækkað um 18% frá áramótum til dagsins í dag, miðað við sömu mánuði í fyrra. Það er mikil- vægur árangur en hér hafa oft orðið mjög alvarleg atvik, svo sem útafakst- ur og veltur því víða liggja vegir hátt,“ segir Stefán Vagn. Markvisst umferðareftirlit nyrðra segir hann ná til allra daga, en það sé og verði eflt sérstaklega þegar ástæða þykir til. Nefnir Stefán Vagn þar sérstaklega ferðahelgar á sumrin, til dæmis þegar fjöldasamkomur og bæjarhátíðir eru haldnar á Norður- landi. Eins og að framan greinir verða sektir og viðurlög fyrir umferðarlaga- brot hækkuð verulega frá og með 1. maí næstkomandi. Hækkunin er í flestum tilvikum í takt við verð- lagsþróun þó þannig að lægsta sekt- arfjárhæð verður 20 þús. kr. en var áður 5.000 kr. Þá verður sekt fyrir að nota farsíma við akstur 40 þús. kr. í stað 5.000 kr. eins og verið hefur lengi. Alvara málsins sé ljós „Það er mikilvægt að hækkun sekta fyrir umferðarlagabrot verði fylgt vel eftir með kynningu svo fólki sé alvara málsins ljós. Fyrir unga ökumenn er það mikill skellur að borga 100 þúsund krónur af sumar- laununum í sekt og allir vilja sleppa við slíkt. Með útlendinga á ferðinni er kannski erfiðara að koma skilaboðun- um á framfæri, enda eru þeir úr heimalöndum sínum vanir því að há- markshraði sé hærri en hér,“ segir Stefán Vagn. Hækkun á sektum þarf að bíta  1.700 sektaðir á Norðurlandi vestra á árinu  Umferðareftirlit lögreglu eflt  Fólk hugsi sinn gang  Hærri sektargreiðslum verði fylgt eftir með kynningu  Erfitt að ná til útlendinga í umferðinni Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skagafjörður Vörubíll á ferð og Mælifellshnjúkur í bakgrunni. 20 þúsund króna sekt » Hjólað gegn rauðu ljósi. » Ekið gegn einstefnu. » Vegfarandi hindrar eða rýfur för líkfylgdar eða hópgöngu. » Ekið eftir gangstétt. » Ökuljós eigi tendruð í birtu. » Óheimil notkun ljósa. » Stjórnað eða reynt að stjórna hjóli eða hesti undir áhrifum áfengis eða annarra örvandi eða deyfandi efna. » Ekið án þess að hafa endur- nýjað ökuskírteini. Stefán Vagn Stefánsson Ísfell ehf, Óseyrarbraut 28 220 Hafnarfjörður, Sími 5200 500 www.isfell.is, isfell@isfell.is Höfum á lager mikið úrval af alskyns vinnufatnaði, hífi- og festingabúnaði, krönum og talíum, snjókeðjum, pökkunarlausnum og fallvarnarbúnaði. Í vörulistanum á www.isfell.is er að finna ítarlegar upplýsingar um allar vörur. Vinnufatnaður Hífilausnir Kranar og talíur Snjókeðjur Pökkunarlausnir Fallvarnarbúnaður Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna! Rauðager ði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Allt fyrir kæli- & frystiklefa HurðirHillur Strimlahurðir Kæli- & frysti- kerfi Blásarar & eimsvalar Læsingar, lamir, öryggiskerfi ofl. Áratuga reynsla og þekking

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.