Morgunblaðið - 17.04.2018, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018
Alþjóðabankinn
framkvæmir reglu-
legar mælingar á því
hve auðvelt sé að
stunda atvinnurekst-
ur í ólíkum ríkjum.
Niðurstöðurnar má
sjá á síðunni Doing-
Business.org. Oftast
er miðað við ástandið
í höfuðborginni svo
staða Íslands er jafn-
framt staða Reykjavíkur. Nýja-
Sjáland er í efsta sæti en Ísland,
og þar með Reykjavík, stendur
sig nokkuð þokkalega í 23. sæti.
Í tveimur flokkum stöndum við
mjög illa, erum neðar en í 60.
sæti, og þar ætti því að vera tölu-
vert svigrúm til bætingar. Í öðr-
um flokknum getur borgin gert
heilmargt til að bæta ástandið, í
hinum minna.
Í fyrsta lagi er Ís-
land í 64. sæti þegar
kemur að því hve
auðvelt er að byggja
atvinnuhúsnæði. Til
að byggja vöru-
skemmu í Reykjavík
þarf, að mati Al-
þjóðabankans, að
framkvæma 17 ólík
skref, sem að jafnaði
taka 84 daga. Þetta
eru umsóknir um
byggingarleyfi, til-
kynningar, skrán-
ingar, úttektir og svo framvegis.
Til samanburðar þarf einungis 7
skref í Danmörku sem taka sam-
tals 64 daga. Flest þessara
skrefa eru hjá byggingar-
fulltrúanum í Reykjavík svo
margt mætti vinna með því að
hraða afgreiðslu og sameina um-
sóknir og úttektir hjá því emb-
ætti.
Í öðru lagi er Ísland einungis í
69. sæti í flokknum „viðskipti yf-
ir landamæri“. Þar er einfaldlega
mælt hve langan tíma það tekur
og hve dýrt það er að toll-
afgreiða vörur inn og út úr landi.
Þrátt fyrir að andstæðingar ESB
hafi margir sannfært sjálfa sig
um að íslenska tollkerfið sé fis-
létt og leiftursnöggt en hið evr-
ópska hægt og þunglamalegt er
raunin þveröfug.
Löndin í fyrstu 19. sætum, og
það tuttugasta, San Marínó á
raunar einnig aðild að tolla-
bandalaginu, þótt það standi ut-
an sambandsins sjálfs. Raunar
eru öll ESB-ríkin, já, öll, ofar en
Ísland á þessum lista. Þótt í ein-
hverjum tilfellum megi segja að
samanburðurinn sé ekki sann-
gjarn, því verið sé að mæla hraða
tollafgreiðslu sem engin er, á
innri markaði ESB, þá er það
auðvitað hluti af kostunum, ESB-
aðild útrýmir þörf á toll-
afgreiðslu frá stórum hluta við-
skiptaþjóða. En jafnvel þegar við
lítum á lönd eins og Írland eða
Bretland sem eru í ESB þá sýna
gögnin klárt að tollafgreiðsla í
þeim löndum er sneggri og ódýr-
ari en á Íslandi.
Það liggur því fyrir svart á
hvítu að það er tvennt sem helst
þarf að gera til að auðvelda at-
vinnurekstur í borginni. Það er
að a) hraða afgreiðslu mála hjá
byggingarfulltrúanum í Reykja-
vík og b) ganga í Evrópusam-
bandið.
Tvennt sem atvinnulífið
í Reykjavík þarf
Eftir Pawel
Bartoszek » Tvennt þarf til að
auðvelda atvinnu-
rekstur í borginni: a)
hraða afgreiðslu mála
hjá byggingarfulltrúan-
um í Reykjavík og b)
ganga í Evrópusam-
bandið.
Pawel Bartoszek
Höfundur skipar 2. sæti á lista
Viðreisnar í Reykjavík.
Í gær, mánudaginn
16. apríl, birtist grein í
Morgunblaðinu eftir
Ingu Sæland alþingis-
mann þar sem fullyrt
er að tilteknum leigj-
anda hjá íbúðaleigu-
félaginu Naustavör,
dótturfyrirtæki Sjó-
mannadagsráðs, hafi
verið sagt upp leigu-
samningi. Þetta er al-
rangt. Umræddur leigjandi hefur,
þegar þetta er ritað, hvorki sagt upp
leigusamningi né heldur hefur leigu-
salinn sagt samningnum upp. Hið
rétta er að leigjandinn hefur tilkynnt
óformlega að hann hyggist finna sér
annað húsnæði. Í kjölfarið höfum við
sagt viðkomandi að hann fái það ráð-
rúm sem hann þarf til að finna hús-
næði, með öðrum orðum: hann mun
ekki verða rekinn burt af heimili sínu
eins og alþingismaðurinn fullyrðir í
greininni og Mbl sló upp í vefútgáfu
um málið.
Öll viðskipti sem Naustavör stofn-
ar til eru gerð að frumkvæði þeirra
sem óska eftir að gera leigusamning
með þeim skilmálum sem samning-
arnir kveða á um og öllum eru kynnt-
ir ítarlega áður en skrifað er undir.
Allt þar til á fyrri hluta árs 2017 voru
skilmálar í leigusamningunum með
þeim hætti að leigutökum gafst kost-
ur á að leigja íbúð með því að greiða
húsaleigu sem var verðtryggð og síð-
an „húsgjald“ sem var breytilegt og
ákvarðaðist af kostnaði af veitingu
ýmissar sameiginlegrar þjónustu við
leigjendur, t.d. húsvörslu, rekstri
útivistarsvæðis, sólarhringsþjón-
ustusíma, snjómokstri og hreinsun
bílastæða, viðbragðsþjónustu örygg-
isfyrirtækja við tilkynningum frá ör-
yggiskerfum og ýmsu fleira sem
fylgir mikilli þjónustu við íbúa og
sem Naustavör er þekkt fyrir.
Örfáir leigjendur í Boðaþingi
gerðu athugasemd við þessa skil-
mála þrátt fyrir að hafa verið upp-
lýstir um þá áður en þeir undirrituðu
leigusamning. Þeir kröfðust lækk-
unar á gjaldinu sem var að mati fé-
lagsins ógerlegt nema með því að
fella niður ákveðna þjónustuþætti.
Slíkt hefði skert þjónustugæði fé-
lagsins og á það vildum við ekki fall-
ast enda alveg skýrt fyrir hvað
Naustavör stendur þegar kemur að
þjónustu við íbúa. Það kom svo á
daginn að yfirgnæfandi meirihluti
leigjenda fylgdi okkur að málum. Til
lengri tíma litið hefði krafa þessara
tilteknu leigjenda auk þess leitt til
taps á rekstri Naustavarar.
Þrátt fyrir útskýringar á þessum
sjónarmiðum Naustavarar ákváðu
sex leigutakar að stefna félaginu fyr-
ir dóm sem í meginatriðum komst að
þeirri niðurstöðu að þar sem íbúðir
Naustavarar stæðu 60 ára og eldri til
boða en ekki 67 ára og eldri nyti fé-
lagið ekki undanþágu-
ákvæðis sem heimilaði
innheimtu sérstaks hús-
gjalds. Umræddir
kostnaðarliðir ættu að
vera innifaldir í leig-
unni. Naustavör ákvað
að una dómnum og gera
þá breytingu á fyrir-
komulagi innheimtu
leigugjaldsins sem
dómurinn fjallaði um.
Það var gert með því að
bjóða öllum leigutökum
einfalda skilmálabreytingu á gild-
andi samningum þar sem húsgjaldið
var fellt niður og samsvarandi upp-
hæð færð undir leiguna með þeim
skilmálum að áfram yrði veitt sama
þjónusta og fyrir sama verð og verið
hafði. Á þetta féllust langflestir leigj-
endur – og satt að segja – lýstu
margir megnustu óánægju með þá
vegferð sem þessir tilteknu leigutak-
ar efndu til gagnvart félaginu.
Naustavör hefur að öllu leyti stað-
ið við sinn hluta leigusamninga við
íbúa og endurgreitt þeim sem kröfð-
ust endurgreiðslu í samræmi við
dóminn. Mánaðarleg greiðsla þess-
ara aðila er nú lægri en annarra íbúa
en þeir njóta engu að síður sömu
þjónustu og allir hinir. Við slíka mis-
munun getur Naustavör ekki unað.
Því var ákveðið að segja þeim samn-
ingum upp í samræmi við gagnkvæm
uppsagnarákvæði. Það eru fyrst og
fremst sanngirnisjónarmið gagnvart
leigjendum sem liggja að baki upp-
sögnunum sem um ræðir. Viðkom-
andi aðilar gerðu á sínum tíma leigu-
samning af fúsum og frjálsum vilja
sem fól í sér skýrt ákveðnar
greiðslur fyrir þjónustu. Þeir kusu
síðan sjálfir að samþykkja ekki
nauðsynlegar breytingar á skil-
málum leigusamnings svo að hægt
væri að veita áfram sama þjón-
ustustig og verið hafði og er m.a.
hornsteinn þeirrar hugmyndafræði
sem býr að baki þjónustu Nausta-
varar á húsnæðismarkaði fyrir eldra
fólk. Þrátt fyrir óánægju þessara ör-
fáu einstaklinga eru í dag yfir þrjú
hundruð manns á biðlista eftir íbúð
hjá Naustavör og það er ekki síst
vegna þeirrar þjónustu sem félagið
veitir og langflestir hafa leitað til
okkar vegna þess orðspors sem
ánægðir leigutakar hafa skilið eftir
sig.
Að endingu vil ég taka skýrt fram
að hjúkrunarheimili Hrafnistu hafa
alls enga aðkomu að þessu máli eins
og látið er að liggja í greininni og
slegið var upp á forsíðu Morgun-
blaðsins og í kjölfarið á vef Mbl.
Yfirlýsing frá
Sjómannadagsráði
Eftir Hálfdan
Henrýsson
Hálfdan Henrýsson
» Svar við grein Ingu
Sæland í Morgun-
blaðinu 16. apríl.
Höfundur er formaður
Sjómannadagsráðs.
Nú er rúmur mánuður til borgar-
stjónarkosninga, athygli vekur að í
því mikla góðæri sem nú er ríkjandi
eru fjármál borgarinnar í ólestri.
Borgarstjóri lofar við hverjar kosn-
ingar að nú skuli svo og svo margar
íbúðir byggðar en illa gengur að
efna loforðin. Skattar á borgarbúa
eru háir. Þrifnaði og almennri um-
hirðu í borgarlandinu er ábótavant
og götur víða holóttar. Ekki er þetta
falleg lýsing en ég held að hún sé
rétt. Vinstriflokkarnir hafa fengið
sín tækifæri til að stýra borginni og
nú held ég að tími sé kominn til að
aðrir fái að spreyta sig við stjórn
hennar. Borgarstjóraefni Sjálf-
stæðisflokksins er með nýjar og
frumlegar hugmyndir varðandi
borgina, þróun hennar og stjórnun.
Fylkjum okkur um lista Sjálfstæðis-
flokksins við borgarstjórnarkosn-
ingarnar í vor.
Sigurður Guðjón Haraldsson.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Borgarmál í ólestri
Reykjavík Bréfritara finnst tími til kominn að fá nýjan borgarstjóra.
a Auðveldara að þrífa penslana
aGufar ekki upp
aMá margnota sama löginn
aNotendur anda ekki að sér eiturefnum
a Bjargar hörðnuðum olíumálningarpenslum
aUNDRI brotnar hratt niður í náttúrunn
Hágæða umhverfisvæn hreinsivara
Fást í betri byggingavöruverslunum og matvöruverslunum