Morgunblaðið - 17.04.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.04.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018 skornirthinir.is LYT NS 4 SEASONS LE FLORIANS 4 SEASONS 100% vatnsheldir am sóli 22.995 ðir: 36-47 6 litir Vibr Verð: Stær OS LE FLORIA VATNSHELDIR SKÓR Væntanlega skáldsaga Einars Kára- sonar, Stormfuglar, vakti mikla at- hygli á bókakaupstefnu í Lundúnum sem haldin var í síðustu viku. Valgerður Benediktsdóttir hjá réttindastofu Forlagsins segir að upphaflega hafi staðið til að aðal- kynning á bókinni yrði í Frankfurt síðar á árinu. „Það stóð þó alltaf til að kynda undir kötlunum í London og með það í huga hófum við kynn- ingarstarfsemina strax í aðdraganda messunnar,“ segir Valgerður. Hún segir að kynningarþýðing á kafla úr bókinni hafi ekki verið tilbúin fyrr en síðasta dag messunnar en menn hafi ekki látið það stoppa sig. „Sagan er stutt og virtur útgefandi hringdi ein- faldlega af messunni í þýðanda á sín- um snærum og gaf honum klukku- tíma til að lesa handritið. Hann gerði það og gaf því fyrstu einkunn. Þær fréttir bárust hratt um svæðið. Þeg- ar fréttist að mikilsmetnir útgef- endur frá ýmsum löndum væru að bjóða í bókina ólesna tók umtalið svo mikinn kipp. Ég játa að það var ekki leiðinlegt að sitja á fundi með for- leggjara frá einu stærsta forlagi Bretlands þegar til okkar kom virtur franskur útgefandi hlaupandi og laumaði inn tilboði í bókina. Korteri síðar, á sama fundi, kom síðan annar franskur útgefandi með tilboð á blaði,“ segir Valgerður og bætir við að nú þegar sé búið að semja um út- gáfu í nokkrum löndum og fleiri lönd bætist við innan skamms. „Svona gríðarlegur áhugi á einum titli er já- kvæður í fleiri en einu tilliti. Þegar aðstæður sem þessar skapast gefst nefnilega enn betra færi á að kynna listann okkar og fjölmargir verða miklu spenntari fyrir því að sjá fleiri titla frá okkur en áður.“ Vinsæll Óútgefin bók Einars Kára- sonar hefur vakið athygli. Barist um Stormfugla Þórarinn Leifsson hlaut Rauðu hrafnsfjöðrina, verðlaun fyrir for- vitnilegustu kynlífslýsingu ársins 2017, á aðalfundi lestrarfélagsins Krumma sl. föstudag. Verðlauna- lýsingin birtist í skáldsögu Þór- arins Kaldakoli. Þetta var í tólfta sinn sem Rauða hrafnsfjöðrin er veitt, en vinningshafar fyrri ára eru Eirík- ur Örn Norðdahl (2006), Elísabet Jökulsdóttir (2007), Hermann Stef- ánsson (2008), Steinar Bragi (2009), Þórunn Erlu-Valdimars- dóttir og Magnús Þór Jónsson, Megas, (2010), Sigríður Jónsdóttir (2011), Auður Ava Ólafsdóttir (2012), Sjón (2013), Soffía Bjarna- dóttir (2014), Bergsveinn Birgis- son (2015) og Sigurbjörg Þrast- ardóttir (2016). Verðlaunalýsings Þórarins er svohljóðandi: „Þá sá hann tvo hvíta belgi sem hann hélt fyrst að væru litlir feitir englar úr Rubens-málverki, en þegar betur var að gáð reyndust þetta vera rasskinnar konu, óvenju stórar því þær flöttust út á glerinu eins og risastórar hvítar pönnukökur. Við rasskinnarnar loddu eistu sem hreyfðust nær og fjær eins og pendúlar fastir við loðna fótleggi, hálfklædda í jakka- fatabuxur og karlmannsskó en þrengdu sér núna á milli snjó- hvítra læra og leggja í leður- stígvélum.“ Ljósmynd/Sölvi Ólafsson Viðurkenning Pétur Blöndal, forseti Lestrarfélagins Krumma, afhendir Þórarni Leifssyni Rauðu hrafnsfjöðrina fyrir kynlífslýsingu ársins 2017 í íslenskum bókmenntum. Þórarinn Leifsson átti forvitnilegustu kynlífslýsingu ársins 2017 Stundum langar mann síðurað deila með sér hnossgæt-inu, en það verður ekkivikist undan því að draga fram í dagsljósið einn áhugaverð- asta tónlistarhóp landsins, systra- bandið Umbra. Þær vinna að eigin sögn oftast upp úr reynsluheimi kvenna, daðra við myrkrið, dul- úðina og dekkri fleti úr tilveru mannsins með lög og lagboða sem þær útsetja eða spinna saman við eigin hljóðheim. Það er ekki með öllu hættulaus leiðangur, en hóp- urinn hefur einstakt lag á að velja réttan vettvang undir hvern við- burð – það skiptir nefnilega máli hvar verkin eru dregin fram í dags- ljósið. Upptökur plötunnar fóru t.a.m. fram í öldnu upptökustúdiói danska ríkisútvarpsins fyrir tveim- ur árum sem andar af bæði sögu og tónum. Umbrur komu fram með Blóðhófni á Listahátíð í júní 2016, og síðustu ár hafa þær boðið upp á eftirminnilega aðventutónleika í heilögum en sveittum hljómi Laug- arneskirkju á myrkustu stund árs- ins. Útgáfutónleikarnir nú fóru fram í Listasafni Íslands í aðalbyggingu safnsins sem eins og kunnugt er var reist sem íshús, en kuldi og vos- búð eru á meðal þeirra vídda sem hópurinn leitar í og kannar. Svona vinna Umbrur. Það var bæði viðeigandi og áhrifarík stund strax í upphafi tón- leikanna er sýnt var nýtt tónlistar- myndband innan um önnur lista- verk safnsins (með svokallaðri claymotion tækni) við víxlsöng abbadísarinnar Hildegard von Bin- gen, O pastor animarum frá 12. öld. Ljóst er að áreynsluleysi, jafn- vægi, vinátta og traust ríkir meðal meðlima bandsins. Hljómbreið alt- rödd Lilju Daggar sem og óhvikult fas gefur Umbru sterk sérkenni. Annað kennimerki er hljófæra- leikur Arngerðar Maríu sem spilar á lítið og fornt, að sögn fágætt, ferðaorgel með angurværum hljómi sem og keltneska hörpu. Varfærin en sterk túlkun á þjóð- laginu Móðir mín í kví kví var eft- irminnileg. Mörður týndi tönnum og Veröld fláa sýnir sig (fulltrúi ís- lenska þunglyndisins), einnig úr ís- lenska þjóðlagaarfinum, varð að ágengum en smitandi dansi með hóflegu biti. Öll nálgun á efniviðinn er einföld; farið er hljóðlega að eins mótsagnarkennt og það kann að hljóma, líkt og í Con que la lavare og O death, rock me asleep, bæði frá 16. öld. Þjóðlagaskotin sveifla í Los set goytxs úr Llibre Vermell de Mont- serrat – Rauðu bókinni – frá 14. öld hljómaði einnig, en í fyrrahaust flutti Umbra allan söngvabálkinn sem ætlaður var pílagrímum til dægrastyttingar meðan á dvöl þeirra stóð í Montserrat-klaustrinu. Norskt þjóðlag, Siri, var flutt við uppklapp. Nú er bara að bíða og vonast eftir næsta projekti þessara mjög svo lífsfrjóu tónlistarmanna sem skipa Umbru. Kvartett [H]ópurinn hefur einstakt lag á að velja réttan vettvang undir hvern viðburð – það skiptir nefnilega máli hvar verkin eru dregin fram í dagsljósið, segir meðal annars í gagnrýni um útgáfutónleika Umbru sem hér sést. Listasafn Íslands Umbra – útgáfutónleikarbbbbm O pastor animarum (antiphon) – Hilde- gard von Bingen, 12. öld, við nýtt tón- listarmyndband eftir Guðbjörgu Hlín Guðmundsdóttur. Veröld fláa sýnir sig – íslenskt þjóðlag. Miri it is while sumer ilast – enskt lag, líklega frá Cambridge, 13. öld. Móðir mín í kví kví – íslenskt þjóðlag. Mörður týndi tönnum – ís- lenskt þjóðlag. Húmar að mitt hinsta kvöld – íslenskt þjóðlag.  nýtt lag eftir Arngerði Maríu Árnadóttur. O death, rock me asleep – Anne Boleyn, 16. öld. Con que la lavare – texti: óþekktur, tónlist: Juan Vasquez, 16. öld. Imperayritz de la ciutat joyosa – úr Llibre Vermell de Montserrat, 14. öld Los set goytxs – úr Llibre Vermell de Montserrat, 14. öld. Ondas do mar – cantiga de amigo, 13. öld. Polorum Reg- ina – úr Llibre Vermell de Montserrat, 14. öld. Rosa das rosas – úr Cantigas de Santa Maria, 13. öld. UMBRA: Alexandra Kjeld: kontrabassi og söngur, Arngerður María Árnadóttir: orgel, keltnesk harpa og söngur, Guð- björg Hlín Guðmundsdóttir: fiðla og söngur, Lilja Dögg Gunnarsdóttir: söng- ur og flauta, Gestaleikari á tónleik- unum: Kristófer Rodriguez Svönuson, slagverk. Fimmtudagur 12. apríl kl. 20. INGVAR BATES TÓNLIST Í dagsljósið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.