Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 25

Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 25
ferð ástfangin upp fyrir haus. Kórfélagar brostu ögn viðkvæmir yfir sínum kæru vinum sem höfðu fundið ástina í kórnum og það var svo sannarlega ætlunin að eiga þátt í öllum þeirra stóru stundum sem framtíðin átti að bera í skauti sér. Það var líka ætlunin að læra og syngja með Ragnari vísurnar úr Flóanum. Enn er minnt á að njóta hverrar stundar líkt hún væri sú síðasta. Brokkkórinn sendir fjölskyldu og vinum Ragnars innilegar sam- úðarkveðjur. Elsku Sigurlaug okkar, kórinn ykkar Ragnars mun reyna að styðja þig á alla lund í þessari miklu og djúpstæðu sorg. Söngurinn mun áfram vera okkar gleði og huggun í lífsins þrautum. Ragnari þökkum við samfylgdina og blessuð sé minn- ing hans, minning um góðan dreng og kæran vin lifir með kór- félögum um ókomna tíð. Fyrir hönd Brokkkórsins, Áslaug Ásmundsdóttir.  Fleiri minningargreinar um Ragnar Lýðsson bíða birt- ingar og munu birtast í blað- inu næstu daga. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018 Raðauglýsingar Raðauglýsingar Fundir/Mannfagnaðir ses.xd.is Samtök eldri sjálfstæðismanna, SES Hádegisfundur SES Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs, verður gestur á hádegisfundi SES á morgun, miðvikudaginn 18. apríl, kl. 12:00 í Valhöll Háaleitisbraut 1. Húsið opnar kl. 11:30. Boðið verður upp á súpu gegn vægu gjaldi, 900 krónur Allir velkomnir. Stjórnin. Nauðungarsala Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur.is. Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri, sem hér segir: Klapparhraun 5, Rangárþing ytra, fnr. 234-2304 , þingl. eig. EV-17 ehf., gerðarbeiðandi Frístundasvæði Heklubyggðar, mánudaginn 23. apríl nk. kl. 11:15. Sýslumaðurinn á Suðurlandi 16 apríl 2018 Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9 og jóga með Hildi kl. 9:30 í hreyfisalnum, er það stólajóga og teknar þar góðar teygjur. Göngu- hópurinn fer af stað kl. 10:15 og vatnsleikfimi í Vesturbæjarlaug kl. 10:50. Tálgað í tré hópurinn mætir kl. 13 í hús og postulínsmálun er kl. 13 í hreyfisalnum. Línudansinn er hjá okkur kl. 13:30 í matsalnum og kostar tíminn 500 kr. Hlökkum til að sjá ykkur. Árskógar Leikfimi með Maríu kl. 9. Smíðastofan er lokuð. Bónus- bíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.30. Handavinna með leib. kl. 12.30- 16. Kóræfing, Kátir karlar kl. 13. MS-fræðslu- og félagsstarf kl. 14-16. Opið fyrir innipútt. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Áskirkja Spilum kl. 20 í neðra safnaðarheimili kirkjunnar. Allir vel- komnir. Safnaðarfélag Áskirkju Boðinn Boccia kl. 10.30. Bridge og Kanasta kl. 13.00. Bólstaðarhlíð 43 Yngingaryoga hjá Lilju Steingríms kl. 09:00-09:50, allir velkomnir. Opin handverksstofa 9-16. Morgunkaffi 10-10:30. Leshópur Hjördísar kl. 10:30. Eva hjúkrunarfræðingur kl. 11:00. Boccia 10:40-11:20. Bónusrútan kemur 14:40. Leshópur kl. 13:00. Opið kaffi- hús 14:30-15:15. Fella-og Hólakirkja Kyrrðarstund kl. 12:00. Eftir stundina er boðið upp á súpu og brauð á vægu verði. Félagstarfið byrjar kl. 13:00. Línudans og góð skemmtun. Spilum, spjöllum og eigum góða sam- veru. Kaffi og meðlæti kl. 15:00 að hætti Kristínar og Jóhönnu. Verið hjartanlega velkomin. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Postulínsmálun kl. 09.00. Opin handverkstofa kl.13.00. Landið skoðað með nútímatækni kl.13.50. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Bútasaumshópur hittist 9-12, glerlist 9-13, hópþjálfun/stólaleikfimi 10:30-11:15, litaklúbbur í handavinnu- stofu 13-14:30, frjáls spilamennska 13-16:30, félagsvist í sal 13-15:30, kaffiveitingar 14:30-15.30. Verið öll velkomin til okkar á Vitatorg, síminn hjá okkur er 411-9450 Furugerði 1 Vinnustofa opin frá 10-16. Framhaldslestur fer fram kl. 10:00 . Sitjandi leikfimi og öndunaræfingar kl. 11. Klukkan 13 er farið í göngu. Boccia í innri sal kl. 14:00. Garðabæ Jónshúsi/ félags - og íþróttastarf: 512-1501. Vatnsleikfimi Sjál. kl. 8:20/15:15. Qi Gong Sjál. kl. 9:00. Gönguhópur fer frá Jóns- húsi kl. 10:00. Stólajóga í Jónshúsi kl. 11:00. Boccia Sjál. kl. 11:40. Karlaleikfimi Sjál. kl. 13:00. Trésmíði kl. 9:00/13:00 í Kirkjhvoli. Bónus- rúta fer frá Jónshúsi kl. 14:45. Línudans í Kirkjuhvoli kl. 13:30/14:30. Gerðuberg Opin handavinnustofa kl.08:30-16:00. Keramik málun kl.09:00-12:00. Glervinnustofa m/leiðb. kl 13:00-16:00. Leikfimi Maríu kl. 10:00-10:45. Leikfimi gönguhóps kl. 10:00-10:30. Gönguhópur um hverfið kl. 10:30. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9.00 handavinna, kl. 10.00 stólaleikfimi, kl. 13.00 handa- vinna, kl. 13.00 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 13.30 Alkort, kl. 14.00 hreyfi- og jafnvægisæfingar, kl. 16.00 dans. Grafarvogskirkja Opið hús fyrir eldri borgara í kirkjunni kl. 13:00- 15:30. Í upphafi er söngstund í kirkjunni með Hilmari Erni. Einnig flytur Sigurjón Árni tónlist ásamt félögum. Þá er í boði handavinna, spil og spjall fyrir þau sem vilja. Samverunni lýkur með kaffiveiting- um kl. 15:00. Grensáskirkja Kyrrðarstund kl. 12 Gullsmári Myndlist kl 9.00. Boccia kl 9.30. Ganga kl 10.00. Málm/ Sifursmíði/Kanasta kl. 13.00. Hvassaleiti 56 - 58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, jóga kl. 9 hjá Ragn- heiði, morgunleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30. Spilað bridge kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnar kl. 8.50, við hringborðið kl.8.50, myndlistanámskeið hjá Margréti Zophoníasdóttir kl.9, Thai Chi kl.9, leikfimin með Guðnýju kl.10, leiðbeiningar á tölvu kl. 13.10, Kríur myndlistahópur kl.13, bónusbíll kl.14.55, brids kl.13, bókabíll kl.14.30, síðdegiskaffi kl. 14.30 allir velkomnir óháð aldri nánari í síma 411- 2790. U3A kl.17.15. Korpúlfar Sundleikfimi 7:30 og 14:10 í Grafarvogssundlaug í dag. Listmálun með Marteini kl. 9 í Borgum. Boccia í Borgum kl. 10 og 16:00. Helgistund í Borgum kl. 10:30 í dag. Heimanámskennsla kl. 16:30 í dag í Borgum. Norðubrún 1 Morgunkaffi kl.8.30,trésmiðja 9-12, listasmiðja kl.9-16, morgunleikfimi kl.9.45, upplestur kl.11,opin listasmiðja m.leiðbeinanda kl.13-16, Samverustund með djákna kl.14, boccia,spil og leikir kl.15.30. Uppl í s 4112760 Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.15 og kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-14.55. Bónusbíll kl. 14.40 og bókabíll kl.13.15. Allir eru hjartanlega velkomnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586. Seltjarnarnes Vatnsleikfimi sundlauginni kl. 07.15. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Pútt Risinu Eiðistorgi kl. 10.30. Kvennaleikfimi Hreyfilandi kl. 12.00. Bridge Eiðismýri 30 kl. 13.30. Karlakaffi í safnað- arheimili kirkjunnar kl. 14.00. Í kvöld kl. 19.30 er félagsvist Vörðunnar í salnum á Skólabraut. Allir velkomnir. Glæsilegir vinningar og kaffi- veitingar. Stangarhylur 4 Skák kl. 13.00, allir velkomnir. Vesturgata 7 Glerskurður ( Tifffanýs) kl:13:00-16:00. Vigdís Hansen. Félagslíf  EDDA 6018041719 I Lf. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu Íbúðir á Algarve svæðinu í Portúgal Bæði íbúðir í fjölbýli og einbýlishús af ýmsum gerðum. Sjá nánar á: www.abbaleiga.net/439232483 Fyrirspurnir sendist á: abbaleiga@gmail.com Bókhald NP Þjónusta Tek að mér bókanir, reikningsfærslur o.f.l. Upplýsingar í síma 649-6134. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 660 0230 og 561 1122. Ýmislegt Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Hjólbarðar Rýmingarsala á vörubíladekkjum 13 R 22.5 kr. 23.400 + vsk 1200 R 20 kr. 19900 + vsk 275/70 R 22.5 kr. 28900 + vsk 385/65 R 22.5 kr. 39.000 + vsk 1000 – 20 kr. 23387 + vsk og fleiri stærðir. Kaldasel@islandia.is Kaldasel ehf s. 5444333 og 8201070 Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og á mbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? amma myndi segja eða gera í þessu eða hinu máli og ég hef ætíð reynt að temja mér hennar helsta lífsmottó, að launa illt með góðu. Það hefur heppnast misvel verður að segja, en betur má ef duga skal. Ég er ekki eins flink í því og amma en ég legg mig fram um að breyta á þann hátt sem ég ímynda mér að hún hefði gert. Þátttaka í félagsmálum fylgir greinilega nafninu, elsku amma. Ég hef oft bölvað þeirri kvöð sem það er að vera þannig innréttuð að verða að láta sig málin varða og eiga erfitt með að neita að taka enn eina fundargerðarbók- ina eða bókhaldið að sér. Einu sinni ræddum við þetta og kom- umst að þeirri niðurstöðu að okk- ur yrði líklega launað á himnum. Mín upplifun af þátttöku ömmu í félagsmálum var ávallt að taka öllu með yfirvegun og fara fram sem maður sjálfur. Öll sú ást, umhyggja og þolinmæði sem ein manneskja gat sýnt svo mörgum og öllu samfélaginu verður varla leikin eftir. Umhyggjan var ekki einungis til okkar mannanna, því skepnur fengu ávallt gott atlæti í ömmu umsjá og það að græða landið var henni hugfólgið. Létt- lyndi reyndi hún ávallt að temja sér og alltaf var stutt í kímnina. Margs er að minnast en þó koma gæðastundir eins og útreið- artúrar og allar heiðarferðirnar sem ég fékk að fara með þér í efst í hugann. Það var alltaf ynd- islegt að koma í Gil, þó að það hafi bara verið eitthvert hvers- dagslegt stúss. Svo var nú ávallt gaman að fá að fara á kór- skemmtanir með ykkur afa. Það sem ég myndi gera fyrir eina heiðarferð eða þó að það væri ekki nema að slá á þráðinn til þín, elsku amma. Fátækleg orð og fáeinar setningar munu aldrei ná að lýsa því kærleiksríka sam- bandi sem við áttum, elsku amma, svo mikið hef ég alltaf verið þér háð. Það veit ég fyrir víst að móttökurnar hafa verið góðar hinum megin þó að ég sé sár og reið að hafa ekki fengið að hafa þig lengur hjá okkur. Hvers- dagsleikinn eins og ég þekkti hann virðist núna vera svo óra fjarri. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt, sem dropi breytir veig heillar skálar. Þel getur snúist við atorð eitt. Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Svo oft leyndist strengur í brjósti, sem brast við biturt andsvar, gefið án saka. Hve iðrar margt líf eitt augnakast, sem aldrei verður tekið til baka. (Einar Benediktsson) Þín, Erla Rún.  Fleiri minningargreinar um Erlu Hafsteinsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.