Morgunblaðið - 17.04.2018, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018
www.VBL.is REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
DRIFSKÖFT OG DRIFSKAFTAEFNI
VANDAÐIR KROSSAR
ERU ÖRYGGISMÁLIN Í LAGI HJÁ ÞÉR?
GOTT ÚRVAL AF ÖRYGGISHLÍFUM - HAGSTÆTT VERÐ
HÆGT ER AÐ KAUPA STAKA HLUTI Í
DRIFSKAFTAHLÍFAR OG KÚPLINGAR
Ferðasagan er smám saman að taka á sig mynd en það er frámörgu að segja,“ segir Gerður Steinþórsdóttir, sem er 74 ára ídag. „Ég fór umhverfis jörðina árið 2014 og ferðaðist mest á
suðurhveli jarðar um lönd sem ég hafði ekki komið til áður, eins og
Ástralíu, Nýja-Sjáland og Nepal, og kynntist mörgu áhugaverðu í
sögu og menningu þessara þjóða sem mig langar að segja frá í bók.“
Ferðalög um fjöll, firnindi og framandi slóðir eru rauði þráðurinn í
lífi Gerðar, sem 11 ára hafði farið um stærstan hluta hálendisins með
móður sinni, Auði Jónasdóttur. Þar með var vakinn áhugi sem hefur
lifað. „Ferðir og útivera í náttúrunni veita kraft og endurnæringu.
Jöklaferðir skipa sérstakan sess hjá mér. Auðvitað eldist ég eins og
aðrir en ég er við góða heilsu,“ segir Gerður, sem á dögunum fór í
helgarferð á skíðum með hópi innan vébanda Ferðafélags Íslands sem
er skráður í Landvættina. Þetta eru fjórar þrautir, Fossavatnsgangan
50 km, Bláalónsþrautin er 60 km á fjallahjóli, Urriðavatnssundið 2 km
og loks Jökulsárshlaupið, 33 km.
„Ég hef skráð mig til leiks og svo er að sjá hvað verður. Þetta er
spennandi,“ segir Gerður, sem er cand.mag. í íslenskum fræðum og
starfaði lengi sem kennari. Þá hefur hún mikið sinnt félagsmálum og
var lengi í borgarmálunum sem fulltrúi Framsóknarflokksins. Hún er
gift Gunnari Stefánssyni bókmenntafræðingi og útvarpsmanni og
eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. sbs@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flakk Ferðir og útivera veita endurnæringu, segir Gerður.
Um fjöll, firnindi
og framandi slóðir
Gerður Steinþórsdóttir er 74 ára í dag
D
aníel Óskarsson fædd-
ist í Fredericiu í Dan-
mörku 17.4. 1948 er
foreldrar hans veittu
forstöðu samkomu-
starfi Hjálpræðishersins. Fjöl-
skyldan flutti til Akureyrar 1949 og
bjó þar í Laxamýri, þar sem Hjálp-
ræðisherinn rak gistiheimili og sam-
komustarf: „Þaðan á ég góðar minn-
ingar en þar bjuggu móðursystkini
mín og afi og amma sem öll voru virk
í starfi Hjálpræðishersins. Fjöl-
skyldan flutti svo til Reykjavíkur
1952 og bjó í Herkastalanum, þar
sem foreldrar mínir veittu forstöðu
safnaðarstarfi Hjálpræðishersins
þar.“
Daníel lærði ungur á trompet hjá
föður sínum og byrjaði að spila í
lúðrasveit Hjálpræðishersins er
hann var sex ára. Þá lék hann á sam-
komum Hjálpræðishersins, og þar
fékk hann kall sitt frá Drottni að fela
honum líf sitt. Daníel kraup við
bænabekk Hjálpræðishersins og
veitti kallinu viðtöku.
Eftir þriggja ára starf í Reykjavík
fengu foreldrar Daníels skipun til
Noregs. Fyrstu tvö árin bjó fjöl-
skyldan í Tönsberg, og þar hóf Daní-
el skólagöngu. Þau voru síðan tvö ár
í Gjövik við Mjösa en fluttu aftur
heim er Daníel var 11 ára. Hann var í
Miðbæjarskólanum, lauk landsprófi
Daníel Óskarsson hjálpræðishersforingi – 70 ára
Börn Daníels og Önnu Talið frá vinstri: Daníel Óskar, Inger Jóhanna og loks Ester Daníelsdóttir van Gooswilligen.
Boðar fagnaðarerindið
Hjónin Daníel og Anna hafa ætíð stuðst mikið við söng og hljóðfæraleik í
störfum sínum fyrir Hjálpræðisherinn. Hér eru þau í Skagen í Danmörku.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.