Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 33

Morgunblaðið - 17.04.2018, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. APRÍL 2018 ICQC 2018-20 Gítarhetjan Mark Knopfler, for- sprakki bresku hljómsveitarinnar Dire Straits sem naut gríðarlegra vinsælda seint á áttunda áratugn- um og snemma á þeim níunda, lét ekki sjá sig þegar hljómsveitin var tekin í Frægðarhöll rokksins í Cleveland-borg á laugardaginn var. Bassaleikari hljómsveitarinnar, John Illsley, tók við viðurkenning- unni og sagði, þegar blaðamenn gengu á hann, að ástæður væru „persónulegar“ hjá Knopfler. Og í samtali við Billboard kvaðst hann hafa reynt nokkrum sinnum að telja gítarleikaranum hughvarf, án árangurs. Í þakkarávarpi bar Ills- ley lofsorð á Mark Knopfler fyrir að hafa samið tónlistina sem gerði hljómsveitina svo vinsæla, en meðal kunnustu laganna má nefna „Sult- ans of Swing“ og „Money For Nothing“. Vegna fjarveru Knopfl- ers tróð Dire Straits ekki upp á inntökuhátíðinni, sem var nú haldin í 33. sinn. Hljómsveitin Bon Jovi og söng- konan Nina Simone voru einnig tekin í Frægðarhöllina á laugardag og í upphafi dagskrárinnar var Toms Petty minnst, en hann lést í október síðastliðnum. Þá lék Bon Jovi fyrir gesti og tróðu fyrrver- andi meðlimirnir Richie Sambora og Alec John Such þar upp með þeim núverandi og léku lögin „Liv- in’ on a Prayer“, „You Give Love a Bad Name“ og „It’s My Life“. Knopfler lét ekki sjá sig í Frægðarhöll Wikipedia/Helge Øverås Vinsælir Hljómsveitin Dire Straits á tónleikum í Noregi árið 1985. Tékkneski kvikmyndaleikstjórinn Milos Forman lést í Bandaríkjunum á föstudaginn, 13. apríl, 86 ára að aldri. Forman var meðal þekktustu og virtustu kvikmyndaleikstjóra sög- unnar og hlaut tugi verðlauna og til- nefninga fyrir kvikmyndir sínar á ferlinum, m.a. tvenn Óskarsverðlaun fyrir leikstjórn One Flew Over the Cuckoo’s Nest, eða Gaukshreiðursins árið 1976 og Amadeus árið 1985. Af öðrum þekktum verkum hans má nefna Hair eða Hárið, Ragtime, Black Peter, The Fireman’s Ball, The People vs. Larry Flynt og Man on the Moon. Margar kvikmynda Formans fjöll- uðu með einum eða öðrum hætti um baráttu fyrir frelsi, uppreisn hug- rakkra manna gegn kúgun og vald- níðslu og er Gaukshreiðrið væntan- lega þekktasta og besta dæmið þar um. Holdgervingur kommúnistastjórna Forman var heiðursgestur Alþjóð- legrar kvikmyndahátíðar í Reykja- vík, RIFF, árið 2009 og hlaut verð- laun fyrir framlag sitt til kvikmynda- listarinnar úr hendi forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, á Bessa- stöðum. Að lokinni viðhafnarsýningu á Gaukshreiðrinu í Háskólabíói svaraði Forman spurningum bíógesta og lék á als oddi. „Ég veit ekki enn hvort hann er í rauninni klikkaður,“ sagði hann og hló innilega þegar talið barst að leikaranum Jack Nicholson, sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir frammi- stöðu sína í myndinni, en í henni fer hann með hlutverk Randle P. McMurphy, lífglaðs og villts glaum- gosa sem er lagður inn á geðsjúkra- hús eftir að hafa komist í kast við lög- in og afplánað stuttan dóm. Þar er hann kúgaður af yfirhjúkrunar- konunni Ratchett, líkt og aðrir vist- menn en Ratchett er táknmynd valdsins, kúgunarstjórnar sem fylgist með þegnum sínum og ber þá til hlýðni. Forman sagði gestum í Háskóla- bíói að Ratchett væri holdgervingur kommúnistastjórna en hann ólst upp og bjó í kommúnistaríki, Tékkó- slóvakíu, allt til ársins 1968. Einn af liðsmönnum tékknesku nýbylgjunnar Forman fæddist í bænum Caslav árið 1932 og voru bæði faðir hans og móðir tekin af lífi í útrýmingarbúðum nasista. Hann hóf feril sinn sem leik- stjóri í byrjun sjöunda áratugarins og tilheyrði tékknesku nýbylgjunni, hópi kvikmyndagerðarmanna sem veittu kommúnistastjórn landsins and- spyrnu með verkum sínum. Hann flutti til Bandaríkjanna árið 1968 eftir að herir Varsjárbandalagsins, undir forystu Sovétríkjanna, gerðu innrás í Tékkóslóvakíu og bundu enda á „Vor- ið í Prag“, stutt tímabil aukins frjáls- ræðis í landinu. Fyrsta kvikmynd Forman í Banda- ríkjunum var Taking Off sem kom út árið 1971 en fjórum árum síðar kom meistaraverkið Gaukshreiðrið sem gerði Forman heimsfrægan. Fjöldi þekktra einstaklinga í kvik- myndageiranum hefur minnst For- man frá því að fréttist af andláti hans og þ.á.m. fyrrum stjórnandi Cannes- kvikmyndahátíðarinnar, Gilles Jacob. Hann segir Forman hafa verið borð- bera sannleikans sem hafi auk þess haft dálæti á bjór, tennis og – auðvit- að – Cannes. helgisnaer@mbl.is Sígild Jack Nicholson í hlutverki Randle P. McMurphy í Gaukshreiðrinu, kvikmynd Milos Forman sem þykir ein þeirra bestu í kvikmyndasögunni og hlaut fimm Óskarsverðlaun og sex Golden Globe og Bafta-verðlaun. Morgunblaðið/Kristinn Tveir meistarar Thor Vilhjálmsson rithöfundur og Milos Forman ræddu málin á Bessastöðum þegar Forman tók við heiðursverðlaunum Alþjóð- legrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF, árið 2009. Boðberi sannleikans  Einn virtasti kvikmyndaleikstjóri sögunnar, Milos Forman, er allur  Hlaut Óskarsverðlaun í tvígang auk tuga annarra verðlauna og viðurkenninga Í annað sinn Forman þakkar fyrir sig eftir að hafa tekið við öðrum Óskarsverðlaunum sínum, fyrir Amadeus árið 1985. Þess má geta að Amadeus verður sýnd á bíótónleik- um Sinfóníuhljósmveitar Íslands í Eldborg 26. og 27. apríl. AFP Austurríski listamaðurinn Thomas Neuwirth sem sigraði í Eurovision í Kaupmannahöfn vorið 2014 undir listamannsnafninu Conchita Wurst upplýsti um helgina á Insta- gram-síðu sinni að hann væri og hefði í allmörg ár verið HIV- jákvæður. Í pistlinum upplýsir hann að fyrrverandi kærasti hans hafi hótað honum því að upplýsa um leyndarmálið og því hafi hann sjálfur valið að greina frá heilsufari sínu þó hann telji að upplýsingar eigi í reynd ekkert erindi við almenning. „Til aðdáenda minna: upplýsing- arnar um að ég sé HIV-smitaður geta verið nýjar fyrir ykkur, en heilsufarsástand mitt er það ekki. Mér líður vel og ég er sterkari, ég finn fyrir meiri hvatningu og er frjálsari en áður. Takk fyrir stuðn- inginn,“ skrifar Thomas Neuwirth á Instagram-síðu Conchita Wurst. Í fyrra upplýsti Neuwirth að hann hygðist skapa nýja persónu sem taka ætti við af dragdrottningunni Conchita Wurst. AFP Drottning Thomas Neuwirth í hlut- verki sínu sem Conchita Wurst. Verið HIV- jákvæður í fjölmörg ár

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.