Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.04.2018, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.4. 2018
Á sama tíma og Lundúnir og
England eiga á brattann að
sækja hefur ofbeldisglæpum
fækkað um nær helming á tíu
árum í Skotlandi og glæpir,
þar sem vopn koma við sögu
um tvo þriðju. Munar þar
mest um Glasgow.
Sadiq Khan er í hópi þeirra
sem hvetja til þess að horft
sé til þessa árangurs. „Það
er alveg ljóst að hnífa-
glæpir verða ekki
leystir af lögreglu og
dómstólum einum
og sér. Lýðheilsa
skiptir ekki
minna máli. Það
höfum við lært af
Skotum og öðr-
um.“
Segja má að tónninn hafi veriðgefinn strax á nýársnótt þeg-ar fjórir voru stungnir til
bana í Lundúnum. Ástandið hefur
ekki verið verra í borginni í sex ár
og mælist aukningin 23% frá fyrra
ári. Til samanburðar má nefna að 21
var ráðinn bani í New York í mars-
mánuði, einum minna en í Lund-
únum, sem er fáheyrt. Til frekari
samanburðar þá hafa sjö manns lát-
ist af skotsárum í Lundúnum það
sem af er árinu. Eggvopn eru því
mun stærra vandamál en skotvopn.
Fórnarlömbin eru á öllum aldri,
mest ungt fólk, niður í sautján ára,
en sá elsti 55 ára. Karlar eru í mikl-
um meirihluta en nokkrar konur
liggja þó í valnum líka. Árásirnar
hafa átt sér stað vítt og breitt um
borgina. Ýmsir hafa verið til þess að
fordæma þetta „tilgangslausa of-
beldi“ en fátt virðist vera um svör.
Þjóðlægt vandamál
Tölfræðin, sem getið er hér að fram-
an, veldur Sadiq Khan borgarstjóra
áhyggjum en hann vill samt ekki að
umræðan snúist um Lundúnaborg
eina og sér. Vandamálið sé þjóð-
lægt. „Við þurfum lausnir á lands-
vísu. Mestu ofbeldisglæpirnir, þar á
meðal hnífaárásir, hafa verið að
aukast vítt og breitt um England og
Wales. Þessi tölfræði bergmálar rík-
isstjórn sem hefur gert lítið til að
sporna við glæpum undanfarin átta
ár, að ekki sé talað um að finna út úr
því hvað veldur þeim. Ríkisstjórnin
verður þegar í stað að auka fjár-
framlag sitt til lögreglunnar, auk
þess að styrkja samfélagsþjónustu
sem getur mögulega komið í veg
fyrir að fólk leiðist út í glæpi. Þá er
ég að tala um þjónustu við ung-
menni, menntun, skilorð og geðheil-
brigðisþjónustu,“ sagði Khan við
fjölmiðla í vikunni.
Þörf á inngripi
Karyn McCluskey, fyrrverandi yf-
irmaður stofnunar sem hefur það
hlutverk að greina vandann, segir
mikilvægast að bera kennsl á hugs-
anlega gerendur. „Við þurfum að
grípa inn í vegna þess að margir eru
reiðir og í hefndarhug af einhverjum
ástæðum. Oft og tíðum er þetta fólk
sem þarf að komast í áfengis- eða
fíkniefnameðferð eða þarf á nýjum
búsetuúrræðum að halda. Málið
snýst því um að koma þessu fólki í
samband við þar til bæra aðila og
sjá til þess að sambandið rofni
ekki,“ sagði hún við BBC.
Böndin beinast gjarnan að gengj-
um í þessu sambandi og ekki er
langt síðan Harry Bretaprins kallaði
eftir aðgerðum til að losa ungmenni
úr fjötrum gengja eftir að hafa rætt
við fyrrverandi gengismeðlim með-
an hann var gestastjórnandi á Radio
4. Sá hélt því fram að mörg ung-
menni sem búa við sult og seyru í
hinum „óæðri“ hverfum borgarinnar
leituðu gjarnan í gengin til að
tryggja sér virðingu samfélagsins.
Brýnt að taka
hnífa úr umferð
Af því tilefni svaraði Cressida Dick,
lögreglustjóri Lundúnaborgar,
því til að ekkert væri ofar á verk-
efnalista lögreglunnar en að
draga úr ofbeldi á götum borg-
arinnar. Mjög brýnt væri að
taka hnífa úr umferð og lög-
reglu hefði orðið nokkuð
ágengt í þeim efnum. Þau
orð féllu raunar áður en
faraldurinn braust út í byrj-
un þessa árs.
Margir hinna látnu eru dökk-
ir á hörund og lögreglu hefur
verið legið á hálsi fyrir að gera
minna í málunum af þeim sökum.
Martin Hewitt, yfirmaður hjá Lund-
únalögreglunni, viðurkennir í sam-
tali við breska ríkisútvarpið, BBC,
að það sé hluti af vandamálinu, að
fórnarlömbin komi gjarnan úr
„ákveðnum“ samfélögum, til dæmis
samfélagi þeldökkra. Hér sé þó um
samfélagslegt vandamál að ræða en
ekki einangrað vandamál lögreglu.
„Þessi mál vekja ekki alltaf eins
mikla reiði og þau verðskulda og
brýna okkur ekki til að gera allt sem
í okkar valdi stendur til að koma í
veg fyrir að svona lagað eigi sér
stað.“
Liggur ekki á liði sínu
Hafandi sagt það vísar Hewitt því
alfarið á bug að lögregla liggi á liði
sínu. „Við leggjum gríðarlega mikið
á okkur til að stemma stigu við of-
beldinu og hefur orðið nokkuð
ágengt. En eins og ég segi þá þurf-
um við öll að líta í eigin barm og
spyrja okkur: Hvernig getum við
komið í veg fyrir þetta?“
Hnífstungu-
faraldur í
Lundúnum
Íbúar Lundúna eru slegnir yfir hnífstungufaraldr-
inum sem hefur geisað í borginni að undanförnu
en 35 manns hafa látist af stungusárum frá ára-
mótum, þar af 22 í marsmánuði einum og sér.
Harry
Bretaprins.
Má læra af
Skotum?
AFP
Fjölskylda og vinir minnast Israels Ogunsola, sem stunginn var til bana í Hackney-hverfinu í Lundúnum í vikunni.
’
Ríkisstjórnin verður þegar í stað að auka fjárframlag sitt
til lögreglunnar, auk þess að styrkja samfélagsþjónustu
sem getur mögulega komið í veg fyrir að fólk leiðist út í glæpi.
Sadiq Khan, borgarstóri Lundúna.
ERLENT
ORRI PÁLL ORMARSSON
orri@mbl.is
BANDARÍKIN
NEW YORK Staðfest hefur verið að
jarðneskar leifar konu sem fundust
undir húsi nokkru á Long Island séu af
Louise Pietrewicz, sem hvarf sporlaust
árið 1966. Kærasti hennar á þeim tíma,
lögreglumaðurinn William P. Boken, bjó
um tíma í téðu húsi en hann lést árið
1982. Pietrewicz var 38 ára þegar hún
hvarf. Heimildarmynd um hvarfi ð mun
hafa komið lögreglu á sporið.
ÁSTRALÍA
SYDNEY Rúgbíleikmaðurinn Israel Folau hleypti öllu í
bál og brand í vikunni þegar hann gaf í skyn á Instagram að
samkynhneigt fólk færi til helvítis að þessari jarðvist lokinni.
Áður hefur hann lýst andstöðu sinni við hjónabönd fólks af
sama kyni. Ástralska rúgbísambandið hefur harmað ummæli
leikmannsins og deilir ekki skoðunum hans. Ekki heldur
helsti styrktaraðili deildarinnar sem kveðst vera vonsvikinn.
INDLAND
RAJASTHAN Bollywood-stjarnan Salman Khan
var fyrir helgina dæmdur í fi mm ára fangelsi fyrir að
elta uppi og drepa tvær indverskar antilópur fyrir
tuttugu árum en um er að ræða friðaða tegund
þar um slóðir. Mun hann hafa skotið þær út um
gluggann á bíl sínum. Við réttarhaldið kom fram að
Khan og fjórir
aðrir leikarar,
sem voru með
honum í för,
hefðu fl úið af
vettvangi þegar
upp um þá
komst og skilið
hræin eftir.
ÞÝSKALAND
BOCHUM Maður nokkur kom fyrir rétt
í vikunni grunaður um að hafa átt við tvær
sjálfvirkar vélar sem taka við fl öskum og
dósum. Þetta varð til þess að hann gat
skilað sömu fl öskunum og dósunum aftur
og aftur og hirt fyrir þær greiðslu. Hermt
er að gróði mannsins losi eina milljón
evra, andvirði 120 milljóna króna.