Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.04.2018, Page 27

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.04.2018, Page 27
8.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27 Húrra Reykjavík 2.990 kr. Organic Basics toppur í þægilegu sniði. Snúran 5.100 kr. Svartur Stoff kertastjaki væri flottur með löngum svörtum kertum til dæmis. GK Reykjavík 28.995 kr. Svalur köflóttur sumarjakki. Net-a-Porter.is 37.000 kr. Æðislegur toppur frá Jason Wu. Akkúrat Buxur: 19.900 kr. Skyrta: 19.900 kr. Dásamlegt sett frá Storm & Marie. Í þessari viku... Sigurborg Selma sigurborg@mbl.is Að þessu sinni má sjá hversdagslega samsetningu með sparilegu ívafi sem hentar bæði í vinnu við hvíta strigaskó og fínt við smart hæla. Hjarn 49.900 kr. Þessi vegglampi myndi passa vel á mínu heimili. Louis Vuitton Skótískan í sumar Skótískan í sumar er með fjöl- breyttara móti: Massífir strigaskór jafnt sem penir hælar og kúreka- stígvél verða áberandi hluti af skótískunni sumarið 2018. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Missoni Chanel Plastið var áberandi í sum- arlínum tískuhúsanna, bæði í skóm og fylgihlutum. Gegnsæir skór og gegnsæir pokar eiga svo sannarlega eftir að verða vinsælir með vorinu. Maison Margiela Það var eitthvað um kúrekastígvél í vetrarlínum tískuhúsanna síðasta vetur og virðist sú tíska bara vera rétt að byrja. Kú- rekastígvélin eru einstaklega heit um þessar mundir og voru stór þáttur í sumarlínunum 2018. Stígvélin passa jafn vel við buxur og létta sumarkjóla. Givenchy Adidas Louis Vuitton Strigaskór hafa verið vinsælir undanfarin ár og það virðist ekki ætla að breytast. Að þessu sinni eru skórnir þó orðnir örlítið massífari og meiri en hefur ver- ið. Strigaskórnir úr sumarlínu Louis Vuittons hafa vakið mikla athygli eftir að þeir voru kynntir í tískuvikunni og eru strax farnir að móta götutískuna í sumar. Off White Bottega Veneta Christian Dior Fendi Í sumar verða lit- ríkir sokkar við opna hælaskó mál- ið en sokkar léku stórt hlutverk í sumarlínum stærstu hönn- uðanna. Þá er um að gera að prófa sig áfram í sumar og para saman litríka skó og ennþá skraut- legri sokka. MSGM Miu Miu Svokallaðir „kitten“-hælaskór eru svolítið að taka við af himinháu pinnahælunum í sumar. Skórnir, sem bæði eru þægilegir og smart, eru ef til vill til í fataskápnum eða geymslunni þar sem skósniðið var gríðarlega vinsælt um aldamótin 2000. Balmain

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.