Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.04.2018, Blaðsíða 27
8.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27
Húrra Reykjavík
2.990 kr.
Organic Basics toppur
í þægilegu sniði.
Snúran
5.100 kr.
Svartur Stoff kertastjaki
væri flottur með löngum
svörtum kertum til dæmis.
GK Reykjavík
28.995 kr.
Svalur köflóttur sumarjakki.
Net-a-Porter.is
37.000 kr.
Æðislegur toppur frá Jason Wu.
Akkúrat
Buxur: 19.900 kr.
Skyrta: 19.900 kr.
Dásamlegt sett frá Storm
& Marie.
Í þessari viku...
Sigurborg Selma
sigurborg@mbl.is
Að þessu sinni má sjá hversdagslega
samsetningu með sparilegu ívafi sem
hentar bæði í vinnu við hvíta strigaskó
og fínt við smart hæla.
Hjarn
49.900 kr.
Þessi vegglampi myndi
passa vel á mínu heimili.
Louis Vuitton
Skótískan
í sumar
Skótískan í sumar er með fjöl-
breyttara móti: Massífir strigaskór
jafnt sem penir hælar og kúreka-
stígvél verða áberandi hluti af
skótískunni sumarið 2018.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Missoni
Chanel
Plastið var áberandi í sum-
arlínum tískuhúsanna, bæði í
skóm og fylgihlutum. Gegnsæir
skór og gegnsæir pokar eiga svo
sannarlega eftir að verða vinsælir
með vorinu.
Maison Margiela
Það var eitthvað um kúrekastígvél í vetrarlínum tískuhúsanna
síðasta vetur og virðist sú tíska bara vera rétt að byrja. Kú-
rekastígvélin eru einstaklega heit um þessar mundir og voru
stór þáttur í sumarlínunum 2018. Stígvélin passa jafn vel við
buxur og létta sumarkjóla.
Givenchy
Adidas
Louis Vuitton
Strigaskór hafa verið vinsælir undanfarin
ár og það virðist ekki ætla að breytast.
Að þessu sinni eru skórnir þó orðnir
örlítið massífari og meiri en hefur ver-
ið. Strigaskórnir úr sumarlínu Louis
Vuittons hafa vakið mikla
athygli eftir að þeir voru
kynntir í tískuvikunni
og eru strax farnir að
móta götutískuna í sumar.
Off White
Bottega Veneta
Christian Dior
Fendi
Í sumar verða lit-
ríkir sokkar við
opna hælaskó mál-
ið en sokkar léku
stórt hlutverk í
sumarlínum
stærstu hönn-
uðanna.
Þá er um að gera
að prófa sig áfram
í sumar og para
saman litríka skó
og ennþá skraut-
legri sokka.
MSGM
Miu Miu
Svokallaðir „kitten“-hælaskór eru svolítið að taka
við af himinháu pinnahælunum í sumar. Skórnir,
sem bæði eru þægilegir og smart, eru ef til vill til í
fataskápnum eða geymslunni þar sem skósniðið
var gríðarlega vinsælt um aldamótin 2000.
Balmain