Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.04.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.04.2018, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.4. 2018 Allra augu eru á réttarhaldinu yfir Bill Cosby enda er þetta umtalaðasta málið sem kom- ið hefur fyrir dóm eftir #metoo-byltinguna. Leikarinn sem lék aðalhlutverkið, sjálf- an fyrirmyndarföðurinn, í The Cosby Show á níunda ára- tugnum hefur kallað yfir sig mikla reiði og í vikunni hljóp berbrjósta kona fyrir utan dóm- húsið með áletrunina „líf kvenna skiptir máli“ málaða á sig. Það jók á drama- tíkina að konan, Ni- colle Rochelle, kom á sínum tíma fram í nokkrum þáttum af The Cosby Show. Ég féllst ekki á þetta. Þarna var„faðir Ameríku“ ofan á mér.Giftur maður, fimm barna faðir, ofan á mér. Hversu rangt er þetta? hugsaði ég með mér. Hversu innilega rangt?“ Þetta sagði fyrirsætan Janice Dickinson fyrir dómi í Norristown í Bandaríkjunum fyrir helgi en hún er ein rúmlega fjörutíu kvenna sem halda því fram að gamanleikarinn Bill Cosby hafi byrlað þeim ólyfjan og nauðgað þeim. Dickinson notaði orðið „við- bjóðsleg“ um árásina sem mun hafa átt sér stað árið 1982, þegar fyrir- sætan var 27 ára en leikarinn 45 ára. Hann stendur nú á áttræðu. Dickinson vitnaði að hún hefði kynnst Cosby eftir að hann hringdi í umboðsmann hennar og óskaði eftir því að hitta hana og mögulega leið- beina henni en fyrirsætan lét sig á þeim tíma dreyma um frama í leik- list og söng. Önnur kona sem vitnað hefur gegn Cosby, Heidi Thomas, kveðst hafa kynnst honum með sama hætti. Eftir að þau höfðu hist tvisvar bauð Cosby Dickinson til Lake Tahoe, þar sem hún fékk leiðsögn hjá tónlistarleiðbeinanda hans. Að því loknu snæddi hún með mönn- unum tveimur á hótelinu sem Cosby dvaldist á. Þar byrjaði Dickinson, að því er fram kom í vitnisburði henn- ar, að finna fyrir tíðaverkjum. Cosby dró þá litla bláa pillu úr pússi sínu og gaf fyrirsætunni. Fljótlega á eftir varð hún ringluð og utan við sig. Tónlistarleiðbeinandinn vék þá frá borði og Cosby mælti: „Við höld- um þessu samtali áfram uppi.“ Hann leysti frá sér slopp- inn Dickinson var með myndavél á sér og tók ljósmyndir af Cosby í litrík- um slopp á hótelherbergi hans að tala í símann. „Skömmu eftir að ég tók myndirnar og hann sleit símtal- inu, fór hann upp á mig. Hann leysti frá sér sloppinn ... ég gat mig hvergi hrært. Ég flaug ekki til Tahoe til að hafa kynmök við herra Cosby,“ sagði Dickinson fyrir dómi. Fyrirsætan fann til í leggöng- unum og tók eftir sæði milli fóta sér þegar hún vaknaði morguninn eftir. Hún segir Cosby hafa litið á hana eins og hún væri gengin af göflunum þegar hún bar þetta upp á hann. „Mig langaði að slá hann í andlitið.“ Dickinson er ein fimm kvenna sem komu fyrir dóm í vikunni að beiðni ákæruvaldsins en tilgangur- inn er að sanna að Cosby hafi stund- að það að eitra fyrir og misnota kon- ur löngu áður en hann var ákærður fyrir að brjóta gegn Andreu Con- stand á heimili hans í Fíladelfíu árið 2004. Leikarinn heldur því fram að hann hafi haft mök við Constand með hennar vilja og kviðdómur klofnaði við fyrsta réttarhaldið. Sjálf mun Constand stíga í vitnastúkuna síðar í réttarhaldinu. Verjendur Cosbys vísa framburði kvennanna fimm á bug og segja að með því að kalla þær fyrir dóm sé ákæruvaldið að drepa málinu á dreif. „Þessar konur hafa sannað að þær eru hingað komnar til að styðja við bakið á systur sinni,“ sagði tals- maður leikarans við fjölmiðla fyrir utan dómhúsið. Cosby og verjendur hans hafa alltaf haldið því fram að Constand hafi leitt leikarann í gildru með það fyrir augum að féfletta hann. Í opnunar- ræðu sinni í vikunni fullyrti saksóknari að Cosby hefði greitt Constand 3,4 milljónir Bandaríkja- dala, andvirði 337 milljóna króna, til að tryggja þagmælsku hennar. Þurfti á tekjunum að halda Verjendur þráspurðu Dickinson um misræmi milli þess sem hún heldur fram nú og þess sem kemur fram í endurminningum hennar sem komu út árið 2002. Þar er ekki minnst á að fyrirsætan hafi haft samfarir við Cosby, hvað þá að hann hafi nauðg- að henni. Hún svaraði því til að hún hefði viljað segja allt af létta í bók- inni en útgefandinn hefði hafnað því; lögfræðingar útgáfunnar myndu aldrei samþykkja að slíkar ásakanir á hendur Cosby næðu alla leið á prent. Dickinson sagði kviðdómi að hún hefði látið það yfir sig ganga af tveimur ástæðum; annars vegar þurfti hún á tekjunum af bókinni að halda og hins vegar var hún hrædd um að Cosby myndi leggja feril hennar í rúst. „Þetta er tóm steypa þarna [í bókinni]. Þetta var allt skrifað af skuggahöfundum. Ég vildi bara ávísunina.“ Þarna var „faðir Ameríku“ ofan á mér Fyrirsætan Janice Dickinson dró upp dökka mynd af samskiptum sínum við leikarann Bill Cosby fyrir dómi í vikunni en hún fullyrðir að hann hafi byrlað henni ólyfjan og nauðgað henni árið 1982. Lögregla hand- samar Nicolle Rochelle. Líf kvenna skiptir máli AFP Fyrirsætan Janice Dickinson í dómhúsi Montgomery- sýslu fyrir helgina, þar sem hún vitnaði gegn Bill Cosby. ’ Ég treysti honum vegna þess að hann er „faðir Ameríku“. Ég treysti honum vegna þess að hann er persóna sem fólk treysti árum saman. Lise-Lotte Lublin, sem hefur sakað Bill Cosby um að byrla sér ólyfjan og nauðga sér árið 1989. ERLENT ORRI PÁLL ORMARSSON orri@mbl.is ÞÝSKALAND MÜNSTER Varaformað- ur hægriöfgafl okksins Alt- ernative für Deutschland hefur beðist velvirðingar á því að hafa kennt íslamistum um árásina í borginni á dögunum. „Mér varð á í messunni þegar ég tísti um Münster og biðst afsökunar. Eins og milljónir Þjóðverja gekk ég út frá því að þetta væri íslömsk árás,“ sagði Beatrix von Storch. BANDARÍKIN LOS ANGELES Saksóknarar skoða nú hvort ástæða er til að höfða mál á hendur leikaranum Kevin Spacey vegna kynferðislegrar áreitni eftir að lögregla lauk rannsókn sinni á máli manns sem segir leikarann hafa misnotað sig árið 1992. Yfi r þrjátíu karlar hafa vænt Spacey um kynferðislega áreitni undanfarna mánuði. Talsmaður leikarans vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. BOSNÍA OG HERZEGÓVÍNA SARAJEVÓ Scream For Me Sarajevo kallast heimildarmynd sem frumsýnd verður í byrjun næsta mánaðar. Fjallar hún um tónleikaferð Bruce Dickinson, söngvara Iron Maiden, og þáverandi sólóbands hans til borgarinnar árið 1994, þegar stríðið í Bosníu stóð sem hæst og umsátursástand ríkti í Sarajevó. Í myndinni kem- ur fram að þetta ferðalag breytti lífi Dickinsons. KÍNA JIANGSU Barn fæddist nýverið í Kína, sem myndi ekki sæta tíðindum nema fyrir þær sakir að báðir foreldrar þess létust í bílslysi árið 2013. Parið lét eftir sig fósturvísa og eftir japl, jaml og fuður tryggðu foreldrar hinna látnu sér forræði yfi r þeim fyr- ir dómi. Að því búnu fundu foreldrarnir staðgöngumóður í Laos, staðganga er bönnuð í Kína, og ól hún þeim heilbrigt sveinbarn.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.