Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.04.2018, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.04.2018, Blaðsíða 23
Fyrir 4 500 g aspas 1-2 msk. ólífuolía gróft salt nýmalaður pipar Hitið grillið á háum hita. Kryddið aspasinn með salti og pipar og veltið honum upp úr ólífuolíu. Setjið beint á grillið og snúið reglu- lega þar til hann er tilbúinn. Tekur 3-4 mín- útur. Frábært meðlæti með öllum grillmat. Grillaður aspas 15.4. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23 Fyrir 4 (gott í forrétt) 500 g risarækjur 2 msk. ólífuolía 1 msk. gróft salt 1 tsk. cayennepipar 1 tsk. paprikuduft 1 tsk. hvítlauksduft 1 tsk. laukduft 1 tsk. oregano 2 sítrónur, skornar í sneiðar Hitið grillið vel. Búið til maríneringuna með því að blanda saman öllu þurrkryddinu í litla skál. Setjið rækjurnar í aðra skál ásamt ólífuolíunni. Hellið kryddinu saman við rækjurnar og blandið vel. Þræðið rækjurnar og sí- trónusneiðar á grillpinna. Ef þeir eru úr viði skaltu láta þá liggja í bleyti fyrst í 20 mínútur. Grillið þar til tilbúið, 4-5 mínútur. Snúið einu sinni. „Cajun“-rækjur á grillið Fyrir 6 6 ferskir maísstönglar (tak- ið allt hýði utan af þeim) 3 msk. púðursykur 1 tsk. cayennepipar gróft salt nýmalaður pipar ¼ bolli bráðið smjör lime skorið í báta Hitið grillið í hæsta. Blandið púðursykri, cayenne pipar, pipar, salti og smjöri saman í litla skál. Hrærið vel saman. Berið olíu á grindina og leggið maísstönglana ofan á og grillið í fimm mínútur. Á meðan stönglarnir eru að grillast penslið þá með blöndunni. Snúið og pensl- ið allan hringinn. Kreistið lime yfir og berið fram. Frábært meðlæti með öllum grillmat. Geggjaður grillaður maís Fyrir 4 4 svínakótilettur ¼ bolli hunang ½ bolli soja sósa 2 hvítlauksrif, fínt rifin rauðar piparflögur (Red pepper flakes) Blandið hunangi, sojasósu, hvítlauk og rauðum pipar- flögum saman í stóra skál. Látið svínakótilettur út í skálina og geymið inni í ís- skáp í að minnsta kosti hálftíma en allt upp í tvo tíma. Hitið grillið þannig að það nái rúmlega miðlungs- hita. Grillið kótiletturnar þangað til að þær eru fulleldaðar, um það bil átta mínútur á hvorri hlið. Látið þær hvíla í 5 mínútur áður en þær eru bornar fram. Hunangsgljáðar svínakótilettur

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.