Morgunblaðið - 07.05.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 07.05.2018, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 7. M A Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  106. tölublað  106. árgangur  ÞÓR/KA HÓF TITILVÖRNINA MEÐ STÓRSIGRI RANNSAKAR MANNEÐLIÐ MAMMA GERÐI FERMINGARDAGINN ÓGLEYMANLEGAN NÝTT LEIKRIT KRISTJÁNS ÞÓRÐAR 26 SAUMAÐI KJÓLINN 12SKORAÐI ÞRENNU ÍÞRÓTTIR Norræna safnið í Seattle í Banda- ríkjunum opnaði dyr sínar í nýrri og glæsilegri byggingu um helgina. Undirbúningur að flutningi safnsins úr aflögðu skólahúsnæði hefur tekið um tíu ár og stór draumur varð því að veruleika. Á safninu er yfirgripsmikil sýn- ing um sögu innflytjenda frá Norð- urlöndum til Norður-Ameríku, en einnig forsögu þess fólks um 12.000 ár aftur í tímann. Þjóðminjasafn Ís- lands lánaði fjóra gripi til safnsins vegna sýningarinnar. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Eliza Reid, eiginkona hans, voru viðstödd opnun safnsins og tóku virkan þátt í hátíðarhöld- unum. »10 Norræna safnið opnað á nýjum stað Opnun Klippt á borða við húsnæði Nor- ræna safnsins í Seattle í Bandaríkjunum. Höskuldur Daði Magnússon Ingveldur Geirsdóttir Alls munu sextán listar bjóða fram í Reykjavík í sveitarstjórnarkosning- unum sem haldnar verða eftir nítján daga. Þetta varð ljóst síðdegis í gær þegar yfirkjörstjórn úrskurðaði öll framboð sem bárust gild. Einn fram- bjóðandi Íslensku þjóðfylkingarinn- ar hafði ekki kjörgengi og þurfti að strika hann út af listanum. Níu flokkar bjóða fram í Kópa- vogi, einum fleiri en fyrir fjórum ár- um. Í Hafnarfirði verða átta flokkar í framboði en voru sex síðast. Það sama gildir um Reykjanesbæ og Mosfellsbæ. Sjö flokkar bjóða fram á Akureyri rétt eins og síðast en í Ár- borg bjóða sex flokkar fram, voru fimm síðast. Engir listar voru lagðir fram í fimmtán sveitarfélögum. Í þessum sveitarfélögum verða því óhlut- bundnar kosningar eða persónukjör. Í fjórum sveitarfélögum barst að- eins einn framboðslisti. Halldór Jónsson, sem situr í kjörstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps, eins þeirra, sagði í samtali við Morgunblaðið að þegar aðeins einum lista væri skilað inn væri framboðsfrestur fram- lengdur um tvo sólarhringa. Berist ekki fleiri framboð er listinn sjálf- kjörinn. Hröð endurnýjun fulltrúa Mikil endurnýjun verður meðal sveitarstjórnarfólks í vor, alls um 60% samkvæmt rannsókn Evu Mar- ínar Hlynsdóttur, stjórnmálafræð- ings og lektors við HÍ. Í rannsókn hennar, sem gerð var í fyrra, kom í ljós að aukið álag á sveitarstjórnar- fólk og fleiri og flóknari verkefni stuðla að því að tæp 60% snúa ekki aftur að loknum kosningum hverju sinni. Konur sitja skemur en karlar. »4 og 11 Fleiri framboð í flestum stærstu sveitarfélögunum  Sextán framboð í Reykjavík  Persónukjör víða um land Morgunblaðið/Ómar Kosið Íbúar í Reykjavík hafa úr 16 framboðum að velja 26. maí. Byggingakranarnir hímdu og tónlistar- og menningarhúsið Harpa tók á sig drungalega mynd í einni slydduhríðinni sem gekk yfir höfuðborgina í liðinni viku. Bjartara er framundan í veðrinu en von er á suðaustanátt næstu daga, með mildara lofti en því sem fylgdi suðvestan- áttinni sem hefur verið yfir landinu undanfarið. Óli Þór Árna- son veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að hitatöl- urnar séu á uppleið víðast hvar um landið, það sé helst á Vestfjörðum þar sem von sé á svalara veðri. Hiti verður víðast hvar á bilinu fimm til tíu stig þessa vik- una og von er á rigningu eða súld um allt land, en úrkoman er að mestu bundin við landið sunnanvert. „Það verður hægur vindur og úrkoma í flestum lands- hlutum á hverjum degi,“ segir Óli Þór um vikuna framundan. „Það verður oft skýjað og þungbúið með einhverri vætu.“ Morgunblaðið/Hari Byggingakranarnir hímdu upp við Hörpu í hríðinni 200 milljónum verður varið aukalega til bættrar hags- munagæslu Ís- lands vegna EES-samnings- ins. Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráð- herra segir brýnt að Íslendingar fjölgi stöðugildum í Brussel til að öll ráðuneytin hafi þar fulltrúa. Í nýlegri skýrslu utanríkisráðu- neytisins um bætta framkvæmd EES-samningsins kemur fram að Ísland hafi tekið upp 13,4 prósent þeirra tilskipana, reglugerða og ákvarðana sem ESB samþykkti á árunum 1994 til 2016. „ESB-sinnar hafa reynt að grafa undan EES- samningnum með því að halda því fram að við tökum upp 80 til 90 pró- sent af gerðum ESB en staðreyndin er að hlutfallið er 13,4 prósent,“ segir Guðlaugur. »2 Embættismönnum fjölgað í Brussel Brussel Stöðugild- um verður fjölgað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.