Morgunblaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2018 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta yfir 90 ár10% afsláttur fyrir 67 ára og eldri Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Nú er rétt að snúa sér að verk- efnum í vinnunni, sem krefjast einbeitingar, nákvæmni og rannsókna. Skipuleggðu tíma þinn svo þú komist yfir hlutina. 20. apríl - 20. maí  Naut Ef þú heldur rétt á spilunum mun þér ganga allt í haginn jafnt á vinnustað sem heima fyrir. Lykillinn að samvinnu er að uppgötva það sem hvetur alla til dáða. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gættu þess að ganga ekki á rétt annarra þótt þú keppir að mikilsverðu tak- marki. Allt sem þú tekur þér fyrir hendur skilar hugsanlega hagnaði. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ekki efast um gáfur þínar eða hæfni þína til að taka eigin ákvarðanir. Þú hefur fulla ástæðu til að vera ánægður því allt virðist ætla að ganga upp hjá þér. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gefstu ekki upp á því að leggja góðum málstað lið þótt baráttan sé hörð og þér finnist lítið miða áfram. Varastu að orsaka glundroða og leita að átökum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú gætir hæglega bætt framkomu þína í garð annarra til muna. Gleymdu því ekki að tvær hliðar eru á öllum málum og oft þarf lítið til að skapa misskilning. 23. sept. - 22. okt.  Vog Vinna þín hefur skilað góðum árangri og þú mátt vera stoltur af sjálfum þér. Þú ert eins og gæsin sem verpir gulleggjum og margir hafa hug á því að lokka þig til sín. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú þarft að sýna mikla lipurð til þess að komast í gegnum þá erfiðleika sem fylgja nýju verkefni. Framkoma ein- hvers kemur þér skemmtilega á óvart. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú átt það til að ganga of langt í samskiptum við aðra. Ef þú ætlar að gefa þér tíma til að tala við fólk, hlustaðu þá af allri athygli. 22. des. - 19. janúar Steingeit Einlægar samræður við góðan vin gera þér gott í dag. Ekkert jafnast á við það að eiga samskipti við fólk sem er jafn hnyttið – eða næstum jafn hnyttið – og þú. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú ert sáttari í vinnunni því þú sérð að það er svigrúm til breytinga. Það er oft betra að geyma hlutina hjá sér um stund heldur en að deila þeim strax með öðrum. 19. feb. - 20. mars Fiskar Vinnan verður ekki eins og þú óskar þér, og þér finnst það fínt seinna meir. Hvaðeina sem þú tekur upp á til þess að bæta skipulagið mun koma þér að notum. Páll Imsland heilsaði Leirliði áalhvítum fimmtudagsmorgni: „Já, nú er það svo svart að allt er orðið hvítt“: Stebba Þór Stígssyni’ á Tanga var stranglega bannað að langa, en hann langaði samt og hann langaði jafnt og hann langaði þétt til að manga. Mér var send þessi góða staka og höfundurinn sagður „Guðrún Halldórsdóttir yngri, skáld“ en á henni veit ég engin deili: Aldrei get ég andlegt fikt iðkað nema á hlóðum því er alltaf eldhúslykt af öllum mínum ljóðum. Það lá vel á hagyrðingum í síð- ustu viku, – þeim fannst vorið komið. Á föstudaginn skrifaði Pétur Stefánsson á Leir: „Eftir göngutúr dagsins datt mér í hug: Að mér sækir (ekki treg) indæl gleðivíma. Alla daga arka ég úti klukkutíma. Lífs á strætum leik ég mér lítt í skapi stúrinn. Kaffisopinn indæll er eftir göngutúrinn.“ Og Ingólfur Ómar bætti við: Lífs um stræti fimur fer frjáls með glöðu sinni. Þess á milli alltaf er að yrkja á fésbókinni. Ármann Þorgrímsson vekur athygli á því að sjálfstæðismenn á Akureyri bæta við sig fylgi og eru núna, samkvæmt síðustu könnun, stærsti flokkurinn í bænum: Að sjálfstæðismenn sigri hér sýnist nokkuð öruggt vera, ef þetta vilji þjóðar er þá er lítið hægt að gera. Sigurður Jósúason, Dalasýslu, orti: Einhvern tíma ef ég ræ einhvern tíma kemur logn, einhvern tíma úti á sæ einhvern tíma fæ ég hrogn. Um flösku orti Andrés Björns- son stöku sem varð húsgangur á síðustu öld eins og raunar fleiri stökur hans: Það er fúlt á flöskunni, fordérfaður andskoti, hentu ‘enni oní helvíti - hana, taktu við henni! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af löngunum og göngum um lífsins stræti „SLEPPTU BEININU. ÞÚ ERT VARÐHUNDUR OG ÁTT BARA AÐ VAKTA SVÆÐIÐ.“ „MAMMA MÍN MÁ EKKI VITA AF ÞESSU! ÉG SAGÐI HENNI AÐ ÞÚ HEFÐIR ÁKVEÐIÐ AÐ BYRJA MEÐ RITARANUM ÞÍNUM.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... ljúf hugsun. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann „KÆRA SPYRJUM HUND, ÉG ER REIÐUR ÚT Í BRÉFBERANN MINN. HVAÐ Á ÉG AÐ GERA?“ VOFF VOFF VOFF VOFF VOFF VOFF BÍTTU HANN, EN FYRST… VERTU VISS UM AÐ ÞÚ SÉRT BÚINN AÐ FÁ ALLAR BÓLUSETNINGAR ÞETTA ER HRÆÐILEGT! GLEYMDIR ÞÚ BRIMBRETTINU ÞÍNU LÍKA? Útlönd eru Akureyri. Þessi tilfinn-ing grípur Víkverja alltaf þegar hann kemur í höfuðstað Norðurlands; bæinn fallega við Pollinn. Á sumrin er hvergi veðursælla en nyrðra þegar hlý sunnangolan kemur yfir landið og niður af hálendisbrúninni svo töl- urnar á hitamælunum fara í hæstu hæðir. Á Norðurlandi má raunar segja að árstíðirnar séu aðeins þrjár; haust, vetur og í beinu framhaldi af því kemur sumarið. Snjó tekur upp á skömmum tíma, trén í Lystigarð- inum og öðrum lundum laufgast á ör- fáum dögum og bærinn fyllist af túr- istum þar sem farþegar af skemmtiferðaskipunum eru áber- andi. Allt springur út og oft er þetta andrúm og samfélag líkast því sem gerist í fallegum bæjum Evrópu. x x x Margt áhugavert mátti upplifa ístuttu stoppi Víkverja á Akur- eyri í síðustu viku. Á Eyrinni og við Drottingarbraut – og efalaust víðar í bænum – standa yfir byggingar- framkvæmdir. Er eftirtektarvert hvað nýbyggingar í bænum falla yfirleitt vel að eldri byggð svo úr verður heildstæð mynd. Flutninga- skip lá við bryggju, togari var í slippnum og á Tryggvabraut var in- dæll uppáhellingarilmur frá Nýju kaffibrennslunni. Við umboð Toyota voru Landcrusier-jeppar í röðum. Akureyri hefur alltaf verið bílabær og lengi verið verið sagt að notaðir bílar þaðan séu sérstaklega vel með farnir og í þeim séu betri kaup en öðrum. x x x Í menningarhúsinu Hofi var stjórn-málafundur, þar sem Víkverji leit inn. Leiðin lá svo upp í bæ. Verslun Eymundsson er skemmtilegur við- komustaður; kaffihús þar sem tímarit og góðar bækur liggja frammi. Þetta er skemmtilegasta bókabúð landsins. Á Glerártorgi tók svo Víkverji skammtinn; þrjá pakka af soðnu brauði. Þetta fæst eiginlega hvergi nema á Akureyri. Ómissandi að grípa þetta með, svipað og taka skammt af Toblerone og bjór í Fríhöfninni þegar komið er frá útlöndum. Það kemur líka heim og saman við það sem hér í upphafi segir – útlönd eru Akureyri. vikverji@mbl.is Víkverji Þótt ég talaði tungum manna og engla en hefði ekki kærleika væri ég hljóm- andi málmur eða hvellandi bjalla. (Fyrra Korintubréf 13.1)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.