Morgunblaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2018 Bankastræti 12 | sími 551 4007 | skartgripirogur.is Armband Frá 14.900,- Hálsmen 7.900,- Hálsmen 13.900,- Eyrnalokkar 6.900,- Hringur 14.900 BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Mikil hátíðahöld stóðu yfir í Seattle í Bandaríkjunum um helgina þegar því var fagnað að Norræna safnið þar í borg opnaði dyr sínar í fyrsta sinn fyrir gestum í nýrri og glæsilegri byggingu. Safnið rekur sögu sína allt aftur til fyrri hluta níunda áratug- arins en fram til þessa hefur það verið rekið í aflögðu skólahúsnæði. Í rúm tíu ár hefur verið unnið að flutningi safnsins og það var ljóst af forsvarsmönnum safnsins, þegar blaðamaður Morgunblaðsins náði tali af þeim um helgina að opnun nýja safnsins var í raun fjarlæg draumsýn að verða að veruleika. Verkefnið er enda risavaxið á alla mælikvarða. Framkvæmdir við húsið og uppsetn- ingu nýju sýningarinnar kostuðu á sjötta milljarð króna. Þeirra fjármuna var aflað meðal styrktaraðila og af sjálfsaflatekjum safnsins. Styrktaðil- arnir eru bæði bandarískir, með sögu- leg tengsl við Norðurlönd en einnig velunnarar í Skandinavíu. Nokkra at- hygli vekur að enginn Íslendingur eða íslenskt fyrirtæki er meðal helstu styrktaraðila. Flutti kveðju frá Íslandi Guðni Th. Jóhannesson, forseti Ís- lands, var eini þjóðhöfðingi Norð- urlanda sem mætti við opnun safnsins en frá Danmörku kom Mary Donald- son, krónprinsessa. Guðni Th. og eig- inkona hans, Eliza Reid, tóku virkan þátt í hátíðahöldunum og flutti hún m.a. ávarp í lok fundar um hlutverk hins nýja safns á ráðstefnu sem fram fór á föstudag. Þá um kvöldið var haldinn glæsilegur galakvöldverður þar sem forseti ávarpaði gesti. Við hina formlegu opnunarhátíð á laugardag flutti Guðni einnig tölu og bar íbúum Seattle og aðstandendum safnsins kveðju frá íslensku þjóðinni. Í ræðu sinni fjallaði hann um þann mikilvæga menningararf sem samein- aði Norðurlandaþjóðirnar og að Nor- ræna safnið væri vitnisburður um það. Vitnaði hann í máli sínu í ljóð ís- lenskrar konu, Jónínu Jónsdóttur, sem fluttist sem fátæk vinnukona vestur um haf í lok 19. aldar. Í ljóðinu fjallar hún um þá erfiðleika og harð- æri sem hún bjó við, en að menningin og tungumálið veittu henni skjól frá stormum lífsins. Ásamt forseta fluttu ávörp Eric Nelson, safnstjóri Norræna safnsins, Mary Donaldson, krónprinsessa, sendiherrar Noregs, Svíþjóðar og Finnlands, Rick Larsen, sem sæti á í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir Washingtonfylki, Jenny Durkan, borgarstjóri Seattle, Dagfinn Høybråten, framkvæmdastjóri nor- ræna ráðherraráðsins og Irma Goert- zen, formaður stjórnar safnsins. Sannkölluð menningarmiðstöð Á safninu er yfirgripsmikil grunn- sýning sem ber yfirskriftina „Nor- ræn ferðalög“ og fjallar hún, út frá víðu sjónarhorni, um sögu innflytj- enda frá Norðurlöndum til Norður- Ameríku en einnig forsögu þess fólks, sem teygir sig 12.000 ár aftur í tím- ann. Á sýningunni er m.a. að finna steinaxir og önnur verkfæri sem talin eru um 4.000 ára gömul. Þá eru tímabundnar sýningar einn- ig í safninu. Ein þeirra tekur til nú- tímalistar á Norðurlöndum og þar má m.a. finna verk eftir Ólaf Elíasson. Önnur sýning fjallar um lífshlaup og ævistarf Norðmannsins Friðþjófs Nansen, hins þekkta landkönnuðar og vísindamanns. Auk sýninganna er í safninu að finna fyrirlestrasal, kaffihús og kennslustofur. Þar stendur safnið fyrir fundum, ráðstefnum, kvik- myndasýningum og þar má einnig sækja kennslustundir í tungumálum Norðurlanda. Ítarlega verður fjallað um safnið í Morgunblaðinu á fimmtudag. Norræn miðstöð vestanhafs  Mikil hátíðarhöld um helgina í Seattle í Bandaríkjunum í tengslum við opnun Norræna safnsins  Byggt á grunni eldra safns sem starfrækt hefur verið í fjóra áratugi  Forseti Íslands flutti ræðu Boðið var til sannkallaðrar tónlist- arveislu í tengslum við opnun safns- ins um helgina og kom tónlistarfólk hvaðanæva af Norðurlöndum. Fjöl- mennastir voru þó án nokkurs vafa Fóstbræður sem gerðu víðreist vest- ur um haf í tilefni opnunarinnar. Sungu þeir tvívegis við opnunar- athöfnina, m.a. Þótt þú langförull legðir eftir Stephan G. Stephansson og Sigvalda Kaldalóns og Landkjend- ing eftir Edvard Grieg og Björn- stjerne Björnsson. Steinunn Birna Ragnarsdóttir, lék undir. Mun þetta vera fjölmennasti íslenski karlakór sem sungið hefur á erlendri grundu. Þá söng dúettinn Raddir Reykja- víkur, en hann skipa þau Ingibjörg Aldís Ólafsdóttir sópransöngkona og Egill Árni Pálsson tenór. Hrönn Þrá- insdóttir píanóleikari fylgdi þeim og það gerði einnig Helgi Jónsson á slagverk. Þau héldu svo aðra tón- leika í borginni í gærkvöldi. Á laugardagskvöldið var rokk- tónleikum slegið upp og þar átti Mammút stórleik ásamt fleiri hljóm- sveitum. En Íslendingar áttu einnig aðkomu að tónlistaratriðum annarsstaðar frá. Þannig var Hörður Áskelsson gestastjórnandi hins þekkta Vokal Nord kórs frá Tromsø í Noregi. Nú í kvöld standa Fóstbræður fyr- ir tónleikum í Plymouth kirkjunni í Seattle. Kraftur Þakið ætlaði að rifna af safnbyggingunni þegar kórinn söng Brennið þið vitar eftir Davíð Stefánsson við lag Páls Ísólfssonar. Íslenskt tónlistarfólk áberandi við opnunina  Fjölmennasti íslenski karlakórinn Margrét Hallgrímsdóttir, þjóð- minjavörður, var viðstödd opn- unina ásamt forstöðumönnum annarra þjóðminjasafna á Norð- urlöndum. Hún hefur lengi fylgst með uppbyggingu safns- ins í Seattle og segir samstarfið milli stofnana einkar gefandi. Á nýju grunnsýningunni sem opnuð var um helgina er að finna gripi sem söfnin á Norð- urlöndum lána til Bandaríkj- anna. Þar á meðal eru fjórir gripir frá Íslandi. Annars vegar er þar um að ræða tvö prentmót frá 17. og 18. öld og hins vegar tvo snældusnúða frá landnáms- öld. Þjóðminja- safnið lánar fjóra gripi GOTT SAMSTARF Borðinn klipptur Guðni Th. Jóhannesson klippir ásamt fleirum á borðann við formlega opnun safnsins á laugardag. Við hlið hans, á hægri hönd, stendur Mary Donaldson, krónprinsessa, eiginkona Friðriks, krónprins Danmerkur. Nýbygging Safnið er engin smásmíði, ríflega 5.000 fermetrar og stendur við Markaðsstræti 2655 í Ballard-hverfinu í norðvestanverðri Seattle-borg. Morgunblaðið/Stefán E. Stefánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.