Morgunblaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.05.2018, Blaðsíða 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2018 Á afmælisdaginn ætla ég að skoða rjúpur, ég get ekki hugsaðmér neitt skemmtilegra en að þvælast um fáfarin svæði aðleita að fuglum,“ segir Sunna Björk Ragnarsdóttir sem á 30 ára afmæli í dag. Hún er líffræðingur hjá Náttúrustofu Suðvesturlands sem er til húsa að Garðvegi 1 í Sandgerði en sjálf býr hún í Njarðvík. Hún stund- ar vistfræðirannsóknir með áherslu á fjörulíf og sjófugla. „Við erum að telja rjúpurnar í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands, þetta er gert á landsvísu og við tökum þetta að okkur hér á svæðinu.“ Þetta eru sniðtalningar en þá er gengið um með GPS-tæki og fjöldi karra, þ.e. karlfuglinn, metinn á ákveðnu svæði. Svo eru notuð reiknilíkön til að meta stofnstærðina út frá talningunum. „Annars er skemmtilegasti tíminn að byrja í vinnunni og næstu vik- ur verður aðalvinnan að endurheimta staðsetningartæki af sjófuglum sem geta sagt okkur til um vetrarstöðvar þeirra, við förum nokkuð vítt um landið til að leita að þeim. Vandamálið er að þetta skarast við sauðburðinn, maður kemst ekki heim í sauðburð,“ en Sunna er frá Gunnarsstöðum í Þistilfirði. „Þessi sveitastelpugen brjótast út í því að ég vil helst vera einhvers staðar úti á stígvélunum.“ Eiginmaður Sunnu er Elvar Steinn Traustason, framleiðslustjóri hjá hrognaeldi Stofnsfisks. Dóttir þeirra er Diljá Silla, eins árs. Líffræðingurinn Sunna að litmerkja sanderlu í Sandgerði. Ætlar að telja rjúpur á Reykja- nesskaganum Sunna Björk Ragnarsdóttir er þrítug K jartan Georgsson fædd- ist á Reynisstað í Skerjafirði við Reykja- vík þar sem gamli Skildninganesbærinn stóð, þann 7.5. 1933 og ólst upp á kúabúi foreldra sinna í Skerjafirði: „Faðir minn var Austfirðingur í húð og hár, en móðir mín Vestfirðingur. Þau leigðu jörðina Reynisstað í Skerjafirði af Eggert Claessen, lög- manni, bankastjóra og athafnamanni. Þau byggðu svo íbúðahúsið Reyni- velli sem enn stendur í Skerjafirð- inum og ráku myndarlegt kúabú á jörðinni. Henni fylgdi víðfeðmt beit- arland í Vatnsmýrinni og faðir minn tók hross í hagabeit fyrir reykvíska hestamenn og hafði af því nokkrar tekjur. Auk þess átt hann bát og réri úr vör niður af Reynisstaðabænum, rétt vestan við sjóvarnargarðinn sem enn stendur. Ég ólst því upp við öll almenn sveitastörf í Skerjafirðinum, rak þar kýr og var í hrossasnatti í Vatnsmýrinni. Kjartan Georgsson, bóndi á Ólafsvöllum á Skeiðum – 85 ára Heyjað í Skerjafirði Heimilisfólkið á Reynisvöllum á fjórða áratugnum. Anna, systir Kjartans, er lengst til vinstri. Rak kýr og eltist við hross í Vatnsmýrinni Hjónin á Ólafsvöllum Kjartan og Sigríður, en hún vann um langt árabil öt- ullega að því að bjarga íslenska fjárhundskyninu frá ú́trýmingu. Njarðvík Diljá Silla Elvars- dóttir fæddist 26. janúar 2017 kl. 09.55 í Reykjavík. Hún vó 3.660 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Elvar Steinn Traustason og Sunna Björk Ragnarsdóttir. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.