Morgunblaðið - 07.05.2018, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. MAÍ 2018
Skútuvogi 1c 104 Reykjavík Sími 550 8500 Fax 550 8510 www.vv.is
Traka 21 lyklaskápurinn skráir hver hefur lykla fyrirtækisins undir
höndum hverju sinni. Skápurinn opnast og afhendir lykil aðeins þeim
sem hefur leyfi til þess. Þetta sparar utanumhald og eykur öryggi.
Lyklar tapast miklu síður og kostnaður vegna þess lækkar.
Lyklaskápur sem
alltaf veit betur
Verð: 179.000 kr.
VIÐTAL
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
„Þær breytingar sem eru framundan
í fjármálaþjónustu munu ekki gera út
af við bankana. Þvert á móti eru hefð-
bundnir bankar í góðri aðstöðu til
njóta góðs af, jafnvel ef róttækar
breytingar eiga sér stað. Þeir búa að
því að leika nú þegar mikilvægt hlut-
verk í peningakerfinu, og hafa komið
upp sterkum vöru-
merkjum sem fólk
treystir og hægt er
að byggja ofaná.
Vissulega munu
sumir bankar
leggja upp laup-
ana, en um banka
almennt má segja
að þeir kunna á
regluverkið og
hafa alla burði til
að halda áfram að vera áhrifamiklir.“
Þetta segir breski framtíðarfræð-
ingurinn Rohit Talwar en hann er
væntanlegur til landsins um miðjan
mánuðinn. Rohit er forstjóri ráðgjaf-
arfyrirtækisins Fast Future og hefur
um árabil hjálpað fyrirtækjum og
stjórnendum að búa í haginn fyrir
framtíðina. Mánudaginn 14. maí held-
ur hann opna vinnustofu í Hörpu um
gervigreind og endursköpun framtíð-
arinnar, og þriðjudaginn 15. maí flyt-
ur hann erindi á vorráðstefnu Reikni-
stofu bankanna. Ráðstefnu RB er
einkum ætlað að beina kastljósinu að
nýjum greiðsluþjónustulögum innan
EES, PSD2-tilskipuninni, sem vonir
standa til að muni stuðla að framþró-
un og samkeppni í greiðsluþjónustu á
bankamarkaði.
Þróunin hefur verið ör og á und-
anförnum árum hafa fjármálatækni-
sprotar af ýmsum toga hrist rækilega
upp í bankaheiminum. Rohit bendir
þó á að aðeins agnarlítið brot fjár-
málatæknisprota verði að voldugum
fyritækjum því flest þeirra verða ým-
ist undir í samkeppninni eða eru
keypt af bönkum sem gera lausnir
þeirra að sínum eigin. Segir Rohit að
sprotarnir þurfi að yfirstíga mjög há-
an þröskuld. „Það munar mest um að
bankarnir eru þegar búnir að fjár-
festa í að markaðsetja sig og fá fólk til
að treysta þeim fyrir peningunum
sínum.“
Gervigreindarbankar og
dreifstýrðar tryggingar
Aðspurður hvað það er sem koma
skal segir Rohit að framtíð banka- og
fjármálaþjónustu sé nú þegar lent.
Hann nefnir þýska bankann N26 sem
notar fullkomna gervigreind til að sjá
um viðskiptavini sína og hjálpa þeim
að halda utan um fjármálin. „Annað
dæmi er tryggingafélagið Teambrella
þar sem hópar fólks leggja trygg-
ingafé í einn pott. Aðrir meðlimir
hópsins greiða atkvæði um kröfuna
þegar einn meðlimur verður fyrir
tjóni, og geta virkjað þekkingu hóps-
ins til að lágmarka kostnaðinn við
tjónið. Allir hafa sameiginlega hags-
muni af því að bótagreiðslurnar séu
sanngjarnar og ferlið gagnsætt, og í
lok árs eru þeir peningar sem eftir
eru í pottinum greiddir út til meðlima.
Teambrealla tekur til sín smávægi-
lega umsýsluþóknun en þarf ekki að
reka dýra yfirbyggingu trygginga-
félags og hróflar ekki við pottinum.“
Rohit segir tækifærin ekki bara
fólgin í því að nota sjálfvirkni, gervi-
greind og hugvitsamlegar lausnir til
að sinna þörfum fólks með ódýrari og
enn betri hætti, heldur verði fjár-
málafyrirtæki líka að bjóða upp á al-
veg nýjar tegundir af þjónustu fyrir
alveg nýja gerð viðskiptavina:
„Reikna má með að á næstu 10 árum
eða svo þá muni alþjóðahagkerfið
vaxa um meira en helming og af þess-
um mörgum tugum milljarða dala
sem bætast við mun bróðurparturinn
koma frá fyrirtækjum og heilu at-
vinnugreinunum sem eru ekki til í dag
eða eru nýkomnar fram á sjónarsvið-
ið. Þetta verða fyrirtæki sem fást t.d.
við lífsmíði (e. synthetic biology),
sjálfakandi bifreiðar, líkamsbætandi
tækni (e. personal augmentation),
lífslengingu og geimferðir. Öll munu
þessi fyrirtæki þurfa á fjármálaþjón-
ustu að halda sem hægt er að sníða að
þörfum þeirra og leyfir þeim að vaxa
og dafna“.
Bankarnir geta lifað af
Ásýnd banka- og fjármálaþjónustu kann að breytast hratt á komandi árum en
þar með er ekki sagt að bankarnir sem eru starfandi í dag muni heyra sögunni til
AFP
Framtíðin Rohit segir bankageirann þurfa að þróast til að koma til móts við þarfir nýrra atvinnugreina sem eru að
verða til um þessar mundir. Þar verði verðmætasköpunin. Róboti hellir bjór í glas á vörusýningu í Þýskalandi.
Rohit Talwar
Seðlabanki Argentínu kom mörk-
uðum í opna skjöldu á föstudag með
því að hækka stýrivexti úr 27,25%
upp í 40%. Vaxtahækkunin varð til
þess að gengi argentínska pesóans
styrktist mest um 5% gagnvart
bandaríkjadal en lauk deginum 2,3%
sterkara.
Að sögn FT hefur pesóinn nú
veikst um nærri 15% gagnvart daln-
um það sem af er þessu ári. Seðla-
bankinn sá sig knúinn til að hækka
vexti enda hafa fjárfestar verið ólmir
að losa sig við argentínska pesóa svo
að gjaldeyrisforði bankans hefur
minnkað um 5 milljarða dala.
Argentína er það land sem þykir
hafa orðið hvað verst fyrir barðinu á
flótta fjármagns frá nýmarkaðs-
löndum til að elta sterkara gengi
bandaríkjadals og hækkandi stýri-
vexti seðlabanka Bandaríkjanna.
Mun veiking pesóans valda auknu
álagi á aðhalds- og umbótaáætlun
ríkisstjórnar hægrimannsins Mauri-
cio Macri sem komst til valda 2015
eftir nærri áratug af vinstristjórn
Nestors og síðar Christinu Kirchner.
Ríkisstjórnin kveðst ætla að leggja
sitt af mörkum með enn meira að-
haldi. Er ætlunin að minnka halla-
rekstur ríkissjóðs úr 3,2% niður í
2,7% af landsframleiðslu og með því
minnka lánsfjárþörf ríkisins um 3
milljarða dala á þessu ári. ai@mbl.is
Stýrivextir
Argentínu
upp í 40%
AFP
Þraut Meðal fyrstu verka Mauricio
Macri í embætti var að afnema höft.
Breytingar á bókhaldsreglum urðu til
þess að Berkshire Hathaway þurfti
að afskrifa eignir fyrir 6,4 milljarða
dala á fyrsta ársfjórðungi, sem þýddi
að samsteypan skilaði 1,1 milljarðs
dala tapi. Starfsemi Berkshire geng-
ur engu að síður vel, að sögn FT, og
jókst rekstrarhagnaður um 49% mið-
að við sama tímabil í fyrra og nam 5,3
milljörðum dala á fjórðunginum.
Munar þar mest um að viðsnúningur
varð í tryggingastarfsemi Berkshire,
sem fyrir ári var rekin með tapi, auk
þess sem rekstur orku-, lestarflutn-
inga- og innviðafyrirtækja samsteyp-
unnar batnaði.
Aðalfundur Berkshire fór fram í
Omaha um helgina og að vanda
myndaðist þar lífleg stemning enda
alla jafna von á tugum þúsunda fjár-
festa á fundinn. Þótti sumum að
Warren Buffett, sem er 87 ára gam-
all, hefði notað samkomuna til að búa í
haginn fyrir brottför sína frá Berk-
shire. Hann hefur sagst vilja ferðast
minna, og vék í síðasta mánuði úr
stjórn matvörurisans Kraft Heinz.
Mennirnir sem taldir eru líklegstir til
að verða valdir sem arftakar Buffetts,
þeir Greg Abel og Ajit Jain, fengu
stöðuhækkun í janúar og tóku á sig
meiri skyldur í rekstri félagsins.
Bloomberg greinir frá því að á aðal-
fundinum hafi Buffett reynt að gera
lítið úr því að hann hefði náðargáfu á
sviði fjárfestinga og sagði að það hefði
ekki síst verið stöðugt framboð á fjár-
magni, frekar en hann sjálfur, sem
hefði gert Berkshire fært að gera góð
kaup á óróatímum. „Þetta orðspor til-
heyrir núna Berkshire,“ sagði hann.
„Við erum þeir fyrstu sem [seljendur]
hringja til, og munum verða það
áfram.“ ai@mbl.is
AFP
Lúinn Tal Buffetts á aðalfundinum
gæti bent til að hann sé á förum.
Bókhaldstap
hjá Berkshire
Kann að vera komið fararsnið á Buffett