Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.05.2018, Blaðsíða 40
SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2018
www.husgagnahollin.is
558 1100
HELGAR
SPRENGJA
AFSLÁTTUR
20%
FRÁ FÖSTUDEGI TIL MÁNUDAGS, 10.–14 MAÍ
CHISA
Nettur og skemmtilegur hægindastóll.
Fáanlegur í grænu og bláu sléttflaueli.
23.992 kr. 29.990 kr.
www.husgagnahollin.is
VE
FVERSLUN
A
LLTAF OP
IN
AFSLÁTTUR
30%
ELIZABETH
Sófasett úr svörtu gæðaleðri. 3ja og 2ja sæta sófar og
stóll með skemli.
3ja sæta: 195 × 91 × 81 cm
174.993 kr.
249.990 kr.
2ja sæta: 142 × 91 × 81 cm
139.993 kr.
199.990 kr.
Stóll: 87 × 91 × 81 cm
97.993 kr. 139.990 kr.
Skemill: 57 x 47 x 44 cm
29.393 kr. 41.990 kr.
LYRE
Stórglæsilegt
borðstofuborð
frá POMAX úr
endurunnum
álmi. Borð-
plata klædd
málmi.
Ø: 118 cm
og hæð: 76 cm
57.998 kr.
289.990 kr.
AFSLÁTTUR
80%
Fimleikasamband
Íslands hvetur sitt
fólk til að standa
saman, á höndum, í
tilefni af 50 ára af-
mæli sambandsins
og gera tilraun til
að slá heimsmet í
handstöðu hvað
fjölda fólks varðar. Núverandi met er
399 manns en stefnt er að að ná að
minnsta kosti 500 manns. Sambandið
er búið að hafa samband við Guinnes
World Records um að fá metið stað-
fest. Tilraunin fer fram á afmælisdag-
inn 17. maí í Laugardalshöll.
Fimleikar fyrir alla er undirliggj-
andi þema á afmælisárinu hjá Fim-
leikasambandi Íslands. Sólveig Jóns-
dóttir, framkvæmdastjóri Fim-
leikasambandsins, segir að þeim hafi
fundist handstaðan góð leið til að fá
sem flesta með. „Það geta allir staðið
á höndum ef þeir æfa sig. Við viljum
fá alla til að koma að standa á höndum
með okkur,“ segir hún en fimleika-
félög úti um allt land ætla að taka
þátt. „Við sendum kökur á félögin úti
á landi,“ segir hún en þeir sem kom-
ast ekki á staðinn til að taka þátt í að
slá metið geta engu að síður tekið
áskoruninni. Sólveig er viss um að
metið verði slegið og eftir það verður
öllum boðið í köku í anddyri Laugar-
dalshallar.
Mæting er í Laugardalshöll klukk-
an 18 á fimmtudag og þátttakendur
þurfa þá að skrá sig. „Nöfn allra
verða í heimsmetabókinni,“ segir hún.
Við sama tækifæri verður skrifað
undir samning með Degi B. Eggerts-
syni borgarstjóra vegna EuroGym
sem haldið verður í Laugardalnum
árið 2020 en þar koma saman fjögur
til fimm þúsund ungmenni á aldrinum
13-18 ára, sem stunda fimleika á sín-
um forsendum en þar er áherslan á
sýningar og smiðjur en ekki keppni.
Getty Images
Heimsmet í handstöðu
Fimleikafólk landsins ætlar að standa saman, á höndum, og
slá heimsmet á 50 ára afmæli Fimleikasambands Íslands.
Sólveig Jónsdóttir
Geimverur létu ekki sjá sig við
Snæfellsjökul í gærkvöldi, stóð í
baksíðufrétt á Morgunblaðinu
þann 6. nóvember 1993.
Yfir 500 manns höfðu þá safn-
ast saman við norðurjaðar jökul-
sins, nálægt Hellissandi, og beð-
ið þess að geimverur lentu.
„Fólk fylgdist með geimveru-
ferðum víðar við jökulinn, meðal
annars við Hellna, en ekki hafði
frést af neinu óvenjulegu seint í
gærkvöldi,“ segir í fréttinni.
Í dreifibréfi sem borið var í öll
hús á Hellissandi kom fram að
von væri á geimverunum klukk-
an 21.07 að kvöldi föstudagsins
5. nóvember. „Fólkið kom að
jöklinum fyrir ofan Hellissand á
um 200 bílum. Geimverurnar
létu ekki sjá sig þrátt fyrir að
björgunarsveitin reyndi að leið-
beina þeim með því að skjóta
upp flugeldum. Fólkið fór að tín-
ast heim þegar leið á kvöldið og
allir höfðu gaman af uppá-
komunni þrátt fyrir kulda og
éljagang.“
GAMLA FRÉTTIN
Grænar
verur létu
sig vanta
Hópur fólks beið lendingar fljúgandi furðuhluta með geimverum innan-
borðs á Snæfellsnesi. Myndin er tekin á Hellnum en enn stærri hópur beið
við Hellissand. Engin furðuleg fyrirbæri úr geimnum létu sjá sig þetta kvöld.
Morgunblaðið/RAX
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Maisie Williams
leikkona úr Game of Thrones
Dagný Aradóttir Pind
lögfræðingur
Rose Leslie
leikur lögfræðing í The Good Fight