Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.05.2018, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.05.2018, Blaðsíða 22
1 kjúklingur 50 hvítlauksgeirar, afhýddir 1 poki steinselja 4 stiklar sellerí, niðurskorið 250 g smjör salt og pipar múskat 2 msk. þurrkað estragon 1 dl koníak (má nota hvítvín) Steikið sellerí og steinselju upp úr smjöri og saltið vel. Kryddið með estragon þegar það er steikt og setjið til hliðar. Hlutið kjúklinginn niður, saltið og piprið og kryddið vel með múskat. Steikið hann upp Þegar spænska flensan geisaði í Evrópu var gripið til allra meðala. Í Stuttgart í Þýskalandi blönduðu borgarbúar saman koníaki og hvítlauk og drukku. Þessi réttur inniheldur bæði hvítlauk, í miklu magni, og koníak og undirrituð hefur persónulega reynslu af því að hann bæti, hressi og kæti í flensum. Hann er líka ógurlega góður en uppskriftin hefur birst í nokkrum útfærslum í gegnum tíð- ina. Á heimilinu kallast hann 100 geira kjúklingurinn því yfirleitt er uppskriftin tvöfölduð, og hvítlauk- urinn þá að sjálfsögðu líka. úr 50 g af smjöri á pönnu, þannig að hann verði fallega gylltur. Leggið bitana í eldfast lokað mót, dreifið hvítlauknum yfir og þá selleríinu og steinseljunni. Hell- ið koníakinu yfir, skerið 200 g af smjöri í nokkra bita og stingið þeimhér og þar í réttinn og milli bitanna. Setjið inn í ofn við 180°C í 1 og ½ klst. Stundum geri ég hveitijafn- ing til að loka pottinum algjörlega svo engin uppgufun verði. Berið fram með smábrauði og hrísgrjónum. 100 geira kjúklingurinn MATUR Kínóa passar vel með flestum mat og gott er að gera salöt matar-meiri með því að bæta bolla af soðnu kínóa saman við. Kínóa passar líka vel í súpur og er einkar prótínríkt. Kínóa með öllu 22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.5. 2018 Kókoskúlur eru það fyrsta sem ég gerði sjálf í eldhúsinu. Ástæðan? Móðir mín tók ekki í mál að ég fengi að meðhöndla neitt sem framkallaði hita, hvorki eldspýtur, bakaraofn né eldavélarhellur. Ég gerði þessar kókoskúlur frá 6-13 ára, þegar ég lærði að baka pítsur og þær standa alltaf fyrir sínu. Á þessum árum voru mæður ekki sykurlausar og þær settu ekki chia-fræ í bakkelsið: 2 bollar haframjöl ½ bolli sykur ¼ bolli kakó 110 g mjúkt smjör 1 msk. uppáhellt kaffi (eða bara vatn) ½ tsk. vanilludropar kókosmjöl til að velta kúlunum upp úr Blandið þurrefnum saman í skál, hnoðið smjöri, kaffi og vanillu- dropum síðast saman við. Búið til litlar kúlur og veltið þeim upp úr kókosmjöli. Má borða strax eða frysta áður í 2 klst. Eftir sjö ár af kókoskúlum lærði ég að gera pítsu hjá nágrannakon- unni. Það pítsudeig hefur verið notað allar götur síðan, í 27 ár og aðrar tilraunir hafa ekki skilað betra deigi. 5 dl hveiti 1,8 dl volgt vatn ½ pakki þurrger 2 msk. ólífuolía 1 tsk. salt Hrærið þurrgerið upp í vatninu og blandið svo öllu saman, á síðari tímum geri ég það í matvinnslu- vélinni en það er auðvelt að hnoða þetta líka. Bætið hveiti við eftir þörfum. Látið hefast í 20 mínútur og þá er það tilbúið til að rúlla út. Það sem fylgdi með úr æsku Getty Images/iStockphoto Réttir hússins Hvert heimili hefur sínar hefðir og „sína rétti“. Sumir eru fastir liðir í hverjum mánuði, til annarra er gripið reglulega þótt jafnvel hálft ár eða ár líði á milli. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Þrátt fyrir að flestir séu til í að prófa eitthvað nýtt í eldhúsinueru yfirleitt ákveðnir réttir sem eru eldaðir oftar en aðrir,réttir sem við grípum aftur og aftur í og höfum jafnvel gert í áratugi. Á þessari opnu eru uppskriftir að þeim réttum sem hafafylgt undirritaðri í gegnum tíðina. Uppruni uppskriftanna er ekkialltaf á hreinu og stundum hafa þær eitthvað breyst í gegnum árin.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.