Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.05.2018, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.05.2018, Blaðsíða 26
TÍSKA 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.5. 2018 Litaglaðir ættu að gleðjast yfir nýjasta útspili Giovönnu Battaglia en The Elder Statesman hefur framleitt regnbogalitaða kasmírpeysu sérstaklega fyrir hana. Nánar á myfavoritecolorisshopping.com Regnbogalituð kasmírpeysa Hvernig myndir þú lýsa þínum fatastíl? Ég mundi lýsa honumsem kvenlegum og litríkum. Ég er mjög mikið fyrir kjóla,það er svo einföld lausn að henda sér í eina flík og þurfa ekki að hugsa hvort það passi við hitt og þetta. Einnig elska ég að ganga í andstæðum litum og munstrum. Hvað heillar þig við tísku? Það er hægt að tjá sig á svo margan hátt með tísku, það sem heillar mig við tísku er þegar fólk klæðir sig út frá sínum persónuleika og lífsstíl í staðinn fyrir að eltast við tískustrauma. Hvernig skín þinn persónulegi stíll í gegn í hönnun þinni? Ég framleiði ekkert sem ég mundi ekki ganga í sjálf. Það er markmiðið að hanna flíkur fyrir konur sem eru á framabraut og er uppteknar í lífinu og hafa oft ekki mikinn tíma til að hugsa um klæðnaðinn sinn en vilja fá vandaða og tímalausa flík. Einnig hugsa ég að flíkin þurfi að vera þægileg, ég legg mikið upp úr að koma fram með gæði og vönduð efni, t.d. bamboo jersey og silki. Hvert sækir þú innblástur? Ég fer mikið à listasöfn og skoða listabækur sem ég safna að mér. Um þessar mundir er ég dol- fallinn yfir listamanninum Alfie Kungu. Einnig antíkmarkaðir erlendis, þar finn ég alltaf eitthvað áhugavert sem gefur mér hugmyndir, hvort sem það eru gamlir efn- isbútar, munstur eða litir. Áttu þér uppáhalds tísku- hús? það sem heillar mig mest í dag eru hönn- unarstúdíó sem eru að koma fram með nýjar hug- myndir um framleiðslu og þróun á vörum. Ætlar þú að fá þér eitthvað fallegt fyrir sumarið? Ég fékk mér fallega skó frá íslenska merkinu KALDA og svo er á listanum að fá mér prjóna rúllukraga peysu frá MAGNEA. Hvað er þitt uppáhalds tískutrend þetta sumarið? Ég velti mér aldrei upp úr tískutrendum en það sem er alltaf skemmtilegt við sumrin er að fólk virðist ekkert hrætt við að klæðast litum þá. Svo ég er spenntust að sjá liti og munstur á konum og körlum. Hver hafa verið bestu kaupin þín? Ég er nokkuð viss um að það sé vintage-kjóll frá 1950 sem ég keypti þegar ég var 13 ára, og nota hann enn í dag. Hann er einnig búin að vera innblástur fyrir margar fatalínur. Svo á ég yndislega túrkis mohair ullarkápu frá Diane Von Fur- stenberg. Hvaða þekkta andlit finnst þér með flottan stíl? Svo margar konur, Linda Rodin, leikstjórinn Rungano Nyoni og Lucinda Chambers Hvert er þitt eftirlætis tísku- tímabil og hvers vegna? Ég tengi í dag mikið við sjötta áratuginn; einföld snið og falleg heild. Anita Hirlekar fata- hönnuður er með kven- legan og litríkan stíl. Morgunblaðið/Valli Litir og munstur í sumar Anita Hirlekar nam fatahönnun við hinn virta háskóla Central Saint Martins í London og rekur verslunina AA.M. Concept Space ásamt Magneu Einarsdóttur. Anita hannar fyrir eigið tískuhús samnefnt tískumerki en hún elskar að ganga í andstæðum litum, og munstr- um og leggur upp úr því að koma fram með gæði og vönduð efni í hönnun sinni. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Linda Rodin er alltaf flott. Sækir innblástur í lista- manninn Alfie Kungu. Kjóll frá Anitu Hirlekar. Anita heldur upp á ein- föld snið og fallega heild fatahönnunar á 6. áratugnum líkt og þessi ljósmynd af hönnun Balenciaga sýnir.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.