Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.05.2018, Síða 36
KVIKMYNDIR Nærri 30 árum eftir
fyrstu myndina, Bill and Ted’s Excellent
Adventure lítur ný mynd um þá félaga
dagsins ljós. Verið er að undirbúa fram-
leiðslu myndarinnar Bill and Ted Face
the Music. Önnur myndin, Bill and Ted’s
Bogus Journey kom síðan út árið 1991.
Það hefur því margt drifið á daga
þeirra síðan síðast en leikararnir
Keanu Reeves og Alex Winter
munu sem fyrr verða í hlutverkum
Theodore „Ted“ Logan and „Bill“ S
Preston Esq. Tilkynnt var um verk-
efnið á Cannes-kvikmyndahátíðinni.
Meira af Bill og Ted
Alex Winter og Keanu Reeves leika Bill og Ted.
AFP
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.5. 2018
LESBÓK
TÓNLIST Tónlistarveitan Spotify hefur fjarlægt öll lög R. Kelly
af lagalistum sínum. Það er enn hægt að spila lög hans á Spotify
en veitan setur þau ekki á lagalista sína á borð við New Music
Friday, #ThrowbackThursday, eða helsta R&B-lagalistann, This
is How We Do. Þessi ákvörðun var tekin í kjölfar þess að
tónlistarmaðurinn hefur enn eina ferðina verið kærður
fyrir að brjóta kynferðislega gegn konum. Hann hefur
áður m.a. verið ákærður fyrir að búa til barnaklám.
Þetta er hluti af nýrri stefnu Spotify að styðja
ekki við neina tónlist sem tengist hatursfullri
hegðun. „Við ritskoðum ekki tónlist vegna
hegðunar listamanns en við viljum að það sem
við erum sjálf að gera endurspegli gildi okk-
ar,“ segir í yfirlýsingu frá streymisþjónustunni.
R. Kelly.
AFP
Eurovisionkeppnin á sér stóran aðdáenda-hóp sem fylgist vel með öllu sem gerist íkeppninni. Þeir eru samt enn fleiri sem
fylgjast bara með lokakeppninni og þá ekki
síst vegna alls sjónarspilsins sem fylgir.
Hvort sem áhuginn er meiri eða minni ættu
flestir að þekkja þau tíu lög sem hér eru
talin upp en þetta eru lög sem hafa lifað
góðu lífi áfram utan keppninnar og
hafa flytjendurnir sumir orðið stór-
stjörnur heima og að heiman.
Mikið vatn hefur að minnsta kosti
runnið til sjávar frá því að fyrsta
keppnin var haldin í Lugano í Sviss
árið 1956 en þá gátu flestir
Evrópubúar aðeins fylgst með
keppninni í útvarpi. Í ár er það
Lissabon í Portúgal sem hýsir
keppnina og verður forvitnilegt að
vita hver örlög sigurlagsins í ár
verða, hvort lagið lifi áfram eða falli
fljótt í gleymskunnar dá.
ABBA sló í gegn fyrir Svíþjóð með laginu „Water-
loo“ árið 1974. Lagið naut mikilla vinsælda víða um
heim og komst m.a. inn á topp tíu í Bandaríkjunum.
Á 50 ára afmæli Eurovision árið 2005 var lagið valið
það besta sem fram hefði komið í keppninni.
AFP
Eftirminnilegir sigurvegarar
Sænska söngkonan Loreen náði Evrópu á sitt vald árið 2012 með laginu
„Euphoria“ og hreinlega rústaði keppninni. Lagið fór á toppinn í mörgum
löndum og seldist í meira en tveimur milljónum eintaka.
Sigurlag bresku sveitarinnar Brotherhood of Man var „Save Your Kiss-
es For Me“ árið 1976. Lagið fór á toppinn í Bretlandi eftir keppninna en
sló líka í gegn í Evrópu, Bandaríkjunum og Ástralíu.
Conchita Wurst
vann með laginu „Rise
like a Phoenix“ árið
2014 en þetta var
annar sigur Austur-
ríkis í keppninni.
Úrslitakeppni Eurovision fer fram í Lissabon í
Portúgal í kvöld, laugardagskvöld, þar sem 26 lönd
keppa sín á milli um sigurinn. Hér verða rifjaðir upp
tíu eftirminnilegir sigurvegarar frá mismunandi
tímabilum í sögu keppninnar.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
FÓLK Lögregla handtók mann sem
braust inn á heimili tónlistarkon-
unnar Rihönnu í Los Angeles og
eyddi nóttinni þar. Lögregla fann
manninn á fimmtudagsmorgun eftir
að hafa fengið boð um að mögulegur
innbrotsþjófur væri á ferð því ljóst
var að einhver hefði átt við öryggis-
kerfið. Rihanna var sem betur fer
ekki heima, hún var upptekin við að
kynna nýja undirfatalínu sína, Sa-
vage x Fenty, í Brooklyn. Maðurinn
heitir Eduardo Leon, 26 ára, og hef-
ur verið handtekinn fyrir að sitja um
söngkonuna. TMZ greindi frá.
Rihanna.
Braust inn
hjá Rihönnu
Spotify fjarlægir lög R. Kelly
Beyoncé.
Beyoncé gefur
V&A hring
FÓLK Tónlist-
arkonan
Beyoncé hefur
gefið Victoria
& Albert-
safninu í Lond-
on hring sem
hún fékk að gjöf frá eiginmanni sín-
um Jay-Z. Hringurinn, sem er eins
og fiðrildi enda kallast hann
papillon-hringurinn, verður til sýn-
is við hlið skartgripa sem hafa áður
verið í eigu og notaðir af merkum
konum í sögunni á borð við Elísa-
betu I. og Katrínu miklu. Hring-
urinn var gerður af skartgripa-
hönnuðinum Glenn Spiro árið 2014.
Vængirnir eru úr títaníum og
skreyttir með grænum gimsteinum
sem eru þúsund sinnum sjaldgæfari
en smaragðar. Safnið er himinlif-
andi með gjöfina.