Fréttablaðið - 28.06.2018, Qupperneq 2
Veður
Suðaustan 5-13 m/s og fer að rigna
í dag, fyrst suðvestanlands. Heldur
hægari og bjart veður á Norðaustur-
og Austurlandi. Hiti 10 til 20 stig,
hlýjast á norðaustanverðu landinu.
SJÁ SÍÐU 26
Hjólbörufar í Hlíðunum
Það er mikilvægt að hvíla lúin bein eftir baráttuna við gróðurinn sem ofalinn hefur verið á úrkomu í allt sumar. Þessi starfsmaður Vinnuskóla
Reykjavíkur fékk far hjá vinnufélaga sínum í hjólbörum yfir Lönguhlíð í gær. Væntanlega aðframkominn af þreytu eftir baráttuna við sprettuna í
borginni. Þúsundir ungmenna eru nú að störfum í vinnuskólum um allt land. Það eru fyrstu skref margra á vinnumarkaði. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
VINNUMARKAÐUR Samninganefndir
ríkisins og ljósmæðra hittast á fundi
hjá ríkissáttasemjara í dag klukkan
10.30. Eru fundir þeirra hjá sátta-
semjara orðnir ellefu talsins auk sex
funda áður en deilan fór inn á borð
ríkissáttasemjara.
„Við förum inn á fundinn fullar
bjartsýni eins og við höfum gert í
hvert skipti og vonum að samninga-
nefndin komi til fundar með umboð
og vilja til að semja við okkur,“ segir
Katrín Sif Sigurgeirsdóttir, formaður
kjaranefndar Ljósmæðrafélags
Íslands.
Deilan hefur staðið yfir síðan í
september í fyrra. „Það er ekki hægt
að halda svona áfram. Það er öllum
til vansa og lítilsvirðingar,“ bætir
Katrín við. „Þessi deila hefur staðið
yfir í rúma meðgöngu og það stefnir
allt í gangsetningu.“
Kosning um yfirvinnuverkfall
meðal ljósmæðra hófst í gær og
verður opin fram á sunnudag. – sa
Ljósmæður
bjartsýnar
Flísabúðin
Stórhöfða 21 | s: 545 5500 | flis.is
30%
afmælisafsláttur
á Heliosa hiturum
HELIOSA hitarar henta bæði
innan- og utandyra.
Helstu kostir HELIOSA hitara eru:
• Hitna strax
• Vindur hefur ekki áhrif
• Vatnsheldir og menga ekki
Margar gerðir til á lager.
Finndu okkur
á facebook
Flísabúðin
30
ÁRA
2018
FANGELSI Fangelsisyfirvöld eru
harðlega gagnrýnd í yfirlýsingu frá
Afstöðu, félagi fanga, vegna beit-
ingar agaviðurlaga gagnvart Barry
Van Tuijl sem fluttur var frá opna
fangelsinu að Kvíabryggju, þar sem
hann hefur afplánað dóm undan-
farin ár, í fangelsið á Hólmsheiði
fyrr í vikunni.
Málsatvikum er lýst þannig í
yfirlýsingunni að Barry hafi fengið
símtal frá fyrrverandi samfanga
sem bað hann að hitta sig á golf-
velli Kvíabryggju þar sem hann
kvaðst vera staddur. Golfvöllurinn
er á lóð fangelsisins, við framhlið
aðalbyggingarinnar og engin leið
að leynast á vellinum. Þangað hafi
Barry farið án þess að gera sér grein
fyrir að í því gæti falist brot á reglum
fangelsisins.
Var honum í kjölfarið birt ákvörð-
un um flutning á Hólmsheiði, með
þeim rökum að hann hefði fengið
ósamþykkta heimsókn andstætt
reglum fangelsisins.
Barry, sem er frá Hollandi og fær
ekki margar heimsóknir í fangelsið,
gat ekki, að mati félagsins, átt von
á því að menn væru í leyfisleysi á
lóð fangelsisins og þaðan af síður
að hann sjálfur gæti borið ábyrgð á
veru umrædds manns þar.
Í yfirlýsingu Afstöðu er Barry
sagður fyrirmyndarfangi og vel lið-
inn meðal samfanga sinna. Hann
hafi lagt sig fram um að aðstoða
samfanga sína við nám og verið
til staðar í andlegum erfiðleikum
þeirra.
Barry sótti um náðun í fyrra og í
umsókn hans segir að fangaverðir
á Kvíabryggju geti vitnað um góða
hegðun hans að ofangreindu leyti.
Barry missti fót í bílslysi fyrir
nokkrum árum og getur ekki nýtt
rétt sinn til að afplána síðasta hluta
dómsins á áfangaheimilinu Vernd,
enda húsið óíbúðarhæft fyrir jafn
fatlaðan einstakling og Barry. Hann
nýtur heldur ekki fullra sjúkra-
og örorkuréttinda hér á landi og
vegna þessara aðstæðna sótti Barry
um náðun enda vildi hann helst
komast heim til Hollands þar sem
hann nyti fullra réttinda. Honum
var hins vegar synjað um náðun eins
og Fréttablaðið greindi frá í janúar.
Afstaða, félag fanga, gagnrýnir
hörkuna í agaviðurlögum stofnun-
arinnar enda mikill réttindamissir
að fara úr opnu fangelsi í lokað.
Vísað er meðal annars til ákvæða
í lögum um fullnustu refsinga
sem kveða á um að við fyrsta aga-
broti megi eingöngu veita skriflega
áminningu ef um smávægilegt brot
er að ræða.
Erla Kristín Árnadóttir, staðgeng-
ill forstjóra Fangelsismálastofn-
unar, segist ekki getað tjáð sig um
mál einstakra fanga en segir brot á
heimsóknarreglum geta verið misal-
varleg og varðað mismunandi aga-
viðurlög. Við slíka ákvörðun þurfi
að hafa meðalhófsreglu í huga enda
um stjórnsýsluákvörðun að ræða.
adalheidur@frettabladid.is
Fluttur á Hólmsheiði
fyrir spjall á golfvelli
Fangi á Kvíabryggju var fluttur í lokað fangelsi eftir spjall á golfvelli fangelsisins.
Fanganum er lýst sem fyrirmyndarfanga. Félag fanga segir fangelsisyfirvöld
beita hörku í agaviðurlögum og telja að um brot á meðalhófi sé að ræða.
Golfvöllurinn er á flötinni beint fyrir framan fangelsið. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Við fyrsta agabroti má
ekki beita þyngri viðurlögum
en skriflegri áminningu enda
sé brotið smávægilegt.
Barry Van Tuijl
LÖGREGLUMÁL Andri Gunnars-
son, lögmaður og viðskiptafélagi
Sigurðar Gísla Björnssonar, hefur
réttarstöðu sakbornings í stærsta
skattsvikamáli sem til rannsóknar
hefur verið á Íslandi. Meint brot,
vantalinn skattstofn, nemur 1,3
milljörðum króna. Þau munu hafa
átt sér stað á árunum 2011 til 2016.
Húsleit var gerð heima hjá Andra
2. maí síðastliðinn. Landsréttur
hafnaði í síðustu viku kröfu Andra
um að embætti skattrannsóknar-
stjóra afhenti gögn sem fundust í
húsleitinni. Landsréttur staðfesti
þar með úrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur sem féllst á að umrædd
gögn væru nauðsynleg í þágu rann-
sóknar í einum umfangsmestu
skattalagabrotum sem upp hafa
komið hér á landi, að sögn emb-
ættisins.
Fréttablaðið greindi frá því 18.
janúar síðastliðinn að húsleit hafi
verið gerð á heimili Sigurðar Gísla
fyrir áramót en hann er fram-
kvæmdastjóri fiskútflutningsfyrir-
tækisins Sæmarks. Eignir hans voru
kyrrsettar og bankareikningar hald-
lagðir. Andri er lögmaður Sigurðar
Gísla.
Embætti skattrannsóknarstjóra
hefur haft mál til meðferðar frá
Panama-lekanum svokallaða þar
sem meðal annars kom fram að
Sigurður Gísli hefði stofnað félagið
Freezing Point Corp. í Panama árið
2009, en eftir því sem Fréttablaðið
kemst næst er hann grunaður um
skattsvik í gegnum fleiri en eitt
félag.
Ekki liggur fyrir hvort Sæmark
tengist meintum skattalagabrotum.
Sigurður á í fjárfestingarfélaginu
Óskabeini sem er meðal annars stór
hluthafi í tryggingafélaginu VÍS og
Kortaþjónustunni. – bg
Með réttarstöðu
sakbornings
Andri
Gunnarsson,
lögmaður hjá
Nordik.
2 8 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
4
1
-9
2
C
8
2
0
4
1
-9
1
8
C
2
0
4
1
-9
0
5
0
2
0
4
1
-8
F
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K