Fréttablaðið - 28.06.2018, Page 6
STJÓRNSÝSLA Úrskurðarnefnd um
upplýsingamál (ÚNU) hefur fellt
úr gildi synjun kjararáðs á beiðni
Fréttablaðsins um aðgang að fund
argerðum ráðsins. Lagt er fyrir ráðið
að taka nýja ákvörðun í málinu.
Í nóvember 2017 óskaði Frétta
blaðið eftir aðgangi að fundar
gerðum ráðsins frá 2008 til 2017.
Mánuði síðar var beiðnin ítrekuð
og einnig óskað eftir bréfum þeirra
sem undir ráðið heyra til þess. Þeirri
beiðni var hafnað þar sem hún þótti
of víðtæk. Ný beiðni var lögð fram
í febrúar þar sem aðeins var óskað
eftir fundargerðum frá ársbyrjun
2013.
Illa gekk að fá svör frá kjararáði
og var því leitað til ÚNU um milli
göngu í málinu. Synjun kjararáðs
barst í mars en samkvæmt henni
taldi kjararáð sig ekki vera stjórn
vald og því giltu upplýsingalög ekki
um störf þess. Aðgangi að gögn
unum var synjað á þeim grundvelli.
Fréttablaðið kærði synjunina
til ÚNU sem kvað upp úrskurð
sinn í gær. Í úrskurðinum segir að
samkvæmt núgildandi lögum um
kjara ráð sé kveðið á um að það skuli
fylgja ákvæðum upplýsingalaga í
störfum sínum. Af því leiði að ótví
rætt sé að almenningur eigi rétt á
aðgangi að gögnum í vörslu ráðsins.
„Eins og réttur almennings til
aðgangs að gögnum er afmarkaður
í upplýsingalögum er fyrst og fremst
gerður áskilnaður um að þau séu
fyrirliggjandi hjá aðila sem fellur
undir gildissvið laganna […] Að
meginstefnu skiptir engu máli hve
nær umbeðin gögn urðu til eða hve
nær þau bárust viðkomandi aðila,“
segir í úrskurði nefndarinnar.
Af því leiðir að öll gögn í vörslu
kjararáðs séu undirorpin ákvæð
um upplýsinga og geti röksemdir
ráðsins um „meinta stjórnskipu
lega stöðu þess“ engu breytt í því
sambandi. Hefði löggjafinn viljað
undanskilja gögn sem urðu til fyrir
gildistöku nýrra laga um kjararáð
árið 2016 hefði verið eðlilegt að
taka það skýrt fram í lögunum.
Kjararáði bar því að taka afstöðu
til réttar Fréttablaðsins til fundar
gerðanna en það var ekki gert. Að
mati ÚNU samræmdist málsmeð
ferð kjararáðs hvorki ákvæðum
upplýsingalaga né rannsóknarreglu
stjórnsýslulaga. Annmarkarnir á
synjun ráðsins leiddu til þess að hún
var felld úr gildi og málinu var vísað
aftur til ráðsins.
Þann 11. júní voru samþykkt lög
um niðurlagningu kjararáðs en þau
taka gildi um næstu mánaðamót.
Eftir þann tíma verður ekkert kjara
ráð til, til að taka afstöðu til málsins.
joli@frettabladid.is
Synjun Kjararáðs ekki
í samræmi við lög
Kjararáði ber að fara yfir fundargerðir sínar frá ársbyrjun 2013 og taka afstöðu
til þess hvort afhenda beri Fréttablaðinu þær. Úrskurðarnefnd um upplýsinga-
mál felldi fyrri synjun ráðsins úr gildi. Ráðið verður ekki til eftir þrjá daga.
Nýjar, litríkar og skemmtilegar rennibrautir
og leiktæki fyrir yngstu kynslóðina hafa verið
tekin í notkun í Salalaug. Leiksvæðið er í gömlu
vaðlauginni sem hér eftir verður kölluð barnalaugin.
Sundferð með fjölskyldunni eða í góðra vina
hópi er dásamleg líkamsrækt og veitir slökun og
vellíðan. Salalaug og Kópavogslaug bjóða upp á
frábæra aðstöðu, vatnsrennibrautir, leiktæki og
heita potta.
Fjör í
Salalaug!
kopavogur.is
Á leikvangi byltingarinnar
Landslið Frakklands og Argentínu mætast í 16-liða úrslitum á leikvanginum í borginni Kazan. Þessi mynd er tekin
þar en borgin var einn af upphafspunktum rússnesku byltingarinnar árið 1917. Hér heldur ungur drengur frá
Kazan bolta á lofti. Byltingarleiðtoginn Vladímír Lenín fylgist með en lætur sér fátt um finnast. NORDICPHOTOS/AFP
Frá húsakynnum Kjararáðs, við Skuggasund 3. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
kvika.is
Kvika gefur út sex mánaða víxla
Kvika banki hf. hefur gefið út sex mánaða víxla að árhæð
1.600 milljónir króna. Um er að ræða útgáfu í víxlaflokknum
KVB 18 1220 og er heildarheimild flokksins 2.000 milljónir
króna. Fjármálaeftirlitið staðfesti lýsingu vegna umsóknar
um töku víxlanna til viðskipta þann 27. júní 2018, og sótt
hefur verið um töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll Íslands.
Útprentuð eintök lýsingarinnar má nálgast í 12 mánuði frá
staðfestingu hennar í höfuðstöðvum Kviku, Borgartúni 25,
105 Reykjavík. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu Kviku,
www.kvika.is/verdbrefalysingar.
Reykjavík, 28. júní 2018
Fréttablaðið með þér í sumar.
Þú getur nálgast frítt eintak af Fréttablaðinu
á eftirfarandi stöðum víðsvegar um landið:
2 8 . J Ú N Í 2 0 1 8 F I M M T U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
8
-0
6
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
4
1
-B
A
4
8
2
0
4
1
-B
9
0
C
2
0
4
1
-B
7
D
0
2
0
4
1
-B
6
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
5
6
s
_
2
7
_
6
_
2
0
1
8
C
M
Y
K